Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
ÚTLITIÐ í efnahagsmálum á Norð-
urlöndum er ekki gott, raunar kol-
svart að flestra dómi, og atvinnuleys-
istölurnar hækka dag frá degi. Er í
raun spáð kreppu um heim allan á
næsta ári en góðu tíðindin eru þau,
að flestir eru sammála um, að hún
muni ná hámarki er líður á árið og þá
muni aftur fara að birta til.
Í Danmörku þar sem atvinnuleysi
hefur lengi verið mjög lítið hellast nú
inn boðanir um hópuppsagnir og
Danske Bank spáir því, að 100.000
störf a.m.k. muni hverfa á næsta ári.
Eru horfurnar svo daprar, að Kristi-
an Jensen, skattamálaráðherra í
dönsku stjórninni, segir, að ekki
verði komist hjá niðurskurði í vel-
ferðarmálum nema gripið verði til
víðtækra umbóta.
Í Noregi er
staðan svipuð og í
Danmörku. At-
vinnuleysi þar er
enn ekki nema
2% en vex hratt í
öllum greinum
nema kennslu.
Mest er aukning-
in í iðnaði og
verslun, einkum
byggingariðnaði þar sem það hefur
tvöfaldast á þessu ári.
Búist er við, að sænski seðlabank-
inn lækki stýrivexti úr 2% í 1% í
febrúar en í Svíþjóð er atvinnuleysið
komið yfir 7%. Hafa fyrirtæki boðað
uppsögn þúsunda manna og mikil
óvissa er um framtíð bílaiðnaðarins.
Því er þó almennt spáð, að Volvo
muni lifa af hverjir sem eigendurnir
verða en margir telja, að Saab sé nú
að syngja sitt síðasta.
Kreppuárið 2009
Danski bankinn Saxo Bank spáir
því, að kreppan láti alls staðar að sér
kveða á næsta ári. Þá muni gengi
hlutabréfa í Bandaríkjunum falla um
50%, olíuverðið fara í 25 dollara og
hagvöxtur í Kína verði enginn. Þá
telja greinendur bankans, að hætta
sé á, að Ítalir neyðist til að hætta
þátttöku í Evrópska myntbandalag-
inu og þeir spá miklum erfiðleikum í
Íran vegna olíuverðslækkunarinnar.
svs@mbl.is
Vaxandi atvinnuleysi
Farið er að kreppa verulega að á Norðurlöndum og
sérfræðingar í efnahagsmálum spá engu góðu um næsta ár
Mestur samdráttur
er í byggingavinnu.
UNGUR trúður, sem kallar sig „Litlu tönn“, heldur á
mynd af Meynni frá Guadalupe, mesta þjóðardýrlingi
Mexíkóa. Hátíð hennar hefst 12. desember og hún er
svo mikilvæg fyrir þjóðarvitundina, að sagt hefur ver-
ið, að fólk geti kastað trúnni en hætti það að tigna
Meyna frá Guadalupe, þá sé það ekki lengur Mexíkóar.
AP
Hátíð Meyjarinnar frá Guadalupe
ROWAN Willi-
ams, erkibiskup
af Kantaraborg,
segir, að kreppan
nú sé „nauðsyn-
leg hugvekja“ á
tímum skefja-
lausrar græðgi
og hann segist
andvígur þeirri
aðferð stjórn-
valda að ausa út
fé í efnahagslífið. Það sé eins og að
„troða fíkniefnum ofan í eiturlyfja-
neytanda“.
Williams sagði, að fjármálafyr-
irtæki hefðu ætt áfram í algeru fyr-
irhyggjuleysi og ættu nú að biðjast
opinberlega afsökunar. Almenning-
ur hefði hins vegar látið hrífast
með og trúað þeim boðskap, að
auðlegðin gæti vaxið endalaust án
þess að nokkur framleiðsla byggi
að baki.
Hættulegt eftirlitsleysi
Biskupinn gagnrýndi líka stjórn-
völd harðlega fyrir að hafa auðveld-
að fjármálamönnunum ábyrgðar-
leysið síðastliðin 15 ár með því að
afnema boð og bönn og kvista niður
regluverkið. „Við höfum nú lært þá
lexíu, að eftirlitslítil fjármálastarf-
semi er gersamlega út í hött.“
Williams sagði, að erfiðir tímar
væru í vændum fyrir marga, eink-
um þá, sem misstu vinnuna, en nú
væri kominn tími til að huga að
eðlilegum grundvelli undir efna-
hagslífið og velferðarkerfið. Nú
þyrftu menn að fara að sýna
ábyrgð og velta fyrir sér hinum
sönnu gildum. svs@mbl.is
Kreppan á að
vera áminning
Afleiðing græðgi og ábyrgðarleysis
Rowan Williams
Í HNOTSKURN
» Fjármálakreppan hefurleikið Breta grátt. Ríkið
hefur neyðst til að yfirtaka
nokkra banka, kaupmáttur
hefur minnkað og atvinnuleysi
stóraukist.
» Gengi breska pundsinshefur hrapað og í gær
munaði litlu á því og evrunni.
» Um 500.000 húseigendur íBretlandi eru nú í þriggja
mánaða vanskilum eða meira
með afborganir.
„FARÞEGAR athugið! Hér kemur
áríðandi tilkynning. Því miður hef
ég ekki kunnáttu til að lenda flug-
vélinni.“
Þannig hljóðaði tilkynningin frá
flugstjóra farþegavélar, sem var á
leið frá Cardiff í Wales til Parísar í
Frakklandi. Skýrði flugstjórinn
farþegunum frá þessu leyndarmáli
sínu skömmu áður en vélin átti að
lenda á Charles de Gaulle-flugvelli í
París og að sjálfsögðu brá þeim
heldur en ekki í brún.
Að því er segir í breska blaðinu
Daily Mail var ástæðan fyrir til-
kynningunni sú, að mikil og svört
þoka var í París en flugstjórinn,
sem hefur 30 ára reynslu sem flug-
maður, hafði skömmu áður verið
fluttur af annarri flugvélartegund
og yfir á þá, sem hann stýrði nú, en
án þess að fá æfingu í því að lenda
henni í þoku.
Vegna þokunnar var vélinni snú-
ið aftur til Cardiff en farþegarnir
báðust fyrir í hljóði og vonuðu, að
þar væri engin þoka.
svs@mbl.is
Kunni ekki að lenda
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
U
T
I
44
21
0
11
.2
00
8
Skíðapakkar
20% afsláttur
Skíðadeildin er í Glæsibæ
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim!
Ekta saliskur lbúinn l útvötnunar.
Tímarnir breytast en saliskurinn frá
Ekta ski, þessi gamli góði með
íslenskum kartöum og smjöri, stendur
alltaf fyrir sínu.
Sérútvatnaði saliskurinn er sérstaklega
hentugur í seiðandi saliskré Fæst um allt land. Hafðu samband!
466 1016
www.ektafiskur.is
Bæklingur á 4 tungumálum ummeðferð og eldun fylgir með.