Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 64

Morgunn - 01.12.1986, Page 64
í honum, núna eða í framtíðinni. Það sem einkenndi sið- fræðina var nú nytssemishyggja, sem mest hamingja til handa sem flestum. 1 stað hamingju getum við alveg eins sett efnisgæði: takmarkið er sem mest neysla efnislegra gæða en þau áttu að leiða til mestrar hamingju (eða full- nægingar samkvæmt hagfræðinni). Af þessu leiðir að efn- islegir hagsmunir einstaklingsins og hópsins er það sem mestu varðar, Adam Smith færði rök fyrir því að al- mannaheill væri best þjónað með því að hver og einn þjón- aði eigin hagsmunum en Marx hélt því fram að koma yrði í veg fyrir að einstaklingarnir sköruðu eldað eigin köku með því að þjóðnýta framleiðslutækin; Adam Smith var fulltrúi hins frjádsa markaðskerfis en Marx ríkisrekstrar- ins. Athyglisvert er að yfirlýst markmið beggja er vel- megun einstaklingsins, enda þótt leiðirnar, sem þeir vilja fara, séu ólíkar. Hvaða þýðingu hefur nú þetta fyrir siðfræðina? Tækni- framfarir, einkum á sviði boðmiðlunar, geta fært vaid- höfunum enn meiri völd. Alræði verður mögulegt í bókstaflegri merkingu. 1 alræðisríkjum er kenningin um sem mesta hamingju til handa sem flestum túlkuð sem stuðningsyfirlýsing við ríkið á þeirri forsendu að það sé fulltrúi flestra. (Hins mikla meirihluta). Samfélagið eða Ríkið verður sá kvarði er allt annað miðast við þar sem hugmyndafræðin er reist á efnishyggju. Maðurinn er lítil skrúfa í risastórri vél; hann er leystur undan allri sið- ferðilegri ábyrgð gegn því skilyrði að hann lúti viija vald- hafanna. Hin pólitíska og félagslega siðfræði er nú alls- ráðandi; hún hefur svelgt í sig trúarhvötina með eldmóði byltingarhugsjónarinnar og oft sækir hún viðbótarafl til þjóðernishyggju. Félagsleg og pólitísk hlýðni er verðlaun- uð, ekkert er yfirskilvitlegt nema framtíðin, mannkyninu er fórnað fyrir hugmynd. Afleiðingin verður sú að hinn andlega snauði maður tapar áttum. Djúpsálarfræðin hefur bent á nokkrar af þeim hættum sem þetta hefur í för með sér. Neumann segir: „Með því að samsama persónulegt egó sitt fyrir hinu persónulega í 62 MOHGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.