Bankablaðið - 01.12.1989, Blaðsíða 30
30
Ping SÍB
36. þing Sambands íslenskra bankamanna:
Reglugerð vinnudeilusjóðs
36. þing Sambands íslenskra banka-
manna var haldið á Holiday Inn dag-
ana 13. og 14. apríl. Pingið er haldið á
tveggja ára fresti og fer með æðsta
vald í öllum málum SÍB. 65 fulltrúar
sátu þingið, auk stjórnar og starfs-
manna SÍB, innlendra og erlendra
gesta og áheyrnarfulltrúa, - alls um
100 manns.
Hinrik Greipsson, fráfarandi for-
maður, flutti setningarræðu við upp-
haf þingsins. Ávörp og kveðjur fluttu
Guðjón A. Kristjánsson, forseti FFSÍ,
Örn Friðriksson, varaforseti ASÍ, Ög-
mundur Jónasson, formaður BSRB,
Adolf Björnsson, fyrrv. formaður SÍB,
en hann hefur setið öll þing sambands-
ins frá upphafi, og Jan-Erik Lidström,
framkvæmdastjóri NBU, Norræna
bankamannasambandsins.
Sérstakur gestur þingsins var Tore
Andersen, aðstoðarframkvæmdastjóri
Norska bankamannasambandsins.
Hann ræddi um atvinnuástandið meðal
norskra bankamanna, sem hafa misst
vinnuna þúsundum saman, og rakti
viðbrögð Norska bankamannasam-
bandsins. Loks svaraði hann fyrir-
spurnum fundarmanna.
Tore Andersen frá Norska bankamannasambandinu flytur erindi sitt.
Fjölmargar ályktanir voru samþykktar
á þinginu, - um kjaramál, fræðslumál,
jafnréttismál, lífeyrismál, starfsréttindi
o.fl., auk nokkurra breytinga á lögum
sambandsins.
í kjaramálaályktun þingsins er þess
m.a. krafist, „að störf bankamanna, sem
á undanförnum árum hafa kallað á sí-
fellt meiri sérþekkingu og þjálfun,
verði metin að verðleikum og banka-
störf verði metin sem sérhæfð fagstörf
og launuð í samræmi við það."
Harðlega er átalið að stjórnvöld skuli
æ ofan í æ grípa inn í gerða kjarasamn-
inga og gera þannig að engu samn-
ingsrétt vinnandi stétta. Þingið hvetur
stjórnvöld til að endurskoða skatta-
stefnu sína og koma í veg fyrir skatt-
svik, þannig að allir þjóðfélagsþegnar
standi undir velferðarkerfinu, enda
sæmi ekki annað stjórn sem kenni sig
við jafnrétti og félagshyggju. Þá er
þess krafist, að persónuafsláttur verði
hækkaður.
Atkvædi talin á þinginu.