Bankablaðið - 01.12.1977, Side 23

Bankablaðið - 01.12.1977, Side 23
Frá Starfsmannafélagi Samvinnubanka fslands Árshátíð félagsins var haldin þann 27. nóv- ember 1976 í Lækjarhvammi, Hótel Sögu. Að- sókn hefur aldrei verið meiri, eða alls 165 manns. Skemmtinefnd sá um dagskrá og var m. a. flutt óperan „Jólafundur bankaráðs“, eftir Pálma Gíslason. Var henni mjög vel tekið. Starfsfólk bankans hefur hingað til lagt á sig alla vinnu í sambandi við skemmtiatriði á árs- hátíðum félagsins og virðist ekki áhugi á að breyta því, enda hið heimatilbúna efni ætíð mjög vinsælt. í júnílok í ár var svo farið í hið árlega ferða- lag og að þessu sinni að Húsafelli. Þátttaka var ekki mikil, eða aðeins rúmlega 30 manns. Það fyrirkomulag var haft á eins og síðastliðið ár, að með var haft stórt ,,matartjald“, þar sem allur matur var framreiddur og sá ferða- nefnd um framkvæmd þess og þótti takast vel. Félagar í starfsmannafélaginu hafa á þessu ári ekki tekið þátt í neinum íþróttamótum, en hinsvegar er mikið teflt, spilað og leikinn borð- tennis í tómstundum í aðalbankanum. Nýting á hinu glæsilega sumarhúsi félagsins „Hraunprýði“ við Hreðavatn, hefur verið góð í sumar og nú fer þeim fjölgandi, sem nýta húsið um helgar aðra tíma ársins, enda nóg Úr leikritinu „Rauðhetta", við að vera í þessu fagra umhverfi. Hinsvegar er húsið enn fjárhagslegur baggi á félaginu og stendur starfsemi þess fyrir þrifum á ýmsum öðrum sviðum. Þrír fundir hafa verið haldnir með stjórn- endum bankans frá því í október 1976. Er samstarf hið bezta á þessum fundum og þeir hafa ætíð verið mjög gagnlegir fyrir báða aðila. Auk þess að vera í Sambandi ísl. banka- manna, erum við aðilar að Landsambandi ísl. samvinnustarfsmanna og að félagsheimili sam- vinnumanna, Hamragörðum v/Hávallagötu. Njótum við margs góðs af þessari starfsemi, m. a. möguleikum á tungumála-, fræðslu- og félagsnámskeiðum og þátttöku í ýmsum náms- hópum í Hamragörðum, auk aðgangs að gufu- baði og billjard. Þá hefur Landsambandið stundum skipulagt ódýrar tjaldferðir til Norður- landa, sem hafa verið talsvert notaðar af starfs- fólki bankans og jafnframt stuðlað að auknum tengslum samvinnustarfsmanna á Norðurlönd- um. 17. nóvember var opnað nýtt útibú bankans að Suðurlandsbraut 18, Rvík. og er Pálmi Gíslason forstöðumaður hins nýja útibús. Verða starfsmenn þrír til að byrja með. Lítið hefur verið um aðrar stöðuveitingar og ekki mikil hreyfing á starfsfólki. H. S. Úr óperunni „Jólafundur bankaráðs". BANKABLAÐIÐ 23

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.