Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 30

Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 30
FIMMTÍU ÁRA: HRAFNKATLA EINARSDÓTTIR. Hrafnkatla Einarsdóttir, banka- fulltrúi í afurðalánadeild Lands- bankans varð fimmtíu ára hinn 8. nóvember. Hrafnkatla hefir unnið langt og gott starf í Landsbankan- um, en þar hefir hún unnið frá unga aldri í ýmsum deildum bank- ans. Nú hin síðari ár hefir hún starfað í afurðalánadeild bankans. Hrafnkatla hefir tekið virkan þátt í félagsstarfi FSLÍ og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum við góðan orðstír, m. a. átt sæti í bókasafnsnefnd félagsins og leyst þar gott starf af hendi. SEXTÍU ÁRA: SIGURÐUR P. BJÖRNSSON, útibússtjóri, Húsavík. . li is ■ .J&' - . il j fl Sigurður P. Björnsson, útibús- stjóri á Húsavík varð sextíu ára 1. nóv. s. 1. Silli á langan og far- sælan starfsdag að baki. Starfsvett- vangur hans hefir verið á Húsavík. Starf hans mun lengst af vera tengt Sparisjóði Húsavíkur og útibúi Landsbanka Islands á staðnum. Einnig er þáttur hans í starfi að félagsmálum margvíslegur. Páttur hans í ýmsum framfara- og menn- ingarmálum Húsvíkinga er mikill. Störf Silla að peningamálum á Húsavík eru mikil sem fyrr segir, og tók hann að sér stjórn Spari- sjóðs Húsavíkur og stjórnaði hon- um af framsýni og dugnaði um árabil. Þegar sparisjóðurinn hætti störfum og Landsbanki íslands yfir- tók starfsemina, varð Silli að sjálf- sögðu valinn til bankastjórna- starfa í útibúinu. Par hefir hann stjórnað með ágætum. Allt starf í útibúinu hefir vaxið og allur rekstur er til fyrirmyndar. Nýreist bankahús á Húsavík ber þess ljós- an vott, að þar hafa fyrirhyggju- menn verið að verki. Silli mun þar hafa ráðið miklu og er bankahúsið ljós vottur um mikla framsýni og hæfileika útibússtjórans. Hér hefur ekki verið drepið á hlut Silla í félagsmálum á Húsavík. Par mun hann hafa lagt mikinn og góðan skerf til lausnar vandamál- um. Um árabil var hann einn af forystumönnum í mörgum félögum staðarins. Pað mun ótalinn tíminn, sem hann hefir lagt í margsskonar trúnaðarstörf á Húsavík. FIMMTÍU ÁRA: RAGNHEIÐUR HERMANNSDÓTTIR. Ragnheiður Hermannsdóttir, deildarstjóri í gjaldeyrisdeild Lands- bankans, verður fimmtug 24. des- ember n. k. Ragnheiður hefir starfað um ára- bil í bankanum og hin síðari ár hefir hún verið deildarstjóri í gjald- eyrisdeild bankans. Auk þeirra starfa hefir Ragnheiður tekið virk- an þátt í félagsstarfi FSLÍ og átt þar góðan hlut að lausn mála. Ragnheiður hefir verið margsinnis fulltrúi félagsins á landsfundum bankamanna. Þá hefir hún um ára- bil átt sæti í stjórn Náms- og kynnisfararsjóðs FSLÍ. 1 starfi er Ragnheiður rösk og ákveðin og vill hvers manns vanda leysa á sem beztan hátt. SEXTÍU OG FIMM ÁRA: GUÐMUNDUR GUÐJÓNSSON Guðmundur Guðjónsson, bif- reiðarstjóri í Landsbanka íslands, varð sextíu og fimm ára 19. desem- ber s. 1. Guðmundur réðist til starfa við Austurbæjarútibú Landsbanka Is- lands fyrir nokkrum árum. Starf hans hefir verið bifreiðastjórastörf og þjónusta við öll útibú bankans á Reykjavíkursvæðinu. Starf þetta krefst trúnaðar og trausts, sem Guðmundur hefir skil- að með mikilli prýði. Pað munu þeir, sem til þekkja hér í umferðar- málum bezt þekkja, að góð lund og nákvæmni þarf að prýða þann, sem á að annast slíka þjónustu, sem hér um ræðir. Pá framkomu hefir Guðmundur í góðu lapi. BGM. 30 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.