Morgunblaðið - 05.12.2008, Qupperneq 14
Í HNOTSKURN
»Stærð hrygningarstofns-ins í upphafi árs 2008 var
metin 650 þúsund tonn.
»Þriðja hver síld sem veiðsthefur í Breiðafirði og í
Stakksfirði fyrir utan Njarð-
víkur hefur verið sýkt.
»Sýkingin hefur mikil áhrifá atvinnulíf víða um land.
»Tíðindin af sýkingu í síld-inni eru alvarleg fyrir
fólk, fyrirtæki og sveit-
arfélögin í landinu.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
SÉRFRÆÐINGAR telja líklegrar
skýringar á mikilli útbreiðslu sýk-
ingar í síld að leita í hrygningartíma
síldarinnar síðsumars. Þá sé stofn-
inn á tiltölulega afmörkuðu svæði og
einnig við fæðuöflun í kjölfar hrygn-
ingar. Síðan hafi skapast einhverjar
þær aðstæður í náttúrunni á síðustu
vikum sem gerðu það verkum að
sýkingin gaus upp nánast samtímis
á mörgum svæðum frá Húnaflóa
vestur um til Vestmannaeyja.
Gísli Jónsson, dýralæknir fisk-
sjúkdóma, útilokar ekki að sníkju-
dýrið hafi verið komið í auknum
mæli í síldina síðasta vetur eða í
1-2% fiska. Í náttúrunni telji vís-
indamenn hins vegar ekki óeðlilegt
að sníkjudýrið sé í 1-2 prómill síld-
ar. „Ég útiloka ekki að sýkingin hafi
verið komin upp fyrir náttúrulegan
staðal síðasta vetur og það hafi auð-
veldað þennan hraða framgang sýk-
ingarinnar í haust,“ segir Gísli.
Hann segir að hjarðir síldarinnar
hafi gengið saman á einhverjum
tíma, hugsanlega í kringum hrygn-
ingu. Hann bendir á dæmi af laxa-
stofnum, en sumarið 2007 hafi orðið
mikil þráðormasýking í laxi í ís-
Morgunblaðið/Kristinn
Skoðun Agnar Már Sigurðsson, Sæunn Kalmann Erlingsdóttir og samstarfsfólk þeirra hjá Hafró hafa haft nóg að gera við skoðun á síldarsýnum sem tekin
hafa verið úr afla síðustu tvær vikur. Um helgina halda tvö skip til rannsókna og sérfræðingur heldur til Neskaupstaðar þar sem skoðuð verða eldri sýni.
Samgangur eykur líkur á smiti
Hærra hitastig í höfunum eykur möguleika sníkjudýra Náttúrulegar að-
stæður gerðu það að verkum að sýkingin gaus upp samtímis á mörgum svæðum
lenskum ám og á sama tíma í laxi
sem gekk í ár í Skotlandi, Wales og
Englandi. „Þessir stofnar hafa
greinilega gengið á sameiginlegu
beitarsvæði yfir veturinn, sem síðan
slitnaði þegar voraði og hver stofn
fór í sína átt. Á sama tíma hafi ekk-
ert slíkt smit orðið í laxi í Fær-
eyjum, Noregi, á austurströnd
Bandaríkjanna og í Kanada.
Hann segir meðgöngutíma
sníkjudýrsins fara eftir umhverfis-
áhrifum. Með auknum hita í höf-
unum að meðalhiti um 1,5 gráður
eigi sníkjudýrin aukna möguleika.
„Síðan springur þetta framan í okk-
ur allt í einu, en þá er síld jafnvel
farin að drepast í torfum og þá leys-
ist úr læðingi enn meira smitefni,“
segir Gísli.
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti í gær uppgjör við KSÍ vegna
byggingar stúku á Laugardalsvelli.
„Ég er ánægður með að þessum
þætti málsins er lokið,“ sagði Geir
Þorsteinsson, formaður KSÍ. Hann
sagði að lokauppgjöri á liðnu vori
hefði verið frestað og beðið um loka-
skýrslu. KSÍ lauk henni í sumar og
síðan hefur verið unnið að því að
ljúka málinu. „Aðilar bera kostnað
hvor af sínum eignarhluta,“ sagði
Geir. Hann sagði að KSÍ myndi al-
veg ráða við sinn hluta.
Samkvæmt tillögu fjögurra emb-
ættismanna borgarinnar að uppgjör-
inu sem lögð var fyrir borgarráð
nam heildarkostnaður við alla fram-
kvæmdina 1.658 milljónum króna.
