Viðar - 01.01.1942, Page 93
Viðar]
EIÐASKÓLI
91
setningar í garðinn. Kann skól-
inn þeim beztu þakkir fyrir
hugulsemina.
Nú í haust er unnið að því að
setja kvist á fjósloftið og búa
út vinnustofu handa piltum.
Verkinu er enn ekki lokið, en
fullyrða má, að endurbætur
þessar séu hinar nauðsynlegustu,
af því að húsnæði það, sem
notað var til smíða, var lítt við
unandi. Nokkur von er til þess,
að sundlaugin og fimleikasalur-
inn verði fullgjör á næsta sumri.
Skóginum fer prýðilega fram. Nú
þarf enga draumóramenn leng-
ur til að trúa því, að skógur
geti að nýju vaxið allt að hús-
unum heim að Eiðum. Sáð birkifrœi, haustið 1940
Eiðamenn.
Hér er framhald Eiðamanna-annáls. (Sjá III. árg. Viðars bls. 148—151.
1924—1925.
Anna B. Jónsdóttir var um tíma sjúklingur á Seyðisfirði, mun vera
til heimilis að Skeggjastöðum.
Ari Ásmundsson dó nokkru síðar.
Eiríkur Jón ísfeld Kristjánsson tók stúdentspróf frá M. A., síðar kenn-
arapróf, les nú í guðfræðideild Háskólans.
Eiríkur Pétursson býr í Bót, kvæntur.
Eiríkur Stefánsson stundaði lengi búskap og kennslu í Eyjafirði, hætti
síðan búskap og tók kennarapróf.
Haraldur Jónsson er sjómaður i Rvík., ókvæntur; var einn af báts-
verjum á vélbátnum Kristjáni, sem lenti í mestum hrakningunum
í fyrravetur.
Helgi Þórir Ólafsson var sjúklingur á Vífilsstöðum um tíma, en nú
er oss ókunnugt um hann.
Hermann Hermannsson hefur rekið gistihús á Seyðisfirði.
Jón E. Jóhannsson býr í Fagradal á Fjöllum.
Kristján Halldórsson mun búa í æskuhéraði sínu.
Magnús Friðriksson er dáinn.
Sigfús Guttormsson býr að Krossi í Fellum, kvæntur.