Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 8

Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is „Ég leyfi mér að efast um að endurskoðendur hafi haft fulla yfirsýn hvað var að gerast hjá mörg- um af þessum félögum. Þau voru oft dreifð út um allan heim,“ segir Aðalsteinn Hákonarson, deild- arstjóri hjá ríkisskattstjóra, en hann skrifaði grein í desemberhefti Tíundar, fréttablaðs ríkisskatt- stjóra, um skuldsettar yfirtökur og samruna fyr- irækja hérlendis. Þar segir hann að viðskiptalífið á Íslandi hafi snúist um vissar blekkingar sem sner- ust um að sýna eins góða fjárhagsstöðu fyrirtækja og mögulegt var með því að færa allar eignir þeirra til bókar á hæsta mögulega verði. Vill breyta starfsumhverfi endurskoðenda Aðalsteinn vill þó ekki meina að endurskoð- endur hafi verið blekktir en starfsumhverfi þeirra hafi gert stöðu þeirra mjög viðkvæma. „Það sam- band sem er milli verkaupandans, fyrirtækjanna, og endurskoðandans er mjög viðkvæmt því að það er hægt að henda endurskoðandanum út ef menn eru óánægðir með hann. Ég hef talið mjög nauð- synlegt að tryggja starfsumhverfið með þeim hætti að endurskoðendur verði skipaðir til fimm ára í þessum stærri félögum og fjármálafyrir- tækjum og hættu síðan að þeim tíma loknum. Þannig hafa þeir ákveðið öryggi og gætu beitt sér af fullum þunga. Ég hef það á tilfinningunni að þeir hafi ekki alltaf getað það. Stjórnendur félaga eru alltaf að sýna stöðu sem eykur virði hlutabréf- anna. Ég held að tiltekin varúðarsjónarmið, sem mikilvægt er að hafa til hliðsjónar í reiknings- skilum, hafi stundum verið lögð til hliðar. Þegar spennan og hraðinn verður svona mikið, líkt og hér var, verður þáttur endurskoðendanna minni en þáttur stjórnendanna dálítið yfirgnæfandi. Þarna voru kraftar sem toguðust á.“ Milljónir breytast í milljarða Að mati Aðalsteins varð ákveðin breyting á ís- lensku viðskiptalífi á árunum 2002 til 2003 þegar ódýrt lánsfé fór að streyma hingað til lands frá As- íu. „Í kringum þennan tíma fóru milljónir að breyt- ast í milljarða. Þá tútna efnahagsreikningarnir út. Reikningar bankanna margfaldast og fyrirtækj- anna líka. Heildareignir voru alltaf að aukast vegna þess að menn voru alltaf að kaupa ný og ný fyr- irtæki.“ Aðalsteinn var á sínum tíma stjórnarformaður KPMG og einn aðaleigenda fyrirtækisins. Í störf- um sínum sem endurskoðandi sinnti hann meðal annars endurskoðun á félagi sem heitir Fjárfar, sem síðar kom í ljós að var í eigu Baugs. Viðskipti Fjárfars voru umfjöllunarefni fyrsta kafla ákær- unnar í Baugsmálinu. Þeim hluta málsins var vísað frá dómi þar sem hann þótti lýsa viðskiptum, ekki lögbroti. Aðalsteinn var tvívegis kallaður til yfirheyrslu vegna málsins. Hann hætti störfum hjá KPMG í kjölfarið. Honum fannst hann hafa verið blekktur þegar hann tók að sér endurskoðun Fjárfars enda var honum ekki gerð grein fyrir því að félagið til- heyrði Baugssamstæðunni. „Þarna var verið að leyna ákveðnu eignarhaldi með því að fá aðra til að fronta eignarhaldið. Venjan er sú að þegar endur- skoðendur eru valdir endurskoða þeir alla sam- stæðuna. Það kom síðar í ljós að þetta félag til- heyrði Baugssamstæðunni. Ef endurskoðendur Baugs hefur endurskoðað þetta félag eins og önn- ur í þeirra eigu hefðu þeir áttað sig á því að þarna var ekki allt í lagi. En það tókst með því að velja ut- anaðkomandi aðila, sem vann ekki hjá samstæð- unni, að koma ákveðnum hlutum framhjá.“ Skorti yfirsýn á umfangi Aðalsteinn Hákonarson vill breyta starfsum- hverfi endurskoðenda Morgunblaðið/Sverrir KPMG Aðalsteinn er fyrrum stjórnarformaður KPMG auk þess sem hann var einn aðaleigandi fyr- irtækisins. Hann hætti störfum þar fyrir um fjórum árum og hefur starfað hjá ríkisskattstjóra síðan. Aðalsteinn var tvívegis yfirheyrður á rannsókn- arstigi Baugsmálsins, 14. júlí 2004 og 31. maí 2005, þar sem hann var endurskoðandi Fjár- fars. Aðalsteinn sagði við fyrri yfirheyrsluna að hann taki „fram að honum finnist allt þetta mál varðandi Fjárfar með ólíkindum“. Við síðari yfirheyrslu sagðist Aðalsteinn vilja „árétta að hann hafi þarna verið í samskiptum við fyrrverandi starfsfélaga sinn til að minnsta kosti 19 ára, Tryggva Jónsson. Aðalsteinn segir að vinna hans hafi byggst á trausti við Tryggva. Aðalsteinn segir að hann líti svo á að hann hafi sem endurskoðandi félagsins [Fjár- fars] verið blekktur af Tryggva Jónssyni. Að- alsteinn segir enn fremur að hann telji að það hafi verið ásetningur Tryggva að leita til hans með endurskoðun Fjárfars ehf., og hafi það verið hluti af blekkingarferli sem verið hafi með eignarhald og rekstur Fjárfars ehf. því að ef endurskoðendur Gaums ehf. eða Baugs ehf. hefðu annast endurskoðunina hefðu rang- færslur uppgötvast.