Morgunn


Morgunn - 01.06.1984, Side 69

Morgunn - 01.06.1984, Side 69
HINN SÁLRÆNI GRUNDVÖLLUR . . . 67 Guðs. Ljós himnanna vitraði honum náttúruna, orsök og lækningu þjáningarinnar. Helgisagnir segja frá fæðingu hans, nærfellt 600 árum fyrr en Kristur kom. Þær segja frá því, að meðan móðir hans var þunguð af honum, hafi hún teygt sig upp til að ná í trjágrein, en þá hafi tréð beygt sig niður að henni í til- beiðslu. Þær segja frá freistingum Búddha í óbyggðunum. Þær segja frá kraftaverkum hans og kenningu hans, þegar hann gekk um, gerði gott og prédikaði vizku og samúð. Þær segja frá síðustu máltíð hans og að þá hafi hann boðið lærisveinum sínum að bera boðskap sinn öllum heimi. Þegar fyrstu rómversk-kaþólsku kristniboðarnir mættu munkum Búddha mörgum öldum síðar austur í Asiu, féllu þeir í stafi, er þeir sáu, að Búddhamunkarnir voru eins klæddir og sjálfir þeir, voru krúnurakaðir eins og sjálfir þeir, notuðu bænafesti, líka talnabandi sjálfra þeirra, krupu fyrir helgimyndum eins og sjálfir þeir, brenndu reykelsi, sungu bænir við logandi kertaljós og sögðu frá páfa sínum, Dalai Lama, sem kjörinn væri af Guði. Og þó undraði kristniboðana allra mest það, að Búddhamunkarnir trúðu á persónulega sáluhjálp og lögðu stund á andlega þjálfun i þeim tilgangi, að geta orðið eitt með föður-móðursál al- heimsins. Nútíma Búddhatrúarmaður segir: „Guð er ekki til. En þetta er aðeins nafn. Andlegt lögmál, leyndarrómsfulit og háleitt, ber oss mennina að brjósti kærleika síns“. Búödha- trúarmenn eru nú um 400 milijónir, og flestir þeirra virðast sammála manninum, sem ég vitnaði til. Hvar, í ailri þessari eldgömlu erfleifð mannkyns, finnum vér stórkostlegri sönnun guðlegrar opinberunar en í trú- arbrögðum Gyðinga? Heiðnir menn, engu síður en Gyðing- ar, hafa laðast að furðuheimi hinnar hebresku Biblíu. Og það, sem meira er, kristnir menn hljóta að trúa á hennar heima, ailt frá því er englar birtust Abraham í Mamres- lundi. Móse sá fingur Guðs rita á steininn og Samúel heyrði himneska rödd. Fingur ósýnilegrar handar reit á hallar-

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.