Viðar - 01.01.1942, Side 127
Viðar]
LAUGASKÓLI
125
Þ. 23. marz drukknaði í sundlauginni Davíð Björn sonur Bergþóru
Davíðsdóttur og Þorgeirs Sveinbjarnarsonar, tápmikið barn og væn-
legt á 2. ári.
Stjórn skólans og starfslið.
Skólaráð skipuðu Tryggvi Sigtryggsson, Laugabóli, (formaður),
Kristján Sigurðsson, Halldórsstöðum, (féhirðir), séra Hermarm
Hjartarson, Skútustöðum, Þorgeir Jakobsson, Brúum og Páll H.
Jónsson, Laugum.
Skólastjóri var Leifur Ásgeirsson. Aðrir kennarar voru Konráð Er-
lendsson, Þórhallur Björnsson, Þorgeir Sveinbjarnarson, Páll H. Jóns-
son, Áskell Jónsson, Hrefna Kolbeinsdóttir, Bergþóra Davíðsdóttir og
Ásgrímur Kristjánsson.
Hafði um sinn verið í ráði, að Páll H. Jónsson hyrfi frá skólanum
að öðru starfi, og var þá Áskell Jónsson ráðinn til að annast söng-
kennslu og jafnframt brytastörf, en hvorttveggja hafði hann haft á
hendi við Reykjaskóla að undanförnu.
Ásgrimur Kristjánsson frá Siglufirði þykir mjög vel fær skíða-
maður og kenndi þá íþrótt sína, jafnframt því sem hann var nemandi
í yngri deild.
Fanney Sigtryggsdóttir frá Stóru-Reykjum hafði umsjón með og
vann að ræstingu skólahúsanna og þjónustu nemenda. Stefanía Sig-
urgeirsdóttir var ráðskona mötuneytisins. Umsjónarmenn voru Gísli
Sigurtryggvason og Jón Pálmason. Hringjarar voru Þráinn Þórisson
og Oddbergur Eiriksson.
Tilhögun náms og kennslu.
Hún var mjög lík og undanfarna vetur. Bókleg kennsla fór fram mest
með viðtali og yfirheyrslum og skriflegum æfingum. Nám var bundið
að mestu, nema að nokkru í smd., með mjög litlum undanþágum. Frjáls
var þátttaka í ensku. Piltar í y. d. fengu að velja milli teikningar og
söngfræði; var sú tilhögun höfð vegna þess, hve mjög var skipað á dag
hvern yfirleitt. Stúlkum var í hvorugri þeirri grein ætluð þátttaka
vegna þess, hve verklegt nám var tímafrekara hjá þeim en piltum. Um
20 nemendur tóku ekki þátt í söng. Haft var í einni kennslustofu eftir-
lit með lestrarnæði 2—3 st. á dag, og nutu þess þeir nemendur, er vildu.
Kennslan skiptist þannig á kennarana (vikulegur kennsiustunda
fjöldi skv. stundaskrá sýndur í svigum):
Leifur Ásgeirsson kenndi réttritun og málfræði í y. d. A (3) og e. d.
(3), ritgerð í e. d. (1), reikning í y. d. B (4) og e. d. (4), mannkynssögu
í e. d. (2), eðlisfræði í e. d. (4), ensku í byrjendaflokki (3) og las forn-
bókmenntir með b. d. (2+2).