Morgunblaðið - 05.12.2008, Page 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
✝ Helgi Þor-steinsson, fyrrver-
andi skólastjóri, fram-
kvæmdastjóri,
bæjarritari á Dalvík
og menntaskólakenn-
ari, fæddist í Sauð-
lauksdal, Patreksfirði,
13. september 1936.
Hann lést á Sjúkrahús-
inu á Akureyri 25.
nóvember síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Þorsteinn Krist-
jánsson, prestur í
Sauðlauksdal, f. 31.8.
1891, d. 18.2. 1943, og Guðrún Pet-
rea Jónsdóttir, f. 24.12. 1901, d. 2.5.
1977. Helgi var yngstur 5 systkina
og eru systurnar látnar þær Guð-
rún, kennari í Reykjavík, f. 28.7.
1921, d. 28.3. 1983, og Jóna, kennari
og bókasafnsfræðingur á Kirkju-
bæjarklaustri, f. 21.2. 1927, d. 6.1.
2001. Eftirlifandi maki Sigurjón
Einarsson, sóknarprestur og pró-
fastur, f. 28.8. 1928. Bræður Helga
eru Magnús Bragi, verkfræðingur í
Reykjavík, f. 8.3. 1923, maki Fríða
Sveinsdóttir, röngentæknir og rit-
ari, f. 25.1. 1922, og Baldur skóg-
fræðingur í Kópavogi, f. 5.8. 1924,
maki Jóhanna Arnljót Friðriks-
dóttir menntaskólakennari, f. 12.2.
1929.
Fyrrverandi maki Helga er Svan-
hildur Björgvinsdóttir sérkennari, f.
15.11. 1936. For-
eldrar: Björgvin Jóns-
son, skipstjóri á Dal-
vík, og Guðrún
Þorleifsdóttir hús-
freyja. Dætur: 1) Yrsa
Hörn kennari, maki
Gunnar Gíslason
fræðslustjóri. Börn:
Jara Sól, Kolbeinn
Höður, Melkorka Ýrr,
Iðunn Rán, Helga,
Kristbjörg og Ásta. 2)
Ylfa Mist nemi, maki
Haraldur Ringsted
rafeindafræðingur.
Börn: Björgúlfur Egill, Birnir
Ringsted og Baldur Hrafn.
Eiginkona Helga er Þórunn
Bergsdóttir skólastjóri, f. 9.9. 1947.
Foreldrar: Bergur Pálsson, skip-
stjóri á Akureyri, og Jónína Sveins-
dóttir húsfreyja. Börn 1) Guðrún
Jónína tækniteiknari, maki Steinar
Smári Júlíusson þjónn. Dóttir Sunn-
eva Björk. 2) Steingrímur stýrimað-
ur, maki Jóhanna Freydís Þorvalds-
dóttir kennari. Börn: Friðrik og
Hafrún. 3) Guðný hjúkrunar- og við-
skiptafræðingur, maki Einar Viðar
Finnsson sölustjóri. Börn: Vigdís
Birna, Helgi Hrafn, Björgvin og El-
ísa 4) Hrefna Þórunnardóttir kenn-
ari.
Útför Helga fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
„Undir bláum sólarsali,
Sauðlauks upp’í lygnum dali.“
Þessar línur, sem þjóðinni eru
kunnar úr kvæðinu um fuglinn sem
galaði svo fagurt, gætu verið fyrstu
línurnar í lífshlaupi föður míns sem
hóf lífsgöngu sína í Sauðlauksdal í
Patreksfirði. Lítill glóhærður
hnokki sem spígsporaði um hlað
prestssetursins og prílaði yfir varn-
argarðinn „Ranglát.“ Lítill, búldu-
leitur prestssonur sem missti föður
sinn, aðeins sex ára gamall. Sextíu
og sex árum síðar, kvaddi þessi
stóri, fallegi, brúnhærði maður, á
sinn friðsamlega og hljóðláta hátt. Í
fangi eiginkonu sinnar og dætra.
