Bankablaðið - 01.12.1977, Page 33
Einn veigamesti þátturinn í starf-
semi trúnaðarmanna er að fylgjast
með framkvæmd kjarasamninga og
vera samstarfsmönnum sínum til
trausts og halds um hvaðeina sem
varðar kjör þeirra og réttindi á
vinnustaðnum. Á námskeiðunum
er því lögð megináhersla á kjara-
samningana, skýringu þeirra og
túlkun.
Gert er ráð fyrir að 15 trúnaðar-
menn sæki hvert námskeið, sem
stendur yfir í 1 dag. Þátttaka úti
á landi takmarkast að sjálfsögðu
við fjölda trúnaðarmanna á staðn-
um og nágrannabyggðarlaga.
Eftir áramót verður þessum
námskeiðum fram haldið, bæði í
Reykjavík og úti á landi.
Ráðstefna fyrir formenn og
stjórnarmenn starfsmannafélaganna
verður haldin í Reykjavík í jan. nk.
þar sem fjallað verður um einstök
ákvæði kjarasamninganna og fram-
kvæmd þeirra. Megintilgangur þess-
arar ráðstefnu verður að samræma
skilning og túlkun fulltrúa starfs-
manna á samningnum, en það er
að sjálfsögðu mjög mikilvægt, að
túlkun samninganna sé samræmd
innan okkar raða.
Skipað í kjaranefnd og
endurskoðunarnefnd.
Samkvæmt samkomulagi um
kjarasamningi SÍB, skal sérstök
nefnd, kjaranefnd, fjalla um ágrein-
ingsatriði, sem varða framkvæmd
kjarasamninga. Nefndin er skipuð
þremur mönnum frá hvorum aðila
og skal nefndin jafnframt kveðja
oddamann til starfa með sér, til að
fjalla um þau atriði, sem ekki næst
samkomulag um. Hvor aðili um
sig, bankarnir og SlB, getur hins
vegar skotið ágreiningsmálum til
Félagsdóms, ef ekki verður sam-
komulag í nefndinni.
Nú hefur verið tilnefnt í nefnd-
ina og eru fulltrúar SÍB Sólon R.
Sigurðsson, Sveinbjörn Hafliðason
og Gunnar Eydal.
Fulltrúar bankanna eru: Stefán
Þórarinsson, Seðlabanka; Ari Guð-
mundsson, Landsbanka Islands og
Kristján Ólafsson, Alþýðubankan-
um.
Þá hefur verið tilnefnt í endur-
skoðunarnefnd, sem fjallar um
endurskoðun á upphæð dagpen-
inga á ferðalögum og fl., sbr. gr.
5.8. í nýgerðum kjarasamningum.
Fulltrúar SÍB eru Sveinbjörn
Hafliðason og Sólon R. Sigurðsson,
en fulltrúar bankanna eru: Guð-
mundur Sigurjónsson, Landsbanka
Islands og Jóhann T. Ingjaldsson,
Seðlabanka Islands.
Samkomulag um helgar-
vaktir í bankahúsum.
Nokkuð er um það, að banka-
starfsmenn taki að sér nætur- og
helgarvaktir í bönkunum sem auka-
vinnu. Ekki er ljóst af kjarasamn-
ingunum, hvernig greiða skuli slíka
vinnu, og hefur því verið gert svo-
fellt samkomulag við bankana:
„Samkomulag er á milli Sam-
bands íslenskra bankamanna og
Samvinnunefndar bankanna um
greiðslu fyrir nætur- og helgarvaktir
starfsmanna, er lokið hafa 40
stunda vinnuviku, að tímakaup skal
vera 1% skv. 6. fl. 1. þrepi, frá
og með 1. 7. 1977, kr. 1.300,00,
og hækki síðan, skv. 1.1.2. í samn-
ingi milli aðila, á stórhátíðadögum,
skv. gr. 1.4.2., er tímakaup 1,375%
af mánaðarlaunum, skv. 6. fl.
1 þrepi.
Tímakaup fyrir þá, er ekki hafa
lokið 40 stunda vinnuviku, skal
vera kr. 813,00, og á stórhátíða-
dögum skv. 1.4.2. er tímakaup
kr. 1.118,00.“
BANKABLAÐIÐ 33