Bankablaðið - 01.12.1944, Qupperneq 28
40
BANKABLAÐIÐ
miðstöð í víðri veröld og hefur hvað eftir
annað sýnt það og sannað, að hann skipar
sess sinn með særnd og rækir forustuhlut-
verk sitt þann veg, að til mikils farnaðar
hefur orðið fyrir Bretland og brezku þjóð-
ina. Hann hefur verið og er sú brjóstvörn
Bretlands, sem flestar og stærstar bylgjur
fjármálanna og viðskiptanna hafa brotnað
á. Og hann hefur staðið j>ann straum af
sér með einstakri prýði.
Ef til vill hefur })ó þróun Englandsbanka
aldrei verið stórfelldari en á þessari öld og
raunar þessum árum. Valda því fyrst og
fremst heimsstyrjaldirnar tvær, sem geis-
að liafa á fjórðungi aldar, hvor annari
ógnlegri og umfangsmeiri. Aldrei hefur
fjármálastefna stjórnarinnar á Bretlandi
skipt eins rniklu máli fyrir hvern einstakan
borgara landsins og einmitt Jsessi styrjald-
arár. Og Englandsbanki hefur eigi aðeins
verið sá aðili, sem stjórnin hefur miðað
fjármálastefnu sína við að jiví leyti, að úr
fjárhirzlum bankans er jsað fé komið, sem
varið hefur verið til hinna hrikalegu liern-
aðarútgjalda. Englandsbanki hefur og lagt
frani j:>á ráðunauta, sem ríkisstjórnin hefur
allajafna leitað til, þegar um fjármál og
viðskipti hefur verið að ræða. Englands-
banki á eigi aðeins mikinn og merkan jaátt
í því, að Bretland hefur getið sér slíkan
orðstír í raun tveggja heimsstyrjalda. Hann
á jafnframt mikinn jiátt og rnerkan í því,
að jjjóðir jsær, sem háð hafa styrjaldir þess-
ar og barizt fyrir mannréttindum og frelsi,
eiga sér sigurvonir í jjcirri hinni ægilegu
risaglímu. Hann er miðstöð bankastarfsem-
innar á Englandi. Áhrifa hans hefur fyrst
og fremst gætt Jaar í landi. En jafnframt
hefur áhrifa hans gætt meira eða minna
um allan lieim. Þau áhrif hafa oft valdið
deilum og margvíslegum átökum. En þó
mundi margt öðru vísi en nú er, ef hans
hefði ekki notið. England hefur lagt af
mörkum slíkan skerf á vettvangi styrjald-
anna, að firnum sætir. Og Bretland hefur
verið forustujijóð eigi síður á dögum frið-
arins en hinna grimmilegu hildarleikja. —
Til Bretlands sóttu smájtjóðirnar hjálp og
styrk til þess að forða atvinnulíf sitt hruni
og grandi. Til Bretlands liafa fjölmargar
þjóðir lieims og sótt hjálp og styrk til þess
að heyja hildarleik við grimman og voldug-
an óvin, sem hugðist fella ok sitt á háls
þeim og gera frjálsborna menn að þrælum
sínum.
Aðseturstaður bankans að Threedneedle
Street hefur að vonum tekið miklum
breytingum frá því að bankinn tók sér þar
bólfestu fyrst. Bankinn festi kaup á stærri
lóð árið 1760 og lét reisa nýja stórbyggingu.
En þegar viðskipti bankans ukust enn að
hinum rnikla mun og starfsmannaliði bank-
ans fjölgaði, svo að talizt hefði til ólíkinda
árið 1760, var nauðsynlegt að stækka bygg-
ingu bankans enn að verulegum mun. Sá,
sem liafði á hendi yfirstjórn endurskipu-
lagningar og viðbótarbyggingar bankans,
þegar hér var komið sögu, hét Sir John
Soane, og getur að líta myndastyttu af hon-
um í anddyri hins nýja bankahúss. Árið
1926 var svo hafizt handa að nýju um
endurbyggingu bankahússins undir yfir-
stjórn Sir Herbert Baker og var ])ví verki
endanlega lokið skömmu fyrir tvö hundruð
og fimmtíu ára afmæli bankans í ár. Eins
og áður hefur verið tekið fram, starfa nú
meira en fjórar þúsundir nianna í jtjónustu
bankans og tveir af hverjum þrem þessara
starfsmanna hans búa í hinni nýju bygg-
ingu, sem er eitthvert glæsilegasta mann-
virki Lundúnaborgar. Meðan loftsóknin
gegn höfuðborg Englands var hörðust, var
bankahúsið hæft þungri sprengju, en
skemmdir af völdum hennar urðu Htt telj-
andi. Er það von allra hinna fjölmörgu
unnenda Englandsbanka, að hið glæsilega