Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 21

Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is MEÐ efnahagsumbótum síðustu þriggja áratuga hafa Kínverjar lagt grunninn að risastórum borgum sem eiga eftir að rísa meðfram strönd Kína á næstu áratugum. Gert er ráð fyrir því að íbúar borganna verði alls um milljarður fyrir árið 2030. Sérfræðingar telja að hröð borga- myndun verði erfiðasta úrlausnar- efni Kínverja næstu þrjá áratugina vegna mikillar mengunar og gífur- legra fólksflutninga í þéttbýlið af strjálbýlli svæðum. Sérfræðingarnir spá því að íbúum borganna fjölgi úr 572 milljónum í 926 milljónir fyrir árið 2025, eða um 354 milljónir. Íbúarnir sem bætast við eru því fleiri en allir íbúar Banda- ríkjanna nú. Gert er ráð fyrir því að á næstu tveimur áratugum verði reistir 20.000-50.000 nýir skýjakljúfar í Kína – eða ígildi tíu New York- borga, að sögn ráðgjafarfyrirtækis- ins McKinsey & Co. Byggja þarf upp almenningssamgöngukerfi í 170 borgum fyrir árið 2025 og fyrirtækið lýsir því sem mestu framkvæmdum sögunnar á því sviði. Hraðri borgamyndun fylgja mörg önnur erfið úrlausnarefni. T.a.m. er líklegt að orku- og vatnseftirspurnin í kínverskum borgum tvöfaldist. Ræktarland verður lagt undir borgirnar og líklegt er að fólk með litla menntun og fagkunnáttu flykk- ist úr sveitunum og búi í hreysum við útjaðar borganna, með tilheyrandi hættu á aukinni fátækt og glæpa- starfsemi, að sögn Mu Guangzong, prófessors við Peking-háskóla. „Á sama tíma hverfur unga fólkið úr mörgum sveitaþorpum og hver á þá að rækta landið?“ Reuters 30 ára umbætur Byggingarverkamaður að störfum í borginni Xiangfan í Hubei-héraði. Kínverjar minnast þess nú að 30 ár eru liðin síðan Deng Xiaoping hóf efnahagsumbætur sem hafa leitt til gríðarlegs hagvaxtar í Kína. Reisa á allt að 50.000 nýja skýjakljúfa Geysihröð borgamyndun erfiðasta úrlausnarefni Kínverja Í HNOTSKURN » Aðeins um 45% íbúa Kínabúa nú í borgum en rúm- lega 80% íbúa Bandaríkjanna. » Ráðgjafarfyrirtækið Kin-sey & Co leggur til að myndaðar verði 15 risastórar borgir í Kína, með 25 milljónir íbúa hver að meðaltali. SKURÐLÆKNAR í Bandaríkj- unum skýrðu frá því í gær að þeir hefðu grætt andlit á konu sem hafði orðið fyrir skelfilegum meiðslum. Konan var ekki með neitt nef, engan efri góm, gat hvorki borðað né andað sjálf. Andlitið var svo ófrýnilegt að börn sem sáu konuna ráku upp ösk- ur og forðuðu sér í ofboði. Andlitið var grætt á konuna fyrir hálfum mánuði. Læknarnir sögðu að konunni liði vel og ekki hefðu komið fram nein merki um að líkaminn hafnaði nýja andlitinu. Hætta á fylgikvillum Aðgerðin hefur vakið ýmsar sið- fræðilegar spurningar. Ólíkt líffæra- ígræðslum er ráðist í andlits- ágræðslur til að bæta líf sjúklinga, ekki til að lengja það. Hætta er á að sjúklingurinn fái banvæna fylgi- kvilla og hann þarf að taka inn ónæmislyf það sem eftir er ævinnar til að koma í veg fyrir að líkaminn hafni andlitinu – lyf sem auka hætt- una á krabbameini, lifrarbilun og fleiri fylgikvillum. Læknarnir kom- ust þó að þeirri niðurstöðu að að- gerðin væri réttlætanleg og nauð- synleg í ljósi aðstæðna konunnar. Fyrir hana var konan aðeins með efri augnlok, enni, neðri vör og höku. bogi@mbl.is Fékk nýtt andlit ANDLIT GRÆTT Á KONU Skurðlæknar hafa breytt um 80% af andliti konu með því að græða á það bein, tennur, vöðva og taugar. Þetta er fyrsta andlitságræðslan í Bandaríkjunum. Aðgerðin tók 22 klukkustundir. Átta sér- fræðingar önnuðust aðgerðina í Cleveland í Ohio fyrir tveimur vikum. Þeir græddu um 500 fersentímetra af vefjum á konuna. Konan hafði misst auga, stóran hluta nefsins og efri kjálkann, þannig að hún missti bragð- og lyktarskyn og gat ekki brosað. Ekki hafa verið veittar frekari upplýsingar um konuna eða hvað kom fyrir hana. 1 Læknarnir notuðu vefi úr nýlátinni konu sem hafði samþykkt að gefa þá. 2 Að sögn læknanna er búist við því að sjúklingurinn geti borðað, talað og andað eðlilega eftir aðgerðina. 3 Andlits- vöðvar Allt nefið Efri vör Efri kjálki (ásamt tönnum) Hörund með andlitstaugar og æðar Bandaríkin Cleveland Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Eldspýtur og kveikjarar eru ekki barna meðfæri. Staðsetjið kveikjara og eldspýtur ávallt þar sem börn ná ekki til. Til eru kveikjarar með barnalæsingum sem eiga að koma í veg fyrir að börn geti kveikt á þeim Munið að slökkva á kertunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.