Morgunn - 01.06.1984, Side 67
HINN SÁLHÆNI GRUNDVÖLLUR . . .
65
sókn inn á svið hins sálræna verið freistandi fyrir mennina.
Nútímamaðurinn hefir þor og vilja til þess að rannsaka
rneð öllum þeim tækjum, sem hann á yfir að ráða.
Fornaldarmennimir voru á undan oss nútímamönnum
að því, er til spíritisma kemur. Stofnendur heimstrúar-
bragðanna miklu kunnu á því betri tök en vér nútímamenn,
að sækja til fanga í forðabúr alheimsins, og þeir gerðu
stærri uppgötvanir á þvi sviði en vér gjörum í dag.
Zoroaster, sem sumir telja fæddan um 6 þús. árum fyrir
Krist, og aðrir aðeins 6 hundruð árum, og ýmsir allt þar
á milli, hafði slíkt vald yfir sálrænum öflum, að hann varð
fremstur allra töframanna Kaldeanna. Svo mikil og langlíf
urðu áhrif hans, að það voru lærisveinar hans, sem fylgdu
stjörnunni til Betlehem. Zoraster sagði fyrir fæðingu
Krists, komu mannkynslausnarans, á einni af samfélags-
stundum sínum með alheimsskaparanum, sem hann nefndi
Ahura Mazda.
1 skyggnisýn sá þessi mikli persneski sjáandi baráttuna
milli Ahura Mazda (Guðs) og Angra Mainya (Satans). Og
í vitrun greindi hann hina sex Amesha Spenta, erkiengl-
ana, sem einnig voru hugmyndir, sem gátu hjálpað mann-
inum til að sigrast á hinu illa og ná einingu við Guð, og
hann kaliaði þessar hugmyndir, eða þessa erkiengla: Góðan
bug, góða reglu, algert vald, algera hollustu, fullkomnun
og ódauðleika.
Hann lýsti þessum erkienglum sem skínandi verum með
ljómandi, lýsandi augum. Hann sá þá i heimkynnum sín-
um og fylgdi þeim á för þeirra, er þeir fóru til að vinna
köllunarverk sitt á hinum sjö tilverustigum, sem mynda
aiheiminn. Þeir veitu honum innsýn í hið stórkostlega
,,drama“ tilverunnar, allt frá frumkorninu, atóminu, og til
hinnar endanlegu upprisu dauðra, þegar jörðin átti, að
kenningu hans, að vera ódauðleg um alla eilífð. Þannig varð
upphaf Zoroaster-trúar. Hún spratt upp af sálrænni reynslu.
Iiundruð þúsunda lærisveina hans, sem nefnast Parsar, eru
sannfærðir um, að Zoroaster hafi talað við Guð.
5