Morgunblaðið - 05.12.2008, Side 1
F Ö S T U D A G U R 5. D E S E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
333. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
SÍ
A
Leikhúsin
í landinu >> 41
ÍÞRÓTTIR
FEÐGAR TÓKUST Á
Í HANDBOLTANUM
AF LISTUM
Markaðsverðlaun
ekki marktæk?
ÍSLENSKA krónan styrktist um
rúm 8% eftir viðskipti gærdagsins og
kostaði evran víða um 173 kr. Geng-
isvísitalan endaði í 229,6 stigum og
hafði lækkað um 8,2%. Þetta mun
vera mesta styrking krónunnar á
einum degi frá því hún var fyrst sett
á flot 2001.
„Þessi tilraun sem hófst í dag lofar
góðu. Spár um að krónan myndi
veikjast mjög á fyrsta degi viðskipta
hafa ekki ræst. Þvert á móti hefur
hún styrkst og það meira að segja
verulega. Ég fagna þessu og tel að
þetta séu mjög ánægjuleg tíðindi,“
sagði Geir H. Haarde forsætisráð-
herra á fundi með fréttamönnum í
Stjórnarráðinu í gær. Geir minnti á
að hann sjálfur, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Seðlabankinn og fleiri
hefðu haldið því fram að gengi krón-
unnar hefði verið allt of lágt undan-
farið. Ljóst væri að erlendur gjald-
eyrir hefði skilað sér í meiri mæli í
gær en eftirspurn var eftir. Því hefði
gjaldeyrir lækkað í verði. Búist er
við því að krónan haldi áfram að
styrkjast næstu daga, með hliðsjón
af vöruflæði og áætluðum viðskipta-
afgangi í nóvember. | 2 og 18
Búist er við áframhaldandi styrkingu krónunnar næstu daga
Krónan styrktist um 8%
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„ÞETTA þýðir að ríkið eða Seðla-
bankinn eigi mjög erfitt með að
koma bönkunum aftur til hjálpar,“
segir Gunnar Haraldsson, forstöðu-
maður Hagfræðistofnunar.
Alþjóðlega matsfyrirtækið
Moody’s lækkaði lánshæfiseinkunn
ríkisins fyrir innlendar og erlendar
skuldbindingar um marga flokka í
gær. Þar á meðal einkunn sem segir
til um fjárhagslegan styrk stjórn-
valda til að styðja við bankakerfið í
kreppu og tryggja innlendar inni-
stæður. Fór sú einkunn niður um
fjóra flokka, úr Aaa í A1.
„Ég held að menn eigi ekki að hafa
áhyggjur af þessu,“ segir Árni
Mathiesen fjármálaráðherra. Ríkis-
stjórnin hafi lýst því yfir að innistæð-
ur í íslenskum krónum væru tryggð-
ar.
„Svona mikil lækkun veldur von-
brigðum í ljósi þess að stjórnvöld
hafa í samstarfi við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn ákveðið að taka á heildar-
vanda efnahagslífsins með skipuleg-
um hætti,“ segir Ólafur Ísleifsson,
lektor við Háskólann í Reykjavík.
Sérfræðingar sem Morgunblaðið
talaði við í gær telja lægri einkunn
endurspegla veikari fjárhagsstöðu
ríkissjóðs. Skuldir sem hlutfall af
landsframleiðslu aukast mikið, end-
urfjármögnun bankakerfisins er dýr,
halli á fjárlögum fyrirsjáanlega mik-
ill og tekjur ríkissjóðs dragast á
sama tíma saman. Að auki sé tak-
markað hvað ríkið geti prentað mikið
af peningum til að standa við inn-
lendar skuldbindingar, meðal annars
út af samstarfi við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn til að gera krónuna að not-
hæfum gjaldmiðli í viðskiptum á ný.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
sagði í gær að auðvitað væri slæmt
þegar lánshæfismat ríkisins lækkaði.
„Við munum gera hvað við getum til
að endurvinna lánshæfismatið og
hækka það á nýjan leik. Það sem við
erum að gera nú í efnahagsmálum,
fleyting krónunnar þar á meðal, er
auðvitað liður í því,“ sagði Geir.
Lánshæfi ríkisins hrynur
Geta ríkisins til að styðja bankakerfið og tryggja innlendar innistæður takmörkuð
Moody’s telur nú minni líkur á að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar
Í HNOTSKURN
»Flestar þjóðir sem eru meðsinn eigin gjaldmiðil eru
með hæstu einkunn fyrir
tryggingu á innlendum banka-
innistæðum.
»Einkunn Króatíu var færðniður úr Aa1 í A1 20. nóv-
ember sl. Aaa er í Svíþjóð.
»Einkunnagjöf Moody’s er ínokkrum flokkum og tákn-
uð með bók- og tölustöfum.
Röð einkunna er: Aaa, Aa1,
Aa2, Aa3, A1, A2, A3, Baa.
Innistæður ekki | 18
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands
og aðalhljómsveitarstjórinn Rumon
Gamba hafa verið tilnefnd til
Grammy-verðlaunanna fyrir fyrstu
plötu sína af fjórum með verkum
eftir franska tónskáldið Vincent
D’Indy. Platan er tilnefnd í flokkn-
um „Best Orchestral Performance“
eða Besti hljómsveitarleikurinn.
Þá fékk Pacifica kvartettinn, sem
Sigurbjörn Bernharðsson leikur
með, tilnefningu í flokknum „Best
Chamber Music Performance“ eða
Besti kammermúsíkleikurinn fyrir
plötu með verkum eftir Elliott Cart-
er. Pacifica hefur hlotnast marg-
víslegur heiður á þessu ári. »39
Sinfónían og Pacifica fá
Grammy-tilnefningar
BORGARGÆSIRNAR halda tryggð við Frón þótt flestar
frænkur þeirra og frændur hafi nú haldið á vetrarstöðvar á
Bretlandseyjum. Þeirra er aftur von í vor en þá hafa heima-
gæsirnar þurft að þreyja skammdegið og þorrann hér. Gæsa-
hópur flaug yfir Perluna í gær og í ljósaskiptunum mátti
ímynda sér að geimskip hefði lent í Öskjuhlíðinni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gæsirnar og geimskipið