Bankablaðið - 01.12.1989, Qupperneq 21
Mötuneytismál
21
Úr mötuneyti Landsbankans.
Hlaðborð í Iðnaðarbanka.
Verslunarbankinn.
Hér kemur dæmi um banka sem er
með aðkeyptan mat. Verslunarbank-
inn, Bankastræti, kaupir tilbúinn mat í
bökkum frá Múlakaffi og er hálfur
matarskammtur í hverjum bakka.
Kostar hver hálf máltíð 276.- kr. sem
gera 5.520.- kr. á mánuði ef borðað er
daglega. Pað er aðeins 60% af verðinu
því bankinn borgar niður matinn um
407o. í sumum útibúum er keyptur
ódýrari matur s.s. í Verslunarbankan-
um í Mjóddinni og greiöir starfsfóikið
60% á móti bankanum sem greiðir
40%. Bakkamaturinn frá Múlakaffi er
ákaflega lítið notaður, þar sem hann
þykir allt of dýr. En það er líka boðið
upp á brauð m/áleggi, skyr og jógúrt
og kostar skammturinn á bilinu 60,- til
80.- kr. og er sami hátturinn hafður á,
að bankinn borgar 40% af öllum kostn-
aði fyrir utan að bjóða kaffið, mjólkina,
teið og kakóið, að ógleymdum osti og
smjöri sem fólkið fær frítt.
Alþýðubankinn.
Alþýðubankinn er með mötuneyti
og borgar 60% af hráefniskostnaði og
allan annan rekstur mötuneytisins. Þar
er heitur matur u.þ.b. tvisvar í viku en
aðra daga létt fæði. Mánaðarkortið
kostar 3.000.- kr. og eru 20 miðar í
korti. Máltíðin kostar 1 miða þ.e. 150 kr.
Iðnaðarbankinn.
Punkturinn yfir i-ið er svo auðvitað
hjá Iðnaðarbanka. Iðnaðarbankinn er
mjög nýstárlegur banki, a.m.k. í mötu-
neytismálum þar sem hann hefur kom-
ið með nánast byltingarkenndar nýj-
ungar. Hér áður fyrr var keyptur heit-
ur matur í bökkum m.a. frá Múlakaffi
eða þar til í vor að bankinn breytti
fyrirkomulaginu til að samræma að-
stöðuna á milli útibúa sem hafði verið
nokkuð mismunandi bæði hvað varðar
verð og gæði og nýting misgóð. í til-
raunaskyni var ákveðið að bankinn
leggði til ákveðna upphæð á hvern
starfsmann, (nú kr. 2.500.-) á mánuði
sem matráðsmenn nota í rekstur mötu-
neytisins, þ.e. hráefniskostnað á hverj-
um stað. Boðið er upp á létt fæði, s.s
súpur, brauð og salöt, grænmeti og
stundum pizzur eða eitthvað álíka en
heita matnum sleppt. Verði hráefnis-
kostnaðurinn meiri deilist það sem á
vantar á hvern starfsmann, en þegar
þetta er skrifað hefur það ekki gerst.
Fyrst í stað söknuðu margir heitu mál-
tíðarinnar sinnar, þá kannski sérstak-
lega þessir einstæðu eða vanaföstu en
nú virðast allir vera mjög ánægðir með
þann hátt sem hafður er á. Nýting á
mötuneytinu er afbragðsgóð og yfir-
leitt yfirfullt í matsalnum í Iðnaðar-
bankanum, enda ekki nema von þar
sem fæðið er frítt og er það óneitanlega
ágætis kjarabót.
Þetta eru mötuneytismálin eins og
þeim er háttað í dag en nú fara breyt-
ingatímar í hönd, bankar að sameinast
í einn íslandsbanka og Landsbankinn
að kaupa Samvinnubankann þannig
að vænta má breytinga í þessum mál-
um sem öðrum. Við vonum bara að
valinn verði ódýrasti og besti kostur-
inn öllum til ánægju!
/Sj VERÐBRÉFAUIÐSKIPTI
V/ SAMl/INNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT 18 ■ SÍMI 688568