Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 8
við starf í banka (eða sparisjóði). Tekið skal
sérstaklega fram, að aðrar greiðslur, sem miðast
við föst mánaðarlaun, hækka í samræmi við
þessar hækkanir t. d. yfirvinnukaup.
Verðlagsbætur (gr. 1.3.).
Verðlagsbætur eru hinar sömu og samkvæmt
kjarasamningi BSRB. 1. september sl. var
greidd 4% verðbót á launin og verðbótin 1.
desember var 9,63%.
Álagsgreiðslur — Vaktaálag (gr. 1.5.).
Peir sem vinna vaktavinnu á tímabilinu frá
kl. 24.—09 fá nú 45% vaktaálag á þeim tíma
í stað 33Vi% áður. Vaktaálag á stórhátíðum
verður 90%, en um vaktir á stórhátíðum
verður að semja sérstaklega við viðkomandi
starfsmannafélag skv. gr. 2.6.5. Álagið miðast
við launaflokk 7., 2. þrep, en var áður 6. fl.
3. þrep.
Röðun starfsheita í launaflokka (gr.
1.6.).
Röðun starfsheita í launaflokka er í aðal-
atriðum hin sama og áður var. Tvö ný starfs-
heiti koma þó víð sögu, þ. e. gagnaritarar og
tölvustjórar. Þá geta verðir tekið laun sam-
kvæmt 7. launaflokki, en þeirra var áður
aðeins getið í 5. flokki. Kvöld- og næturverðir
fá hins vegar ekki sérstakt vaktaálag. Einka-
ritarar geta tekið laun samkvæmt 9. launa-
flokki, en hámarksflokkur þeirra var 8. launa-
flokkur áður. í 12. flokki er einnig að finna
nýtt starfsheiti, þ. e. aðstoðarmenn banka-
stjórna.
Lágmarksútkall í yfirvinnu (gr. 2.3.4.).
Sé starfsmaður kallaður út til vinnu á laug-
ardögum, sunnudögum og sérstökum frídög-
um, fær hann greitt yfirvinnukaup a. m. k.
í 5 klst. (var áður 3 klst.). Þetta gildir þó ekki,
ef reglulegur vinnutími hans hefst innan 5
klst. frá því að hann fór til vinnu.
Yfirvinna starfsmanna í hlutastarfi (gr.
2.3.5.—2.3.7.).
Nokkuð algengt er, að starfsmenn séu ráðnir
tíl að gegna hluta úr fullu starfi. Fvrir getur
komið, að þeir séu kallaðir til vinnu utan
umsamins vinnutíma síns, t. d. ef starfsmaður,
sem ráðinn er frá kl. 09.00—12.30, er beðinn
um að mæta til vinnu eftir hádegi. I slíkum
tilfellum ber að greiða yfirvinnu vegna útkalls-
ins. Ef þessi vfirvinna verður hins vegar reglu-
leg og stendur í einn mánuð eða lengur, er
greitt dagvinnukaup, allt að fullri vinnuskyldu.
Almenna reglan er því sú, að sé starfsmaður,
sem gegnir hluta úr föstu starfi kallaður út til
vinnu utan fasts vinnutíma síns, skal greiða
yfirvinnukaup.
Talrting atkvæða.
8 BANKABLAÐIÐ