Morgunblaðið - 05.12.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Náttföt, náttserkir
og nærföt
frá Calvin Cline, Schiesser, Pegasus og JBS
E R N A
sími 552 0775
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Ný sending af
sparifatnaði
Kringlunni • Sími 568 1822
Margir litir
Stærðir
86-176
barna- og unglinga-
náttsloppar
Mokkakápur
Mokkajakkar
Útsalan er hafin
á vetrarlistanum
Opið mán.-fös. 11-18
og lau. 11-16
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 - www.friendtex.is
MATTI Vanhanen, forsætisráð-
herra Finna, hefur beðið Evrópu-
sambandið um að búa sig undir að
heimila Íslandi að ganga í sam-
bandið innan sex til átján mánaða
frá því að landið óskar eftir inn-
göngu. Þetta kemur fram í frétt
Bloomberg-fréttaveitunnar.
Það yrði Íslandi „nokkuð auð-
velt“ að uppfylla kröfur ESB,
sagði Vanhanen í viðtali við frétta-
stofuna í gær. „Landið uppfyllir nú
þegar flest skilyrðin, og sum
þeirra jafnvel betur en venjuleg
aðildarríki ESB.“
Þá sagðist Vanhanen hafa þegar
í haust beðið Jose Manuel Bar-
roso, forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, að undirbúa
sambandið fyrir mögulega inn-
göngu Íslands, þar sem landið
væri á leið inn í kreppu. „Við vit-
um hversu mikilvægt það er fyrir
Ísland að finna
fyrir sveigjan-
leika af okkar
hálfu til að leysa
slík vandamál,
skyldi landið
óska eftir aðild
að ESB,“ sagði
hann.
Hann sagði að
það myndi taka
landið hálft til
eitt og hálft ár að ganga í sam-
bandið óskaði ríkisstjórnin eftir
aðild að því.
Er í fréttinni bent á afstöðu
stjórnarflokkanna í þessu sam-
bandi. Sjálfstæðisflokkurinn hafi
lýst því yfir að hann sé viljugur til
að endurskoða viðhorf sitt til að-
ildar að ESB og Samfylkingin sé
hlynnt umsókn um inngöngu í
sambandið.
ESB undirbúi aðild
Matti Vanhanen
Tekur aðeins sex til átján mánuði fyrir Ísland
að fá inngöngu í sambandið frá umsókn
Auglýsing frá ráðuneyti
Í myndatexta með frétt um auglýs-
ingar um nýja reglugerð um skoðun
ökutækja sagði ranglega í mynda-
texta að um væri að ræða auglýs-
ingar Umferðarstofu. Auglýsing-
arnar eru frá samgönguráðuneytinu
en Umferðarstofa tók þátt í gerð
þeirra. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
LEIÐRÉTT
ÍSLENSKT brennivín hefur nú
lækkað í verði um rúm 6% að með-
altali í verslunum ÁTVR.
Segist Ölgerðin, sem framleiðir
brennivín, hafa lækkað verð á öðru
sterku íslensku áfengi í verslunum
ÁTVR.
Hafa Eldurís, Tindavodki og
skotdrykkirnir Opal og Tópas
þannig lækkað í verði um rúm 4%
að meðaltali í vínbúðunum.
Vínið lækkar