Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 15

Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 15
að segja, að áður voru líflegri fundir og meira fræðslustarf. Jólavakan var stór liður í félags- lífinu, meðan hún var haldin í fundarsalnum, sem tvo mánuði tók að skreyta fyrir samkom- una. Skemmtifundir voru haldnir einu sinni í mánuði, a. m. k. á veturna, og voru þeir vel og almennt sóttir. Á félagsfundum var oft heitt í kolunum og hart barizt í kosningum, enda alltaf húsfyllir á aðalfundum. Þá starfaði fé- lagið meira að launamálum, en sambandið kom þar hvergi nærri, heldur var nánast eins konar skemmtiklúbbur. Hér áður fyrr var engin launareglugerð til, nema í Landsbankanum og Búnaðarbankanum. Engar upplýsingar fengust um launamál í Út- vegsbankanum, og þeir vildu ekkert samstarf fyrst í stað, héldu að þeir myndu lækka í launum við það. Samið var því við bankana hvern í sínu lagi, en fyrsta sameiginlega launa- reglugerðin leit ekki dagsins ljós fyrr en eftir 1940. Samstarf okkar við bankastjórnina var hins vegar ávallt mjög gott. Einvarður Hall- varðsson átti þar mikinn hlut að máli, en við unnum saman í fjölda mörg ár. Hann var af- bragsmaður í þessum efnum og lagði þeim jafnan lið, sem minna máttu sín. Þegar ég byrjaði í Landsbankanum, var kaup- ið 150 krónur á mánuði og þótti gott. Hins vegar var þá lítið um stöður, flestir voru kall- aðir bankaritarar. Engir aðstoðarfulltrúar voru til, og aðalfulltrúar aðeins í nokkrum deildum. Nú er þetta gjörbreytt. Landsbankinn þótti fremur neikvæður gagnvart starfsmönnum, en hefur á síðari árum breytzt mjög til batnaðar, og er nú til fyrirmyndar. Við höfum líka verið sérlega heppnir með bankastjóra, sem aldrei hafa talið eftir að styrkja félagsmál starfsfólks, einkum fræðslumál, og mörg vandamál verið leyst á þann hátt, að starfsmannafélaginu hefur verið til sóma. Ég held að nýju samningarnir séu mjög góðir. Við höldum öllu, sem við höfum haft, og fáum ýmislegt nýtt. Má þar nefna starfsaldurs- uppbótina og hærri orlofsgreiðslu. Þetta eru góðir samningar að mínu mati, og bankamenn svndu stjórn SÍB mikið traust með því að sam- þykkja þá nær einróma. Það er ágætt dæmi um félagsþroska að nota ekki verkfallsréttinn að þessu sinni, þó að gott og sjálfsagt sé, að hafa þetta vopn í baráttunni. Það hefur verið mér ánægja að vasast Jí félagsmálum öll þessi ár. Maður hefur kynnzt mörgum góðum mönnum innan bankans og utan. Oft hafa náðst skemmtilegir áfangar, þó að sigrar hafi ekki alltaf unnizt. Laugardags- lokunin er einn merkasti áfanginn, sem náðst hefur, enda tók ein 4—5 ár að koma því máli í höfn. Fyrst var um að ræða skiptivinnu á laugardögum, síðan lokað í einn mánuð að mig minnir, þar næst 2—3 mánuði og loks alveg. LFndanfari þessarar baráttu var að fá fram lokun laugardaginn fyrir páska, en það er önnur og eldri saga. Það er erfitt að svara því, hver ættu að vera næstu hagsmunamál, sem bankamenn eiga að berjast fyrir, því að hugsunarháttur fólks hefur breytzt. Ég tel þó, að mynda ætti áhuga- hópa til að vinna að félags- og fræðslustarfi. Það er nauðsynlegt að fólk viti eitthvað um þessi mál, en hugsi ekki eingöngu í krónum. En nú á dögum er þetta talið óþarfi af mörg- um, sem vilja þess í stað láta aðra vinna og hugsa fyrir sig, gegn greiðslu að sjálfsögðu! Að lokum langar mig að minnast á 50 ára afmæli Félags starfsmanna Landsbanka íslands, sem verður í marzbyrjun á næsta ári. Þess þarf að minnast á veglegan hátt. Það á að gefa út myndarlegt afmælisblað og halda mikla skemmtun í því tilefni. Fimmtíu ár er langur tími í félagsmálasögu á íslandi, sem vert er að halda hátíðlegt á eftirminnilegan hátt, segir Bjarni G. Magnússon að síðustu og færist allur í aukana, eins og fyrrum, þegar hann stóð í fremstu víglínu. Bankablaðið færir honum þakkir fyrir fórn- fúst starf í þágu bankamanna um áratuga skeið, og árnar honum heilla í tilefni sextugsafmælis- ins. — a. BANKABLAÐIÐ 15

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.