Bankablaðið - 01.12.1977, Síða 5
í byrjun september var skipuð verkfallsnefnd
SÍB og þá var farið að ræða í alvöru um verk-
fallsboðun bankamanna, því nauðsynlegt þótti
að rjúfa þá kyrrstöðu og reyndar sjálfheldu,
sem samningamálin voru komin í.
Verkfall boðað 26. október.
Á fundi stjórnar SIB, varastjórnar og for-
manna starfsmannafélaganna, sem haldinn var
3. október sl., var samþykkt einróma að boða
til verkfalls frá og með 26. okt. I rökstuðningi
fyrir þessari ákvörðun, var m. a. bent á, að
hálft ár væri liðið frá því að SIB sagði upp
kjarasamningum, án þess að teljandi árangur
hefði náðst í samningaviðræðum. Bankarnir
væru ekki enn til viðræðu um launaliði samn-
inganna, hinar beinu launahækkanir, eða yfir-
leitt nokkuð, sem valdið gæti útgjaldaaukningu
að marki.
Kom nú nokkur skriður á samningaviðræð-
urnar, án þess þó, að grundvöllur fengist að
nýjum kjarasamningi. Bankarnir töldu m. a.
mjög óhægt um vik að semja, á sama tíma og
verkfall BSRB var yfirvofandi eða stóð yfir.
Verkfalli SÍB frestað til 8. nóvember. —
Samningar takast.
Á fundi stjórnar, varastjórnar og formanna
starfsmannafélaganna, sem haldinn var 17.
október sl., var tekin ákvörðun um frestun
verkfallsaðgerða af hálfu SIB til 8. nóvember.
Forsendur þessarar ákvörðunar voru m. a. þær,
að sáttasemjari hefði orðið að leggja fram sátta-
tillögu, sem allsherjaratkvæðagreiðsla skyldi
fara fram um. Verkfall BSRB stóð þá yfir, og
algjör óvissa ríkti því varðandi póstsendingar,
samgöngur o. fl., og var því talið útilokað, að
fram gæti farið nauðsynleg kynning á sátta-
tillögunni, áður en atkvæðagreiðsla færi fram.
Þá var á það bent, að ekki væri enn full-
reynt, hvort samningar mættu takast, án þess
að til verkfallsaðgerða þyrfti að koma.
Eftir að samkomulag hafði náðst í kjaradeilu
BSRB og ríkisins skýrðust línur að sjálfsögðu
verulega. Lokasprettur samningaviðræðna hófst
um miðjan dag þann 27. október og stóð
sleitulítið til sunnudagskvölds 30. október,
en þá náðist samkomulag um meginatriði samn-
inganna. Allmikil vinna var þó eftir, við frá-
gang og voru samningarnir undirritaðir þann
1. nóvember, eins og áður segir.
Samningar undirritaðir. Björgvin Vilmundarson, formaður samninganefndar bankanna og Sólon R. Sigurðsson,
formaður samninganefndar Sambands íslenskra bankamanna.
BANKABLAÐIÐ S