Morgunn - 01.06.1984, Blaðsíða 35
UM GERVIVXSINDI
33
áhrifamiklir miðilsfundir með líkamningum og tilheyrandi
eru ekki lengur á dagskrá hjá dularsálfræðingum. Slík fyr-
irbæri mega nú heita horfin af sjónarsviðinu.
Sá töframaður, sem kunnastur er nú á dögum fyrir bar-
áttu gegn blekkingum í dularsálfræði, er Bandaríkjamað-
urinn James Randi. Hann átti m.a. þátt í að afhjúpa hinn
víðfræga undramann Uri Geller, sem hafði vakið mikla
athygli dularsálfræðinga.s>
Annað frægt dæmi um blekkingar eru tilraunir stærð-
fræðingsins og dularsálfræðingsins S. G. Soal, sem lengi
þóttu frábærar, eða þar til sálfræðingurinn Mark Hansel
fann örugg merki um það, að Soal hefði haft rangt
við.MJ>,5) Aðeins tíu ár eru síðan dr. 'Walter Levy, fram-
kvæmdastjóri virtustu rannsóknarstofnunar heims í dular-
sálfræði (rannsóknarstofnunar J. B. Rhines við Duke há-
skólann í North Carolina) varð uppvís að svikum og sagði
af sér. Hann hafði þá um skeið vakið mikla athygli dular-
sálfræðinga vegna tilrauna sem bentu til þess að frjógvuð
hænuegg byggju yfir hugarafli.5) Þannig mætti lengi telja.
Blekkingar eiga sér einnig stað í hefðbundnum visindum,
um það eru ýmis dæmi. Engum dettur þó í hug, að hefð-
bundnum vísindum stafi veruleg hætta af slíkri starfsemi.
Um dularsálfræðina gegnir öðru máli, því að tilraunir
hennar fást ekki staðfestar með endurtekningu, og þvi
verður mjög að treysta á trúverðugleika hverrar heimildar.
4. Þegar einhverja reglu er að finna i þeim yfirskilvit-
legu fyrirbærum, sem dularsálfræðingar rannsaka, er regl-
an oftast á þann veg, að hún verður vatn á myllu efasemd-
armanna. Alkunna er, að tilraunir til að sýna fram á yfir-
skilvitlega hæfileika ganga þeim mun verr, sem varúðar-
ráðstafanir gegn svikum verða strangari eða skilyrði til
blekkinga eru takmarkaðri. Áður hefur verið minnst á
þau stórkostlegu miðilsfyrirbæri, sem algeng voru á seinni
hluta 19. aldar og nokkuð fram á 20. öld, en nú mega heita
úr sögunni. Þessi umskipti þykja efasemdarmönnum ofur
eðlileg, en hinir trúuðu verða að leita skýringa, sem ekki
3