“ Vitnisburður Aðalsteins vegna Baugsmálsins Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is BYRJAÐ var í gær að rífa einn af fáum gömlum eikarbátum sem enn voru eftir hér á landi. Talið var að Hilmir ST-1 væri orðinn slysagildra þar sem hann stóð á hól skammt frá bryggjunni á Hólmavík. Vonir voru á sínum tíma bundnar við að takast mætti að varðveita bátinn sem merk- an kafla í atvinnusögu við Steingrímsfjörð, en af því verður ekki. „Þetta er ósköp, ósköp sárt, en því miður varð þetta ekki umflúið,“ sagði Ásdís Leifsdóttir sveitarstjóri Strandabyggðar í gær. „Það hefur ekki mikið verið gert fyrir bátinn, sem er einn af elstu eikarbátunum, frá því að hann var dreginn upp á land með samþykkt sveitarstjórnar árið 1996. Félagið Mummi, sem stofnað var um varðveislu bátsins, hafði ekki burði til að endursmíða hann. Því miður var bát- urinn orðinn mikið skemmdur og enginn sómi sýndur þar sem hann grotnaði niður.“ Hefja þurfti endursmíði 1996 Að sögn Ásdísar sá Byggðasafnið sér ekki fært að taka bátinn upp á sína arma og skipa- verkfræðingur sem skoðaði bátinn úrskurðaði hann nánast ónýtan. „Í rauninni hefði þurft að hefjast handa við endursmíði og varðveislu báts- ins strax eftir að hann var dreginn á land árið 1996,“ sagði Ásdís. Hilmir var smíðaður árið 1942 og hafði smíðanúmer 1 úr dráttarbrautinni í Keflavík segir á strandir.is. Gamall eikar- bátur rifinn á Hólmavík Morgunblaðið/Kristín Einn af þeim síðustu Mörgum er eftirsjá að eikarbátnum Hilmi ST-1 sem byrjað var að brjóta niður á Hólmavík í gær. Báturinn gegndi stóru hlutverki í atvinnusögunni. GUÐBJÖRG Að- albergsdóttir hefur verið skip- uð í embætti skólameistara Framhaldsskól- ans í Mosfellsbæ til fimm ára frá 15. janúar nk. Guðbjörg lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1988, BA í íslensku frá Háskóla Íslands 1993 og hlaut kennsluréttindi 1994. Hún starfaði sem áfangastjóri og íslenskukenn- ari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja til 2004 og síðan sem skólastjóri Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Skipuð skólameist- ari í Mosfellsbæ Guðbjörg Aðalbergsdóttir MENNTAMÁLARÁÐHERRA hefur ákveðið að skipa sérstaka verkefn- isstjórn til að leggja drög að stefnu- mótun ráðuneytisins á sviði háskóla- mála og vísinda til að bregðast við breyttum aðstæðum í atvinnu- og efnahagsmálum. Ráðherra mun einnig skipa sérstaka ráðgjafarnefnd með þátttöku erlendra sérfræðinga. Ný verkefnisstjórn LÖGREGLAN, slökkviliðið, björg- unarsveitir og sjúkraflutningamenn fengu afhentar í gær bráðaflokk- unartöskur til notkunar þegar slys ber að höndum. Um er að ræða kerfi til forgangsflokkunar sjúklinga. Við bráðaflokkun eru sjúklingar merktir með litaspjöldum, grænum, rauðum eða gulum eftir áverkum. Á spjöldunum eru einnig raðnúmer auk þess sem hægt er að skrá lág- marksupplýsingar um áverka og heilsufar. Nýtt kerfi til að flokka sjúklinga Morgunblaðið/RAX STUTT Úr bréfi Jóns E. Alfreðssonar kaupfélags- stjóra til sveitarstjóra Strandabyggðar sem birt er á strandir.is: Ég ítreka enn einu sinni að ég tel það slys varðandi atvinnusögu Hólmavíkur að rífa þennan bát, en saga hans er samofin útgerðarsögu þorpsins í meir en fimmtíu ár. Hilmir kom til Hólmavíkur á sjó- mannadaginn, lýðveldisárið 1944, og voru þá liðin 2 ár frá smíði hans. Á honum voru stundaðar fleiri tegundir veiðskapar næstu hálfa öldina en almennt gerðist. Má þar nefna, handfæraveiðar, línuveiðar..., hringnót- arveiðar á Norðurlandssíld, með 9-10 manns í áhöfn, síldveiðar í reknet, smásíldarveiðar til beitu í landnót, dragnótarveiðar, hörpudisks- veiðar, smokkfisksveiðar til beitu, einstaka hákarlaveiðitúrar og síðast en ekki síst rækjuveiðar, bæði innfjarða og úthafsveiðar. Síðasti róður Hilmis var í apríl 1995. Hilmir fengi nýtt hlutverk Stefán Gíslason, fyrrverandi sveitarstjóri, skrifar á strandir.is: „Við, þessir bjartsýnu menn, ólum með okkur draum um nýtt hlut- verk fyrir Hilmi, Hólmvíkingum og ferða- mönnum nútíðar og framtíðar til fróðleiks og yndisauka. Draumurinn var að Hilmir yrði gerður aðgengilegur á þurru landi sem nokk- urs konar safn um útgerðarsögu Húnaflóa, enda var báturinn þá þegar einn af fáum sæmilega heillegum eikarbátum frá upphafi lýðveldisins, auk þess að hafa leikið einstakt hlutverk í atvinnusögu Hólmavíkur. En bjart- sýni og afl til framkvæmda fara ekki alltaf saman.“ Slys varðandi atvinnusögu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.