Elskaður, sáttur og saddur lífdaga.
Hvíldinni feginn eftir stríðið við
veikindin sem á hann höfðu herjað.
Pabbi vildi heldur aldrei vera í
stríði. Ekki við neinn. Hann var
friðsemdarmaður sem þoldi ekki
skærur eða ósætti. Tók ekki þátt í
slíku.
Ég ætla ekki að gera lífshlaupi
hans greinileg skil hér. Til þess
verða aðrir. Ég vil bara minnast
föður míns fyrir að vera sá sem
hann var í mínum augum. Pabbi
minn. Pabbi minn sem leiddi mig út
í Kaupfélag og stakk litla fingri
upp í ermina mína. Sem sat með
mig á öxlunum fyrir framan sjón-
varpið í gamla daga og leyfði mér
að greiða þykka, brúna lubbann
sinn. Kenndi mér að reima skó.
Pabbi minn sem fór með okkur
Snjólaugu vinkonu sveitahringinn á
helgum eftir að hafa keypt handa
okkur sjeik. Sem söng fyrir okkur
um Svarfaðardalinn. Kenndi mér
fyrstu línurnar í Litlu gulu hænunni
á esperanto! Pabbi minn, sem var
svo gáfaður að ég hef alltaf haldið að
hann vissi allt! Pabbi sem eldaði
handa mér hafragraut sem við borð-
uðum saman með rjóma – ef enginn
sá til. Sá sem kenndi mér að borða
hráar eggjarauður með salti – ef
enginn sá til. Pabbi sem kenndi mér
að gera kjötsúpu eins og kjötsúpa á
að vera. Kenndi mér að hamfletta
rjúpur. Í hvert sinn sem ég á eftir að
heyra einhvern segja: „Ylfa, finndu
mig aðeins,“ þá á það eftir að minna
mig á pabba. Í hvert sinn sem ég á
eftir að heyra lag með Roger
Whittaker, man ég pabba. Og í hvert
sinn sem ég finn lykt af nýrökuðum
vanga, ilmandi af rakspíra, man ég
pabba. Og þegar jólin ganga í garð
og ég set Mahaliu Jackson á fóninn,
man ég hann. Og þá mun ég sakna
hans. Margs er að minnast og margs
er að sakna, eins og skáldið sagði.
Mest á ég eftir að sakna pabbalykt-
arinnar. Af nýrökuðum, ilmandi
vöngum hans. Og þess að geta
hringt þegar mig vantar einhver
svör.
Elsku pabbi, nú gengur hann við
hlið föður síns, sem hann missti of
snemma og skeggræðir við hann, í
grænum paradísargörðum eilífðar-
innar. Prestssonurinn úr Sauðlauks-
dal hefur kvatt þessa tilvist og er
kominn heim í Alföðurins ríki. Þá
ferð gekk hann einn. En hann var
kvaddur af okkur sem elskuðum
hann og á móti honum tóku kær-
leiksríkar hendur hins Almáttuga,
og elskuríkur faðmur foreldra hans.
Eftir sit ég með söknuð og stórt
tómarúm í hjartanu en veit að þegar
minn tími kemur, taka sterku og
stóru armar pabba á móti mér.
Þangað til þá: Elsku pabbi, takk fyr-
ir samfylgdina, hafðu þökk fyrir allt
og allt, ég mun alltaf elska þig.
Þín,
Ylfa Mist.
Helgi Þorsteinsson
Fleiri minningargreinar
um Helga Þorsteinsson bíða birting-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Elsku pabbi. Hvorki auður né
mannlegur máttur gátu veitt
þér betri heilsu. Við gátum
sýnt þér ást og umhyggju á
meðan þessi barátta stóð yfir
en nú hefur þú verið kallaður
frá okkur.
Kærar þakkir fyrir öll árin og
allar stundirnar sem við áttum
saman, þær varðveiti ég í
hjarta mínu.
Þín
Erla.
