Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Side 25

Morgunn - 01.06.1984, Side 25
LESENDUR HAFA ORÐIÐ Fyrirhugaö er aö hafa fastan greinarflokk í blaöinu, sem kallaöur veröur „Lesendur hafa oröiö“. Þar munu lesendur geta komiö á framfæri reynslu sinni og eöa atburöum á því sem kálla má dulrœn fyrirbrigöi. Einnig er vo^iast til aö þetta veröi vettvangur fyrir lesendur til aö koma á fram- fæi'i skoöunum sínum á efni blaösins. Ritstj. Hafnarfirði, 3. apríl 1981. Ég undirritaður hef verið slæmur í baki um þriggja ára skeið og hef átt vont með að beygja mig og hefur bakverk- urinn ágerst mjög síðustu mánuði. Ég hef orðið að hætta að vinna. Verkurinn hefur verið það slæmur að ég hef orðið máttlaus í fótunum og þá fallið niður á hnén og þurft að vera þar á meðan ég jafnaði mig. 1 vinnunni voru vinnufélagar mínir hjálplegir við erfiðustu verkin. Þegar heim kom tók heitt bað og hitapoki við mér á hverjum degi. Ég var orðinn nokkuð þreyttur á þessu og pantaði tíma á Borgarspítalanum í myndatöku. Læknirinn fékk mér meðul, pillur og aftur pillur. Einu sinni var ég fluttur úr vinnunni inn á Borgarspítaia, svo slæmur var ég í það skiptið. Ég var orðinn hálf hræddur við þetta, því að þess- ar pillur sem iæknirinn fékk mér gögnuðu lítið sem ekkert. Skyldfólk mitt var líka kvíðið út af þessum verk. Ég gat stundum ekki klætt mig í sokkana, varð að velta mér fram úr rúminu, fá hjálp til að klæða mig, svo stíft var bakið orðið. Ég hringdi til læknisins, til að vitja um myndirnar frá spítalanum. Jú, hann var búinn að fá þær

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.