Sjómaðurinn - 01.12.1943, Page 38

Sjómaðurinn - 01.12.1943, Page 38
20 SJÓMAÐURINN ing meðal sjómanna en aðra, þar eð ég hafði það á liendi frá hálfu Lefoliisverzlunar á Eyrarbakka, að miðla þeim ^alti og ýmiskonar vörum öðrum. Þá varð ég og lil þess, að setja á stofn hinn svonefnda „Sjómannaskóla Ár- nessýslu“, er siarfaði í öllum veiðistöðvun- um, Loftsstöðum, Stokkseyri, Eyrarbakka og Þorlákshöfn, frá 1890 til 1902, og sem ég kenndi við (á Stokkseyri) öll þessi ár. Mér var þvi kunn- ugra um hátlu þeirra og siðu frekar en flestum öðrum, en l'rá veiðistöðinni Stokkseyri einni gengu þá flestöll árin 45—48 skip, með 12—16 manna áhöfn hvert þeirra, enda voru þau flest 10 eða 12 róin. Segja mátti, að sérhver skipshöfn væri „heim- ili“ út af fyrir sig, og að þar ríkti eining og frið- ur, saméiginlegur áhugi fyrir því, að láta sem allra mest gotl af sér leiða, hvert innan sinna vé- banda, enda voru þar margir duglegir og góðir drengir, sívinnandi, hirðusamir og ótrauðir til áræðis við hinn jörmuneflda Ægi og hina brimi- sollnu strönd Suðurlandsundirlendisins. Þar átti margur unglingurinn kost á, þólt eigi væri hann hár í lofti, að neyta kraftá sinna, togna við árjna, draga þunga sljóra og línur með fisk á hverju járni og siðan að hefja lúabarning móti slraumi og vindí, en þá var straUmurinn oft svo þungur í Súridunum, að þótt róiriri væri lífróður, steinmárkáði ekki, fyrri en sjóirnir riðu updir skipið og fléyttu þvi áfram, oft með rniklum hraða yfir á næsla ölduhrýgg. Betri „skóla“ get ég eigi hugsað inér fyrir ung- linga cn þann, áð hafa átt eða mega eiga við erf- iðleika þá, sem þarna voru oftast fyrir hendi, og sigrazt á þeinn Þar lærðu þeir að „gá til veðurs“, Velja sjó ög verjast ýmsum áföllum; þeir voru glaðir og gunn- reifir, á hverju sem gekk, enda munu margir þeirra eiga bjartar og góðar endurminningar að geyma i hugum sinum frá þeim tímuiri, en þó eink- um féiagslífi þeirra og framtakssömum athöfnum. Svo eigi sé sumnrdagsveizlunni gleymt með öllu né henni nein frel ari skil gerð, verður hér aðeins vikið að einni þeirra. Hinar voru henni að ýmsu leyíi 'S’ ar. e” ■ • va» '••• l':ð , ;v um óhapps við undirbúning ’ ennar og aðdraganda. Eormað: ”inr. r aldraðúr maður, gætinn og rcyn. r vómrð r, en sérkennilegur nokkuð og stirð c! r v'ð , enda mikið fyrir það gefinn. Hrr I .!nrr sctar hans voru einnig rosknir mer gr ' r • r 'árnum, nema einn, er Snæ- h’( r ’’ét, ( ávallt var Snæsi nefndur. Ilann var kominn þrem eða fjórum árum fram yfir tekt. Fáir vissu um afl hans, en engum duldist, þeim, er hann leit, að þar var karl með nokkurs við undirbúning hennar og aðdraganda. krafta í kögglum, sennilega á við tvo eða þrjá meðalmenn. Snæsi var gæflyndur, lat- ur, sjóhræddur ,og seinn til verka, en fengi hann báðar varir fullar af skorriu rjóli og tóbakstölu svo væna í munninn, að liún fyllti vel úl í munnholið allt, og auk þess nægiega mikið í sig og á af brennivíni, var bann liðsmaður góður til allra verka og leið þá vel. Hann var bolvaxinn, búkgildur og svo vöðvamikill á höndum og fótum, að naumast varð séð, að þar væri nein liðamót á; hann var sannnefnt drekamenni, enda rúmar þrjár álnir á hæð. Sæi maður Snæsa álengdar nokkuð, en þó eigi fjarri, var andlit hans á að líta sem tungl í fyllingu og skein nautnafýsnin út úr því: Augun voru hvítgrá og sífellt vot, nefið eldrautt og varir hans þykkar, með biksvörtu flóðfari allt í kring af tóbakslegi þeim, er rann úr munni lians og nefi niður á brjóstið. Snæsi var skegglaus með öllu og á smctli lians stirndi jafrian sem nýsoðinn grjúpán, feitan og vel reyktan; þrátt fyrir þelta útlit lians var hann alls eigi ógeðslegur, því meinleysið, rólyndið og góðvildin skein úr augúm hans, enda þótli öllum vænt um hanri. Sjaldan mun Snæsi hafa reiðst eða skift skapi við neinn, nema ef vera kynrii, að sigið hafi í hann, er hann sá, að hann fengi eigi nolið jalnréttis við aðra í almennum viðskiftum þeirra við hann, og þá einkum „i útdeilingu hinna æðstu gæða“, er liann vissi, að honuín og þeim höfðu hlotnazt af sjálfri forsjóriinni; vildi hann þá hafa mat sirin og engar refjar, enda gat hverskonar mísrétti i þvi efni valdið því, að harin tæki þá til sinna ráða, beitti hnefanum eða hvinnsku nokkurri, sem honum var þó hvorki ásköpuð né eðlileg. Snæsi var „landmaður“ hjá Jónasi formanni: Bar upj) allan aflann, þrammaði þungan sandinn, langan veg og hrattan, með þrjátíu Bakka-ýsur í bak og fyrir í byrðaról sinni og ]>orska tvo eða þrjá í hvorri hendi, eftir ])ví sem fingur hans náðu til undir kverksigum og tálknum fiskanna. Þótt aðr- ir, fullvaxnir menn léti oftast aðra menn lyfta á sig byrðum sinúm, 10 eða 20 fiskum, lét Snæsi sig það aldrei henda, heldur lyfti hanri á sig byrði sinni sjálfur, ])ótt stór væri, sem skjaíta einum, enda rúmaðist aldrei meira á herðum lians og öxlum en hann bar og á þeim toldi. Snæsi var ávalt búinn að bera aflann á skifti- völl, er aðrir félagar lians komu að, og þótt hann

x

Sjómaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.