Bankablaðið - 01.12.1977, Side 40
Að loknum hverjum fyrirlestri voru fyrir-
spurnir og umræður með þátttöku fyrirlesara.
Fyrirlestrar Benedikts, Sigurgeirs og Stefáns eru
til sérprentaðir.
III. NÁMSKEIÐ BANKAMANNASKÓLANS
FYRIR TJTIBÚSSTJÓRA AÐ HÓTEL
BIFRÖST, 15. TIL 17. ÁGÚST 1977
Námskeið þetta var mjög fjölmennt og voru
þátttakendur samtals 48. Farið var frá Reykja-
vík með m/s Akraborg til Akraness, en þaðan
ekið til Hótel Bifröst.
Jónas Rafnar, bankastjóri
Formaður Sambands
viðskiptabanka.
Jónas Rafnar, bankastjóri Útvegsbankans og
formaður Sambands viðskiptabanka, heiðraði
skólann og þátttakendur með nærveru sinni.
Ávarpaði hann þátttakendur og ræddi við þá,
m. a. um mikilvæg atriði varðandi afkomu
bankanna.
Þessir fyrirlestrar voru fluttir:
Fyrirlestur:
Afkoma bankanna
Lánamál iðnaðarins
Fjárábyrgðir
Starfsmannamál
útibúanna
Endurkaup
Seðlabanka íslands
Birgðaeftirlit og
birgðabókhald
Fyrirlesarar:
Stefán Sturla Stefánsson,
aðstoðarbankastjóri
Útvegsbanka íslands
Pétur Sæmundsson, bankastj.
Iðnaðarbanka íslands hf.
Benedikt Guðbjartsson, lögfr.
Landsbanka íslands
Ari Guðmundsson, starfs-
mannastj. Landsbanka Isl.
Stefán Stefánsson, aðalféh.
Seðlabanka íslands
Hermann Stefánsson,
deildarstjóri afurðaeftirlits
Seðlabanka íslands
Aðalatriðin úr fyrirlestri Stefáns Sturlu Stef-
ánssonar um afkomu bankanna voru þessi:
Stefán Sturla Stefánsson,
aðstoðarbankastjóri.
Rekstrarafkoma viðskiptabankanna á árinu
1976 og rekstrarafkomuhorfur á þessu ári. Enn-
fremur lýsti hann þróun þessara mála hjá bönk-
unum á síðastliðnum fimm árum og að lokum
gerði hann samanburð á tekjuafgangi, eigin-
fjárstöðu, reksturskostnaði og vaxtamun hjá
nokkrum erlendum bönkum og íslenzkum. í
erindinu studdist hann við glærur, er hann
skýrði jafnóðum.
Pétur Sæmundsen,
bankastjóri
Iðnaðarbanka Islands bf.
Pétur Sæmundsen gerði ýtarlega grein fyrir
lánamálum iðnaðarins og lánveitingum til hans,
miðað við aðrar atvinnugreinar.
í kveðjuhófinu hlýddu þátttakendur á meist-
aralega lýsingu Friðjóns Sveinbjörnssonar, spari-
sjóðsstjóra í Borgarnesi, á dýrðlegri náttúru-
fegurð og mannlífi í Borgarfirði.
IV. SAMKOMULAG VIÐ BANKANA UM
BREYTINGAR Á STARFSEMI BANKA-
MANNASKÓLANS
Með nýju samkomulagi sem undirritað var
1. nóv. 1977, er gert ráð fyrir breyttri skipan
á starfsemi skólans og auknum fjárframlögum
til hans.
40 BANKABLAÐIÐ