Viðar - 01.01.1942, Page 92
90
EIÐASKÓLI
[Viðar
hana bæði árin. Nemendur skiptust á að vera í borðstofu og eldhúsi.
Þeir sáu og um ræstingu alla á skólanum. Heilsufar var yfirleitt gott,
þó bar nokkuð á graftarsótt fyrri veturinn, síðari veturinn bárust
rauðir hundar, en ollu engum óskunda. Sjúkrasamlag nemanda
starfaði bæði árin. Síðari veturinn naut það styrks samkvæmt sjúkra-
tryggingarlögum.
Ýmislegt.
Bæði haustin fóru nemendur og kennarar á grasafjall. Þeir söfnuðu
birkifræi í Eiðaskógi og sáðu. Má þegar sjá árangur af sáningunni.
Sáð birkifrœi haustiö 1940.
Æfingar í slysavörnum, einkum bruna, fóru fram bæði árin. í febrúar
1940 gengu 20 nemendur og kennarar á Skýhnjúk. flestir á skíðum.
Skólaslit. Bæði árin var skólaslitið sunnudaginn fyrstan í sumri.
Sýnd var handavinna nemenda, skólastjóri hélt ræðu, og nemendur
sungu. Seinna árið var almenn skemmtisamkoma í sambandi við skóla-
slitin, sem áður getur.
Framkvœmdir o. fl. Þórarinn Sveinsson kennari byggði sér hús
sumarið 1939. Stendur það gengt skólanum utanverðum, vestan í
hólnum. Nú er í ráði, að ríkið kaupi hús þetta fyrir kennarabústað.
Aðra íbúð handa kennara er verið að útbúa á neðri hæð hússins.
í fyrrasumar var gerður nýr vegur heim að skólanum. Gerðu hann
Eiðamenn á vinnudegi Eiðamóts. — Síðastliðið vor var sléttuð og þakin
flöt fyrir austan skólahúsið og komið upp visi að skrúðgarði, sunnan
við það. Gunnar bóndi Sigurðsson í Beinárgerði gaf 40 reyniplöntur
og og Þórhallur Jónasson, Breiöavaði, gaf 60 víðiplöntur til gróður-