Viðar - 01.01.1942, Blaðsíða 107
Viðar]
LAUGARVATNSSKÓLX
105
var og gerð grein fyrir hollustuháttum, sem sjálfsagt er, að allir
ræki og ýmsum venjum, sem ber að varast.
Eðlisfrœði. Eldri deiltl, Ein stund á viku. Kennslan fór fram að
mestu leyti i fyrirlestrum og tilraunum.
Bókfœrsla. Eldri deild. Ein st. á viku. Ekki var stuðzt við neina á-
kveðna bók. Kennd tvöföld bókfærsla, ameríska kerfið.
Reikningur. Eldri deild. Þrjár st. á viku. Kennd var reikningsbók
Dr. Ólafs Daníelssonar að „Ýmis dæmi“. Jöfnum var að mestu sleppt.
Mörgum dæmum bætt við. Gefin voru heimadæmi einu sinni í viku.
— Yngri deild. Þrjár st. á viku. Lesin sama bók og að „Jöfnur".
Mörgum dæmum bætt við, einkum úr dæmasafni Guðmundar Arn-
laugssonar og Þorsteins Egilssonar. Heimadæmi einu sinni í viku.
Félagsfrœði. Yngri deill. Lesin var Þjóðskipulagsfræði íslendinga
eftir Benedikt Björnsson. Auk þess var stuðzt við ritið íslenzkir sam-
vinnumenn eftir Jónas Jónsson, hagfræði eftir Gide og fl. bækur.
Grasafrœði. Yngri deild. Kennt var í fyrirlestrum. Var farið yfir
hið helzta af efni kennslubókar Stefáns Stefánssonar aftur að ætt-
lýsingum. Margir nemenda höfðu bókina og lásu hana. Veggmyndir
og þurrkaðar plöntur voru hafðar við kennsluna.
Söngur. í eldri deild var kennd sönglistarsaga eina st. vikulega.
í þessum timum voru rakin helztu æfiatriði merkra tón-
listarmanna, rætt um nokkur tónverk þeirra og skýrð afrek þeirra
og áhrif á þróunarferil tónlistarinnar. Tóku nemendur vorpróf í
þessari grein eins og að undanförnu. Nemendur skrifa sér til minn-
is helztu atriði úr frásögn kennarans, en engin sérstök bók er notuð
við námið. — í yngri deild var kennd söngfræði eina stund viku-
lega. Allir söngnemar y. d. námu söngfræði og tóku vorpróf í henni.
Stuðzt var við söngvasafnið Ljóð og lög í þessum tímum og við
sömu bók við aðalsöngnámið. Nokkrum hluta söngfræðitimanna var
varið til söngiðkana. Oftast var þá sungið affeins einraddað og lögin
tengd vissum atriðum söngfræðinnar til skýringar og skilningsauka
á námsefninu. Auk þessa var varið alls niu kl.st. vikulega til söng-
náms í skólanum. Tíminn skiptist þannig niður: Stúlkur y. og e. d.
saman þrjár stundir vikulega, piltar beggja deilda aðrar þrjár st.,
sameiginlegir tímar allra söngnema þrjár st. — Stúlkur sungu lítils-
háttar í kvennakóri (með þremur röddum), og piltar sungu nokkur
lög i karlakóri (fjórraddað). — En mest stund var lögð á fjórradd-
aðan söng ósamkynja radda og þá þætti söngnámsins, sem nauð-
synlegir eru til þess, að kórsöngur geti talizt boðlegur. — Mjög mikil
áherzla var lögð á að kenna nemendum skýran og samræmdan
framburð, svo og helztu undirstöðuatriði í réttri tónmyndun. — Lærð
voru í skólanum fjörutíu sönglög. Rætt var við nemendur efni ljóð-
anna og skýrð torskilin orð, sem fyrir komu i þeim. í fræðum þeim,