Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 63

Morgunn - 01.12.1986, Side 63
ekki eingöngu rakin til hnignunar hefðbundins kristin- dóms heldur einnig mjög sterkra ítaka (áhrifa) vélgengis- viðhorfa, sem við munum nú víkja að eftir þessa stuttu at- hugun á kristindóminum. Decartes reisti heimspeki sína á eftirfarandi fuliyrðingu: „Ég hugsa, þess vegna er ég“. Um leið víkur hann frá hinni guðfræðilegu hefð með því að gera manninn en ekki Guð að þungamiðju kenningar sinnar. Hann byrjar með því að efast um gildi upplýsinganna er berast honum um skyn- færin. Hann lítur á líkamann sem vél og dýrin sem vélar. Skynsemi mannsins og sjálfsvitund eða sál er það sem greinir hann frá dýrunum. Efahyggja Decai'tesar er sú kenning hans að dýrin væru vélar, átti eftir að hafa af- leiðingar sem hann hefur sennilega ekki séð fyrir. Efa- hyggja hans breytist í almennri árás á trúarlegt kennivald í nafni vísindalegra rannsóknaraðferða og kenningin um dýrin var yfirfærð á manninn þegar framþróun og atferlis- sálarfræðin höfðu óskýrt mörk manns og dýrs og afgreitt hvorttveggja með frumstæðu módeli (líkani) áreitni og svörunar. Viðhorf af þessu tæi gerir lítið úr manninum og mennsku hans og elur af sér tilhneigingu til að líta á hann sem efnisögn einvörðungu sem í besta falli er aðeins háif-líffræðilegur sannleikur. Samtímis því að sálarhugtakið vék fyrir vélgengisvið- horfum í eðlisfræði og síðar líffræði og sálarfræði (þar sem maðurinn er skýrður útfrá efnaskiptum i líkamanum) komust hin algildu verðmæti trúarhefðarinnar á faliandi fót. Framtið mannkynsins á jörðu fór að skipta meira máli en iausn okkar í öðrum heimi eftir andalok okkar í þess- um heimi. Að mörgu leyti var þetta nauðsynlegt fráhvarf frá „annars heims“ viðhorfum, en við þessa algeru kúvend- ingu, varð efnisleg velmegun hin ráðandi þáttur siðfræð- innar. Kenningunni um erfðasyndina var varpað fyrir róða og i staðinn kom trú á eðlislægan góðleik mannsins og möguieika hans á að ná fullkomnun; takmarkið var ekki lengur að snúa baki við heiminum heldur finna fullnægju morgunn 61

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.