Hlutur ríkisins var 200 milljónir, án
verðbóta, og hlutur KSÍ 543 millj-
ónir. Viðbótarkostnaður við fram-
kvæmdirnar, umfram upphaflegan
samning nam rúmlega 573 milljón-
um. KSÍ taldi að hlutur Reykjavík-
urborgar í viðbótarkostnaðinum
næmi tæplega 470 milljónum kr. Bú-
ið var að borga 321 milljón og krafð-
ist KSÍ mismunarins, auk verðbóta
og vaxta, eða samtals 347 milljóna
króna.
Embættismennirnir lögðu til að
borgarráð samþykkti greiðslu um-
framkostnaðarins vegna eignarhluta
borgarinnar. Einnig að fjárhæðin
yrði verðbætt með 67 milljónum. Því
skyldu KSÍ greiddar, að frádregnum
fyrri greiðslum, 215,7 milljónir.
Kröfu um greiðslu vaxta var hafnað.
Þá var samþykkt að hækka húsa-
leigu- og æfingastyrk til KSÍ vegna
afnota frjálsíþróttadeilda af Laugar-
dalsvelli og Baldurshaga úr 8 millj-
ónum í 15. Afnot af Baldurshaga
hafa aukist mjög eftir að honum var
breytt í skylmingaaðstöðu.
gudni@mbl.is
Samið við KSÍ um
kostnað við stúku
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Stúkan Búið er að semja um upp-
gjör vegna stúku Laugardalsvallar.
Hnúfubakur
vísar veginn
EKKI aðeins hafa upplýsingar frá
gervihnattasendum um ferðir
hnúfubaks verið notaðar til að leið-
beina fólki í hvalaskoðun á vegum
Eldingar um miðjan síðasta mánuð,
heldur hafa upplýsingarnar einnig
verið notaðar til að vísa skip-
stjórum á síldveiðibátum á líklegar
síldartorfur í Stakksfirði.
Á heimasíðu Hafró kemur fram
að dvöl hnúfubaksins við Keflavík
og Njarðvík hafi orðið til þess að
síldveiðiskip könnuðu svæðið og
fundu þar talsvert af síld. Í fram-
haldinu var þar góð síldveiði þar til
smásíld gekk á svæðið og því var
lokað 1. desember sl. ásamt svæði
við Vestmannaeyjar.
Hnúfubakurinn yfirgaf svæðið
hins vegar 21. nóvember, hélt vest-
ur á Eldeyjarbanka og þaðan suður
fyrir Reykjanesið. Síðan 24. nóv-
ember hefur hnúfubakurinn haldið
sig í Grindavíkurdjúpi, á Selvogs-
banka og við Surtsey.
aij@mbl.is
BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn-
arfirði afgreiddi nýlega nýjan Cleo-
patra bát til Vardø í Finnmerk-
urfylki í Noregi. Kaupandinn er
Birger Sørstrand sem jafnframt
verður skipstjóri á bátnum. Bát-
urinn hefur hlotið nafnið Veronica.
Hann mælist 15 brúttótonn og er af
gerðinni Cleopatra 42 sem er sér-
stök útgáfa af Cleopatra 38.
Þetta er fyrsti báturinn sem
Trefjar afgreiða úr nýrri skipa-
smíðastöð sem opnuð hefur verið að
Óseyrarbraut 29 í Hafnarfirði.
aij@mbl.is
Veronica
seld til Vardö
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
OLÍUFÉLÖGIN lækkuðu öll verð á
eldsneyti í gær. Má rekja verðbreyt-
ingarnar til lækkunar á heimsmark-
aðsverði auk þess sem gengi ís-
lensku krónunnar styrktist í gær.
Nam lækkunin hjá Olís, N1 og
Skeljungi 4,40 krónum á lítra af
bensíni og 2 til 2,70 krónum á dísil-
olíulítrann. Atlantsolía heldur
óbreyttu verði á dísilolíu en lækkaði
verð á bensíni um 3 krónur á lítr-
ann. Segir Hugi Hreiðarsson, mark-
aðsstjóri fyrirtækisins, að lækkunin
nú komi til viðbótar fyrri lækkun
sem hafi verið á undan öðrum fé-
lögum.
Verð á elds-
neyti lækkar
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um
þriggja ára fangelsisvist yfir Robert
Dariusz Sobiecki, fyrir að nauðga
stúlku á salerni Hótels Sögu í
Reykjavík í mars á síðasta ári.
Sobiecki var upphaflega sýknaður
í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæsti-
réttur ómerkti þann dóm og vísaði
málinu aftur til héraðsdóms, sem
dæmdi manninn þá í 3 ára fangelsi.
Fimm dómarar dæmdu í Hæsta-
rétti. Einn þeirra, Jón Steinar Gunn-
laugsson, skilaði sératkvæði og vildi
sýkna sakborninginn.
Þrjú ár fyrir
nauðgun