Viðar - 01.01.1942, Síða 88
86
EIÐASKÓLI
[Viðar
Skíðanámskeið var og haldið báða veturna. Kennari var Björn Jóns-
son úr Seyðisfirði. Áhugi fyrir skíðaíþróttinni fer mjög í vöxt.
Fyrirlestrar.
Skólastjóri flutti venjulega eitt erindi vikulega fyrir nemendur
beggja deilda sameiginlega. Voru erindi þessi flest uppeldislegs eðlis.
Þá flutti hann og Þóroddur Guðmundsson nokkur erindi sögulegs og
náttúrufræðilegs efnis í b. d., tengd lestri viðkomandi námsgreina.
Þórarinn Sveinsson flutti 2 erindi fyrir báðum deildum sameiginlega
um olympisku leikina í Berlín 1936.
Nokkrir fyrirlesarar heimsóttu skólann. Veturinn 1939—40 (10. febr.)
flutti Pétur Sigurðsson erindreki erindi um bindindismál. Þann vetur
heimsóttu og skólann 2 ráðunautar Búnaðarfél. íslands og fluttu sitt
erindið hvor. Pálmi Einarsson um félagssamtök bænda og dr. Halldór
Pálsson um skólalíf í enskum skólum og aðstöðu íslenzkra æsku-
manna til þess að afla sér menntunar. Síðar þennan sama vetur
dvaldi tékkneskur stúdent, Vorovka að nafni, vikutíma í skólanum og
flutti 7 erindi um tékkneska og slafneska menningu.
Próf.
Miðsvetrarpróf var þreytt báða veturna að afloknu jólaleyfi. Vor-
prófum luku allir nemendur nema fyrra árið urðu 3 nemendur úr
eldri deild og einn úr yngri deild að hverfa heim, sumpart vegna
atvinnu sinnar, sumpart vegna veikinda vandamanna. Síðara árið fór
einn nemandi eldri deildar til Akureyrar og settist í Menntaskólann.
Tveir nemendur yngri deildar stóðust ekki próf.
Samkvæmt fyrirmælum kennslumálaráðuneytisins, gerðum í sparn-
aðarskyni fyrir nokkrum árum, dæmdu kennararnir hver hjá öðrum.
Svo sem fyr getur, var piltum gefin einkunn fyrir tómstundavinnu,
bæði fyrir afköst og vandvirkni. Þessir nemendur hlutu hæstar
einkunnir: í eldri deild: Guðmundur Bjömsson, Sigurður Karlsson
og Baldur Gunnarsson. í yngri deild: Eyjólfur Jónsson, Stefán Guð-
mundsson, Þórður Snjólfsson, allir þrír jafnir.
Sjóðir.
Skólinn á þrjá sjóði, sem ætlaðir eru til styrktar fátækum nem-
endum, efnilegum. StyrktarsjóSur P. Hansens. Sjóður þessi er nú kr.
1912,83 og ávaxtast í Söfnunarsjóði íslands. Til sjóðs þessa' er stofnað
1916 af dönskum bónda, P. Hansen að nafni. Stofnféð eru peningar,
lánaðir Benedikt G. Blöndal kennara, er hann var við nám úti í
Danmörku. Sjóð þennan má ekki skerða, fyr en ársvextir hans nema
125,00 krónum.