Morgunn


Morgunn - 01.06.1993, Side 63

Morgunn - 01.06.1993, Side 63
MORGUNN þess hversu fyrirferðarmikil þessi fyrirbæri eru á íslandi hafa sögusagnimar að sama skapi verið fjölskrúðugar og fyrirferðarmiklar. Ungar sálir eiga hins vegar afar erfitt með að skilja slíka reynslu og hafa reynt að koma henni í skiljanlegt form. Afleiðingin af þeirri viðleitni er sú að lýsingarnar á þessum heimi huldufólksins eru mun efniskenndari og líkari lýsingum á mannheimum en efni standa til. Heimur huldufólksins er miklu fremur mynd af hliðstæðum við mannlífið sem birtast ykkur til þess að draga eitthvað tiltekið fram í dagsljósið sem orðið getur ykkur að gagni. Til þess að flækja málið enn frekar fyrir ykkur, viljum við draga enn eina staðreynd um þessi mál fram í dagsljósið. Það kemur stundum fyrir að þið rekist á aðrar mannverur sem eru ekki mannverur í raun, heldur nokkurs konar endurvarp af reynslu ykkar. Þannig kunnið þið að hitta karl eða konu og eiga stutt samskipti við hana. í næstu andrá er þessi manneskja horfin fyrir horn og þið leitið hennar en hún virðist hafa gufað upp. Þær einfaldlega hverfa. Það sem á sér stað er það að ykkur birtist ekki raunveruleg efnisleg manneskja, heldur endurvarp af reynslu ykkar, endurvarp sem kennir ykkur eitthvað eða vekur ykkur upp til umhugsunar um eitthvert tiltekið atriði. Nokkurs konar áminning. Sum slíkra fyrirbæra (þau eru vitaskuld af misjöfnum toga) birtast ykkur til þess að hjálpa ykkur að takast á við eigin ótta. Margt af því sem birtist í þjóðsögum og ævintýrum á uppruna sinn í ótta mannfólksins. Ótta sem ættaður er frá eðlislægu stöðinni, sem er frumtæki okkar til þess að glíma við lífsafkomuna. Eðli smábamasálna er að nafngreina og tengja þennan ótta við öfl sem þær þekkja úr náttúrunni. Það er þeirra leið til þess að ná tökum á ótta sínum. Tilhneigingin er að ýkja það hvemig þessi birting óttans er auðkennd. Þess vegna eru þær myndir sem þessi dulbúni ótti tekur á sig gjarna úr

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.