HINSTA KVEÐJA
✝ Sigurður Guð-mundsson, fæddist
3. júní 1938 í Reykja-
vík. Hann lést á
krabbameinsdeild
Landspítalans við
Hringbraut þann 25.
nóvember síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðmundur Fil-
ippusson málarameist-
ari frá Gufunesi, f.
15.12. 1891, d. 28.7.
1955 og Þuríður Krist-
ín Vigfúsdóttir hús-
freyja, f. 11.4. 1901 í
Haga í Gnúpverjahreppi, d. 9.1.
1987.
Systkini Sigurðar eru: Sigríður f.
3.1. 1926, Vigfús f. 10.7. 1927, Guð-
rún f. 28.7. 1928, Filippus f. 6.6.
1932, Ingibjörg f. 16.2. 1935 og
Kristín f. 3.6. 1940.
Sigurður kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Bergþóru Skúladóttur
fyrrverandi bankastarfsmanni f.
13.2. 1943, frá Kópavogi, þann 2.12.
1961. Foreldrar hennar voru Skúli
Magnússon vörubílstjóri, f. 1.7. 1915,
d. 27.6. 1995 og Stefanía Stef-
ánsdóttir f. 8.9. 1920, d. 8.12. 2007.
Börn Bergþóru og Sigurðar eru:
1) Trausti húsasmíðameistari f. 11.4.
1962, kvæntur Hönnu Björk Ragn-
arsdóttur f. 14.5. 1963.
Þeirra dætur eru, a)
Margrét f. 1.8. 1991, b)
Snædís f. 2.12. 1993,
og c) Sólrún f. 12.10.
1995.
2) Stefanía Hrönn
háskólanemi f. 6.7.
1963 og 3) Erla, við-
skiptafræðingur f.
28.6. 1966.
Sigurður fæddist í
Reykjavík og bjó þar
alla tíð. Hann lærði
húsgagnasmíði og
lauk sveinsprófi frá
Iðnskólanum í Reykjavík vorið 1959
en öðlaðist meistararéttindi vorið
1962. Alla ævi starfaði hann við
smíðar, í fyrstu við húsgagna- og
innréttingasmíði en síðar jukust
verkefnin og fjölbreytnin óx. Síðustu
25 árin vann Sigurður mikið með
syni sínum Trausta og saman festu
þeir kaup á húsnæði undir verk-
stæði. Síðasta áratuginn unnu þeir
feðgar mikið að uppsetningu ýmissa
sýninga, m.a. í Þjóðmenningarhús-
inu, Kristnitöku í 1000 ár, Sögusýn-
ingu Njálu og Sjómannasafninu Vík-
inni, auk annarra verka.
Útför Sigurðar fer fram frá Graf-
arvogskirkju í dag og hefst athöfnin
kl. 13.
Það eru mikil forréttindi að eiga
góðan vin og föður. Þegar litið er yfir
farinn veg er margs að minnast og
margt að þakka. Efst í huga er að
pabbi var harðduglegur, hann vakti
og svaf yfir velferð fjölskyldu sinnar.
Ásamt og með mömmu byggði hann
fyrst raðhús í Breiðholti en síðar
byggði hann, með hjálp Trausta, hús
í Grafarvogi þar sem fjölskyldan bjó
lengst af. Alltaf var hann að dytta
eitthvað að húsinu eða laga til í garð-
inum ef hann átti lausa stund. Að
loknu dagsverki sótti hann afslöppun
í hverfislaugina, þar lét hann þreyt-
una líða úr lúnum beinum.
