Morgunn - 01.06.1993, Page 73
MORGUNN
Áður en fyrsta ári Michaels hjá Dr. Whitton lauk,
kynntist hann eftir miklar vamir Hildebrandt sem tólf ára
gömlum. Að þessu sinni tók athygli hans þó beina stefnu á
aðra þátttakendur þessa átakaþrungna og miskunnarlausa
miðaldalífs. Foreldrar Hildebrandts voru meira en
kunnugleg... þau voru foreldrar hans í þessu lífi. Aðstæður
hans höfðu ekki verið svo ólíkar þarna á tólftu öldinni í
Vestfalíu. Þar hafði hann fæðst í ástlausu sambandi
foreldra sinna og það hafði leitt til alls kyns neikvæðra og
truflandi áreita í uppvextinum. Höfnunartilfinningar hans
umbreyttust stundum í virkt hatur...
Faðir Hildebrandts er að kenna syni sínum hvernig
bregða skal sverði. Drengurinn, logandi af reiði
vegna fyrri atburða, sér sér þarna leik á borði og
rekur sverðið í auga föður síns. Nokkrum vikum
síðar dó hann af hinum alvarlegu innri sárum sem
hann hlaut. Allir halda að dauðsfallið hafi verið slys
en Hildebrandt veit betur...
Michael lærðist sífellt fleira eftir því sem meðferðar-
tímunum fjölgaði...
Móðir Hildebrandts er kona sem iðkar launstjórnun,
bruggar launráð og egnir til samsœra til að tryggja
hagsmuni sína þegar óveðursblikur eru á lofti við
hirðina. Prettán ára gamall er Hildebrandt talinn
standa á þröskuldi manndómsáranna og stutt í að
hann ráði ríkjum í héraði sínu, sem taldist á breidd-
ina vera „daglöng reið í gegnum skóglendið”.
Bráður þroski hans gerir það að verkum að móðir
hans, sem þegar á í ýmsum ástarsamböndum, rennir
til hans hýru auga kynferðislega. Dag einn gerir
hún gerir sér leik að því aðfara á fjörurnar við sinn
71