Sjómaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 26

Sjómaðurinn - 01.12.1943, Qupperneq 26
8 SJÓMAÐURÍNN sem til var, því að nú skyldi skeiðin ganga. Hægur austan var á og þvi liðugur vindur fyrir Hafnarnes og þvi óþarfi að gjöra meira en damla með ú fjór- ar árar, lil skiptis, rétt til að halda á sér liita. Þetta stóð þó eigi lengi, og er komið var út undir Hafn- arnes, var komið logn að meslu, en sjór iiafði þó vaxið nokkuð. \rar þvi ekki um annað að ræða en fella segl og leggja út allar árar, þvi að leiðin var löng, „átján þúsund áratog áltatíu og fjegur“, og einungis nokkur hluti hennar þegar farinn. Fram, hjá Ilafnarnesi, vestur með „Bergi“, fram lijá „Keflavík“ og vestur „Forir“ skreið skeiðin, undan áratogum öldunganna og unglinganna, og leiðin sóltist, þó löng væri og handaflið eitt til framdráttar. Þrátt fyrir Jognið virtist undiraldan heldur auk- ast og boðaði það ekki gott, því inn um brimsund var að fara, er út í Selvog kom. Við, sem yngri vorum, gjörðum okkur litla hugmynd lim það og höfðum cngar áhyggjur af þvi, enda höfðum við nóg um að liugsa, þar sem annarsvegar var sjó- veikin og baráttan við iiana, en hinsvegar það, að halda áralaginu, eins og sjómönnum bar að gjöra. Vestur á mið þeirra Selvogsmanna var íiú kom- ið, Nesvarða sást og undirlendið, sem tekur við vestur af sjálfu „Berginu“, og þar gat að iíla fyrir- iieitna landið, Selvog. Við herðum róðurinn, þvi degi tók að iialla og ekki til setu boðið, þar sem að affermingu og setningu lokið slcyldi halda gang- andi austur á leið til Eyrarbakka, helzt af öllu, um nóttina. Þar kom að við náðum svo langt, að við álitum okkur vera við Sundið inn í Lónið fram af Nesvör. Sáum við þá, að hátar voru allir uppi og talsvert brim. Var nú staldrað við um stund og veittum við því þá eftirtekt, að fjöldi manns hafði safnazt saman skammt austur af Nesi. Ekki vissum við hvað það þýddi, né heldur hvað fólkið hafðist að. Við rerum nær og formaður skimaði í ýmsar áttir, íbygginn á svip, að okkur strákunum fannst. Allir héldum við vafalaust, að við værum á leiðinni inn Sundið, lil fyrirheitna landsins að Nesi. Allt i einu tóku sig upp heljarmiklir brotsjóir allt í kring um okkur og datt vist engum í hug annað en þeir mundu hvolfa kænunni okkar, en skyndilega var sem allt afl drægi úr þeim og brotið þvarr, en háir og krappir héldust þeir, og litla kænan okkar, sem áður hafði verið stórt skip í okkar augum, meðan lognið og sjóleysan hélzt, lyfti sér yfir þessa fjallahryggi eins og fyrirtaks sjóskipi bar að gjöra. „Hvern andskotann erlu að fara?“ kvað við úr skutnum. Það var bróðir for- mannsins, sem sendi frá sér þessa óliefluðu spurn- ingu. — „Ratarðu ekki?“ bætti liann við. — Við rerum nú lífróður út á, því að landmegin við okk- ur braut allsstaðar. Er við vorum komnir svo langt út, að öllu virlist óhætt, andæfðum við aðeins og var nú athugað betur hvað þeir í landi höfðust að. Fá orð féllu, en nú hafði bróðirinn tekið við stjórninni i bili. Sáum við nú, að einhver í landi veifaði eins og við ættum að róa vestur eftir, en þangað fýsti okk- ur ekki, þvi einnig þar voru sker og grynningar. Við biðum þvi átekta. Að litilli stundu liðinni sáum við að mannfjöldinn í landi tók að setja skip eftir 'snjónum og stefndu því vestur landið, vestur fyrir Nes. Þóttust liinir vitrari þá sjá, að einhver ráð kynni Páll í Nesi, og mundi hann ætla að koma lit og leiðbeina okkur inn í vör. Hann var gamall maður og hinn mesti sjógarpur. Áfram brunaði fleytan á sjónum, en við á Von andæfðum og fylgdumst með öllu, sem gerðist i landi. Sáum við, að stefnt var vestur í áltina til Strandar, og er þangað vestur undir kom, var ýtt niður að sjó. Litlu síðar sásl skipið skríða út á milli skerjanna undir árum þeirra Selvogsmanna. Það birti í hugum okkar unglinganna, er mál- um hafði skipazt á þennan veg, því einhvernveg- inn fannst okkur glansinn vera farinn að fara af þessari miklu sjóferð, sem ætlaði að enda á allt annan veg en við höfðum gjört ráð fyrir. Og mikill lilaut sá Páll í Nesi að vera, sem færði skip um langa vegu jafnt á landi sem sjó. Við rerum nú í áttina til þeirra Selvogsmanna og var með okkur fagnaðarfundur. Páll í Nesi kom yfirum lil okkar og tók við stjórn, en eg, sent var yngstur, var látinn hvílast og hreiðrað um mig milli koffortanna og pokanna í skipinu. Var nú haldið inn Strandarsund. Þar var ládeyða í suð- austan, að þeir sögðu, en með öllu ófært inn Nesmegin, eins og þeir orðuðu ]>að. Er inn i Vör kom, var borið af skipinu i skyndi og tók það stuttan tíma, því að margar liendur hjálpuðust þar að verki. Síðan var skipunum brýnt, en að því búnu haldið heim að Nesi með Páli bónda. Sjóðheit ketsúpa beið okkar þar og þarf ekki frá að segja, hver afdrif hennar urðu. Er við höfðum etið okkur metta, kom inn til okkar lílil stúlka og tók sér stöðu við hlið Páls. Það var dóttir hans, unglingur að aldri. „Jæja, Stina min, þá sérðu nú mennina alla lifandi,“ sagði Páll og klappaði á kinn litlu stúlkunnar, cn hún leil upp og brosti sínu hýra og barnslega brosi og
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.