Sveinsstykki pabba í húsgagna-
smíði var fallegt skrifborð, í skúff-
unum geymdi hann ýmsa pappíra og
aðra persónulega muni, þetta var
borðið hans. Við það skrifaði hann
oftast nær bæði reikninga og stund-
um í dagbækur sem hann hélt dag-
lega. Hann starfaði í fyrstu við hús-
gagna- og innréttingasmíði og var
meðeigandi í trésmíðaverkstæðun-
um Valvið í Reykjavík og síðar Grein
í Kópavogi. Pabbi starfaði einnig við
húsbyggingar, bæði nýsmíði og lag-
færingar en hann var hagur og til-
einkaði sér flestar aðferðir við smíð-
ar. Síðustu 25 árin störfuðu þeir
feðgar saman og komu sér upp verk-
stæði í Hafnarfirði. Þeir unnu að
ýmsum verkum fyrir Reykjavíkur-
borg og að uppsetningu margra sýn-
inga.
Pabbi var áhugamaður um útivist
og naut náttúru Íslands og fuglalífs-
ins. Alla vetur gaf hann smáfuglum
og þekkti nöfn flestra fugla. Hann
var lengi félagi í Útivist, fór bæði í
styttri og lengri gönguferðir og
margar ferðir inn í Bása meðan verið
var að byggja skála félagsins í Þórs-
mörk. Hann ferðaðist töluvert innan-
lands og utanlandsferðirnar voru
margar, margar til Norðurlandanna
þar sem vinir voru heimsóttir að
nýju. Sérlega kom það gleðilega á
óvart að góðir norskir vinir, Dagfinn
og Klara, skyldu ferðast til Dan-
merkur í sumar að hitta ykkur
mömmu og eyða með ykkur nokkr-
um dögum en vinskapurinn spannar
nærri hálfa öld. Þau eru líka hér í
dag. Með eftirminnilegustu ferðun-
um voru einnig lengri ferðir til Rúss-
lands, Suður-Ameríku, Tyrklands og
Kúbu.
Þú varst styrkur minn og klettur,
til þín var gott að leita og það fann ég
best þegar þú veiktist. Það varð öll-
um í fjölskyldunni reiðarslag en
mamma stóð við hlið þér eins og
ávallt, ekki síður en þið stóðuð með
okkur systkinunum þegar erfiðleik-
ar og áföll dundu yfir. Hvert okkar
studdirðu og réttir hjálparhönd,
hverju á sinn máta þegar á þurfti að
halda og leitað var eftir. Ekki má
gleyma að pabbi hafði yndi af og
fylgdist með barnabörnunum og
uppvexti þeirra, hvernig þeim miðaði
í námi, leik og starfi. Hann var stolt-
ur af sonardætrum sínum og hafði
gaman af að umgangast þær, hvort
sem var í fjölskylduboðum eða
hversdags. Hann vildi heyra veiði-
sögur og aflatölur prinsessnanna
sinna og hvernig þær skutu reyndari
veiðimönnum ref fyrir rass með flug-
um sem þær hnýttu sjálfar. Þakka
þér fyrir samfylgdina, allar sam-
verustundirnar, minningarnar, um-
hyggjuna, stuðninginn, brosin og
hlýjuna. Guð geymi þig og varðveiti,
Stefanía Hrönn.
