Morgunblaðið - 05.12.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Fyrirtækið Kimi Records ætlarekki að taka þátt í Íslenskutónlistarverðlaununum í ár
þar sem þeim hugnast ekki að
„keppa í tónlist þar sem þátt-
tökugjalds er krafist“. Jafnframt líta
þeir „á þetta sem samkomu þar sem
megintilgangurinn er að auka jóla-
söluna“, eins og fram kom í gær. Af
því leiðir að þeir tónlistarmenn sem
Kimi Records eru með á sínum snær-
um eru ekki gjaldgengir á
uppskeruhátíð tónlistarútgefenda.
Sama hversu góðir þeir eru.
Og þar liggur hundurinn grafinn.Íslensku tónlistarverðlaunin
eru ekki uppskeruhátíð íslenskra
tónlistarmanna nema að hluta til.
Þau eru uppskeruhátíð þeirra sem
framleiða tónlist, hátíð markaðs-
aflanna. Útgefandinn verður að
leggja tiltekna fjárupphæð með
hverjum titli sem hann tilnefnir.
Pétur Grétarsson, fram-
kvæmdastjóri Íslensku tónlist-
arverðlaunanna, sagði í sömu frétt
að þeir hjá Kimi Records hefðu sagt
honum að „þeir væru í lausa-
fjárþurrð og hefðu þess vegna tekið
þessa ákvörðun“. Pétur áfellist að
sjálfsögðu ekki Kimi Records fyrir
að vilja ekki vera með. En orð hans
afhjúpa í raun veikleika hátíð-
arinnar, þá óþægilegu staðreynd að
þeir sem tilnefndir eru og komast að
lokum á verðlaunapall eru ekki endi-
lega þeir sem best eru að verðlaun-
unum komnir – það er hugsanlegt að
frábærir listarmenn fái hreint ekki
að vera með. Sem vitaskuld er afleitt
fyrir íslenskan tónlistarheim.
Íslensku bókmenntaverðlaunineru framkvæmd með sama hætti.
Verk á vegum þeirra sem ekki
borga koma ekki til greina, alveg
burtséð frá því hversu góð þau eru.
Bæði íslensku tónlistarverðlaunin og
bókmenntaverðlaunin eru því fyrst
og fremst markaðsverðlaun, en ekki
verðlaun þar sem horft er til list-
fengis, frumleika og annarra skap-
andi tilburða umfram allt annað.
Útgefendur bóka og tónlistar
handstýra því hvað er tilnefnt og
þurfa í raun ekki að gera grein fyrir
ákvörðunum sínum í þeim efnum.
Margir hafa undrast það að á lista
tilnefninga í fagurbókmenntum er
ekki ein einasta ljóðabók. Með hlið-
sjón af því að í ár kom til að mynda
út enn eitt hljóðlátt stórvirkið eftir
Þorstein frá Hamri er tæpast hægt
að gera því skóna að skortur á góð-
um ljóðum hafi verið ástæðan.
Það liggur í eðli markaðs-
lögmálanna að vilja fá sem mest út
úr öllum fjárfestingum. Ef útgef-
endur borga ekki með öllum verkum
sínum verður að spyrja hvaða sjón-
armið liggi að baki vali þeirra verka
sem þeir leggja fram. Þau gætu ver-
ið hvað sem er; tískusveiflur, sölu-
vænleiki – eða bara kunnings-
skapur. Þar fyrir utan fer auðvitað
mikið fyrir þeim stærstu á mark-
aðinum, hætta er á því að litlu útgef-
endurnir sjáist seint eða illa í svona
fyrirkomulagi og geti því aldrei veitt
stórlöxunum verðuga samkeppni.
Það er athyglisvert að þau tvenn
verðlaun á sviði lista sem ekki eru
markaðsverðlaun, Sjónlistaverð-
launin og Íslensku þýðingaverðlaun-
in, láta minnst yfir sér og vekja jafn-
an minnsta athygli meðal
þjóðarinnar. Þar er þó tilnefnt al-
gjörlega óháð „framleiðanda“; list-
ræn gildi eru eini mælikvarði fag-
lega skipaðrar valnefndar, þar sem
allt er fellur undir greinina og vel er
gert kemur til greina.
Er ekki kominn tími til að efna til
verðlauna sem standa undir nafni
sem höfuðverðlaun tveggja vinsæl-
ustu listgreina landsins, óháð mark-
aðsöflunum? Á því myndu allir
græða, tónlistin og bókmenntirnar,
listamennirnir – og auðvitað mark-
aðsöflin að lokum!
Tilnefningar til markaðsverðlauna
AF LISTUM
Fríða Björk Ingvarsdóttir
» Þeir sem tilnefndireru og komast að lok-
um á verðlaunapall eru
ekki endilega þeir sem
best eru að verðlaun-
unum komnir.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Benni Hemm Hemm Á enga möguleika á að komast á verðlaunapall.
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
SÝND Í SMÁRABÍÓI
500 kr.
V
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
EMPIRE- S.V., MBL
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
VESTRI AF BESTU GERÐ
Brjálæðislega
fyndin mynd
í anda
American Pie!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
M.A. BESTI LEIKSTJÓRI
OG BESTA HANDRIT
5 EDDUVERÐLAUN!
ÆÐISLEG GAMANMYND
SEM KEMUR Á ÓVART
-S.M.E., MANNLÍF -IcelandReview
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Four Christmases kl. 4-6-8-10 B.i. 7 ára
Four Christmases kl. 4-6-8- LÚXUS
Zack and Miri ... kl. 5:45-8-10:15 B.i. 16 ára
Quantum of Solace kl. 5:30- 8-10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 10 LÚXUS
Nick and Norah´s kl. 8 - 10:10 LEYFÐ
My best friends girl kl. 5:40 B.i. 14 ára
Igor kl. 3:45 LEYFÐ
Sýnd kl. 4, 5 og 6 ísl. tal
- Roger Ebert
- TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - S.V., MBL
Sýnd kl. 8 og 10
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND
SEM KEMUR ÞÉR Í JÓLASKAP
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
FRÁBÆR MYND!
HIKLAUST FYNDNASTA MYND ÁRSINS!
www.laugarasbio.is
Jólamynd fjölskyldunnar er
komin, geggjuð grínmynd
sem kemur öllum í rétta
jólaskapið!
Madagascar er ein vinsælasta
teiknimynd allra tíma!
-bara lúxus
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
HÖRKUSPENNANDI MYND UM
SPILLTA LÖGREGLUMENN
Sýnd kl. 7:45 og 10:15
Sími 553 2075
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
59.000 MANNS
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
- Þ.Þ., DV
- Ó.H.T., Rás 2
-S.V., MBL
RENÉ ZELLWEGER
JEREMY IRONS
VIGGO MORTENSEN
ED HARRIS