Sigurður
Guðmundsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
V i n n i n g a s k r á
31. útdráttur 4. desember 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 4 1 5 2
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 0 1 4 8 3 8 5 8 0 5 2 2 7 2 7 3 3 1 6
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
836 15904 29907 40379 61556 71444
1829 29650 40334 47416 64370 73158
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
2 7 4 4 1 3 1 1 2 2 2 8 0 9 3 8 0 9 5 4 8 0 6 7 5 7 6 6 8 6 3 9 6 5 7 2 4 8 4
3 2 6 2 1 4 2 8 4 2 3 1 4 0 3 9 5 9 2 4 8 6 6 1 5 8 3 2 1 6 3 9 6 6 7 4 7 9 3
3 7 6 8 1 4 4 4 3 2 3 3 1 2 4 0 0 2 1 5 0 1 0 1 5 8 3 5 1 6 4 4 7 2 7 4 9 6 0
5 0 6 8 1 4 5 1 4 2 5 6 7 5 4 0 2 0 0 5 0 1 2 3 5 8 3 7 1 6 4 7 7 5 7 6 5 2 4
5 2 4 6 1 6 0 5 0 2 6 0 6 2 4 0 7 7 6 5 1 5 8 8 5 8 4 9 3 6 5 0 5 6 7 7 0 5 6
5 4 6 2 1 6 6 7 6 2 6 4 2 1 4 0 9 1 9 5 2 8 0 2 5 8 5 1 7 6 5 4 7 8 7 7 8 5 8
7 9 5 8 1 9 5 0 8 2 7 4 4 6 4 1 0 7 6 5 3 7 2 2 6 0 5 2 0 6 6 7 0 4 7 8 2 5 7
8 5 8 1 1 9 5 5 5 2 7 5 9 1 4 1 6 2 5 5 5 2 5 7 6 0 6 1 9 6 7 6 5 0 7 8 4 6 8
8 9 4 5 2 0 4 0 4 2 8 9 7 7 4 1 9 7 2 5 5 3 2 8 6 0 8 6 7 6 8 2 4 7 7 8 5 4 6
9 1 7 8 2 0 9 2 1 3 3 3 0 4 4 2 8 5 0 5 5 3 5 2 6 0 9 8 9 7 0 0 2 7
1 0 9 3 5 2 2 0 6 6 3 3 8 0 1 4 5 5 2 2 5 5 3 7 5 6 2 0 7 4 7 0 5 3 1
1 0 9 4 4 2 2 2 9 7 3 4 2 8 3 4 6 2 9 3 5 5 7 3 8 6 2 3 2 1 7 1 5 6 4
1 2 9 1 7 2 2 7 2 3 3 5 0 3 8 4 7 1 0 6 5 6 4 8 9 6 2 7 6 0 7 2 4 1 0
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
2 4 9 9 1 4 4 2 0 6 8 5 3 3 0 1 9 4 0 8 6 5 5 0 5 0 7 6 1 8 9 0 7 0 7 9 0
5 1 5 9 5 1 1 2 0 7 2 7 3 3 7 9 9 4 0 9 7 4 5 0 6 2 9 6 2 1 2 5 7 0 9 2 0
5 4 9 9 5 9 6 2 0 8 6 6 3 3 8 1 1 4 1 5 2 8 5 0 6 5 7 6 2 4 3 8 7 1 6 5 1
7 3 3 9 6 5 6 2 1 5 1 1 3 3 9 2 0 4 1 6 9 5 5 0 6 8 6 6 2 5 1 8 7 1 8 4 0
9 8 2 9 7 8 0 2 1 7 1 2 3 4 1 9 6 4 2 0 3 0 5 1 5 7 3 6 2 5 5 9 7 1 9 9 0
1 1 5 0 1 0 1 9 3 2 1 9 2 3 3 4 4 7 0 4 2 1 5 9 5 1 6 6 0 6 2 8 8 8 7 2 2 4 1
1 1 9 1 1 0 2 7 5 2 2 3 5 0 3 4 4 8 5 4 2 1 8 4 5 1 7 3 4 6 3 3 5 6 7 2 6 9 3
1 5 4 1 1 2 4 9 2 2 2 3 6 9 3 4 9 6 8 4 3 2 7 6 5 1 8 5 7 6 3 6 9 9 7 2 7 0 3
1 6 0 6 1 2 9 6 8 2 2 4 1 8 3 5 4 4 2 4 3 3 3 8 5 2 4 3 2 6 3 7 0 0 7 2 8 5 5
2 0 3 1 1 3 2 9 2 2 2 6 4 1 3 5 6 5 9 4 3 4 5 0 5 2 4 5 1 6 4 1 1 2 7 2 8 6 1
2 2 4 0 1 3 4 6 1 2 2 8 4 4 3 5 7 0 4 4 3 7 2 3 5 2 5 2 0 6 5 4 5 7 7 2 8 8 9
3 0 3 8 1 3 4 9 8 2 2 9 4 7 3 5 8 8 4 4 3 7 4 8 5 3 8 2 1 6 5 8 2 5 7 2 9 0 1
3 5 9 4 1 5 0 0 4 2 4 1 9 5 3 5 9 3 1 4 3 7 5 8 5 3 8 5 3 6 5 9 9 2 7 3 8 7 1
3 9 2 4 1 5 1 1 6 2 4 4 2 8 3 6 2 9 2 4 4 0 9 1 5 4 1 8 4 6 5 9 9 6 7 3 9 6 8
4 5 3 1 1 5 3 3 1 2 4 5 1 2 3 6 3 6 9 4 4 4 9 4 5 4 7 6 0 6 6 4 0 8 7 4 6 4 6
5 4 0 7 1 5 4 8 6 2 5 4 1 9 3 6 8 9 8 4 4 6 4 8 5 5 0 6 9 6 6 7 5 6 7 4 6 8 5
5 5 8 0 1 5 7 8 8 2 5 5 9 6 3 7 0 5 0 4 6 2 1 0 5 5 2 0 9 6 6 8 1 3 7 5 1 1 7
5 7 5 6 1 6 2 7 2 2 6 0 0 1 3 7 3 6 7 4 6 3 8 1 5 5 8 5 2 6 7 4 8 0 7 6 0 8 8
5 8 3 0 1 6 4 4 8 2 6 0 1 6 3 7 6 4 0 4 6 7 4 5 5 6 7 1 2 6 7 5 3 9 7 6 1 2 1
6 3 5 6 1 6 4 7 3 2 6 0 5 9 3 7 7 9 5 4 6 7 6 3 5 6 8 8 5 6 7 6 8 4 7 7 4 8 1
6 3 8 8 1 6 6 2 7 2 6 2 6 1 3 7 8 8 8 4 7 3 8 0 5 7 0 0 2 6 8 1 5 3 7 8 5 3 6
6 9 3 0 1 6 8 1 9 2 6 4 4 3 3 7 9 0 0 4 7 3 9 9 5 7 6 6 3 6 8 3 3 7 7 8 7 9 5
7 0 7 0 1 7 5 5 9 2 7 1 3 1 3 8 6 0 6 4 7 8 6 2 5 8 5 2 8 6 9 0 8 9 7 8 9 9 4
7 4 3 5 1 7 9 6 7 2 7 8 0 2 3 8 6 4 7 4 7 9 4 1 5 8 7 3 5 6 9 2 1 9 7 9 0 5 3
7 5 3 1 1 9 4 0 0 2 7 8 4 3 3 8 8 8 6 4 8 0 2 1 5 8 8 3 4 6 9 5 0 2 7 9 6 0 9
7 8 1 0 1 9 8 6 6 2 8 9 6 2 3 9 0 2 8 4 8 2 5 8 5 9 5 1 6 6 9 5 8 9 7 9 9 4 4
7 8 3 8 1 9 9 7 0 2 9 7 7 4 3 9 1 3 6 4 8 5 3 7 5 9 5 8 4 6 9 7 7 1
7 8 3 9 2 0 2 9 9 3 0 3 4 8 3 9 5 1 8 4 9 9 0 6 6 0 5 1 2 6 9 8 9 9
8 1 1 9 2 0 3 5 2 3 0 9 7 6 3 9 6 3 3 5 0 2 4 6 6 0 5 8 2 6 9 9 5 5
8 2 5 1 2 0 4 7 1 3 1 0 1 2 3 9 9 3 1 5 0 2 5 8 6 0 7 0 5 7 0 2 4 5
8 4 4 0 2 0 4 9 7 3 1 8 2 0 4 0 2 9 0 5 0 4 2 9 6 0 7 6 8 7 0 3 8 1
9 0 6 0 2 0 5 3 8 3 2 5 6 8 4 0 7 9 6 5 0 4 7 6 6 1 3 6 2 7 0 4 3 6
Næstu útdrættir fara fram 11. des, 18. des, 23. des 2008 & 2. jan 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is
Fleiri minningargreinar um Sig-
urð Guðmundsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu næstu daga.