Morgunblaðið - 19.12.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 19.12.2008, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Íslenska efna-hagsundrinu,sem svo var kallað, er ágæt- lega lýst í grein Aðalsteins Hákonarsonar, deildarstjóra hjá ríkisskatt- stjóra, í fréttabréfinu Tíund sem sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær. Lýsir hann því hvernig íslenskir fjárfestar komust hjá því að borga fyrir keyptar eignir. „Þeir keyptu fyrirtæki og létu fyrirtækin sjálf, sem keypt voru, greiða kaupverðið í gegnum eignalausan sam- runa. Með því að hengja skuldir utan á fyrirtækin með samruna eftir kaupin, setja þau síðan á markað og selja hlutina í þeim til lífeyrissjóða og almennings á enn hærra verði en keypt hafði verið á, þrátt fyrir skuldsetninguna, gátu forvígismennirnir skap- að sér miklar tekjur,“ segir Aðalsteinn. Með uppfærslu á viðskiptavild (eitt einkenni þess bóluhagkerfis sem hér hefur viðgengist) var eig- infjárstöðu félaganna við- haldið þrátt fyrir auknar skuldir. Svo stórtækar voru þessar skuldsettu yfirtökur að er- lendir fjölmiðlar lýstu Íslandi sem risastórum vogunarsjóði. Þá þótti ástæða til að halda ráðstefnur erlendis þar sem spurt var hvaðan peningar Ís- lendinga kæmu. Svarið var einfalt. Þeir fengu þá einfaldlega að láni. Það var samt eins og allir skelltu skollaeyrum við þeim viðvörunarbjöllum sem klingdu og sem fjölmiðlar, meðal annars Morgunblaðið snemma árs 2006, greindu frá. Sú gagnrýni, sem helst birtist í álitsgerðum erlendra banka, var afgreidd sem þvættingur. Fullyrt var að fjármögnun fjármálafyrirtækjanna væri góð og lausafjárstaða til næstu mánaða bæri vott um það. Það var sameiginlegt hags- munamál, bæði fjárfesta og fjármálastofnana, að dæmið gengi upp. Og það voru ekki bara Íslendingar sem trúðu á efnahagsundrið því íslenskir bankar fengu líka lán hjá er- lendum fjármálastofnunum til að fjármagna ævintýrið. Þeg- ar ljóst var að erfiðleikar steðjuðu að fjármálakerfi heimsins var erfitt að vinda ofan af ástandinu. Mikil skuld- setning og smæð hagkerfisins gerir það að verkum að höggið bitnar illa á íslensku þjóðinni. Það þurfti alþjóðlega kreppu til að ljósið rynni upp fyrir fólki og það tryði grein- um eins og Aðalsteinn skrifar. Í núverandi hremmingum felst lærdómur fyrir framtíð- ina. Viðskiptalífið má ekki þrífast áfram á blekkingum. Blekkingarnar burt úr viðskiptalífinu}Blekkingarleikur Það er vel tilfundið hjá Auði Capital að stofna sérstakan sjóð til styrktar sprotastarfsemi á Íslandi. Og vel við hæfi að gera það í samstarfi við Björk Guð- mundsdóttur, sem hefur unn- ið ötullega að því að draga fram hugmyndir að sprota- fyrirtækjum og vekja athygli á þeim. Sjóðurinn ber nafn Bjarkar og honum er ætlað að styðja sérstaklega við umhverfis- væna starfsemi. Halla Tóm- asdóttir, stjórnarformaður Auðar Capital, segir stefnuna jafnframt þá að styrkja fyrir- tæki sem séu fjárhagslega arðbær og stundi samfélags- lega ábyrga stjórnarhætti. Stefna Bjarkar verður í samræmi við þann boðskap, sem þekktur umhverfis- verndarsinni, Paul Hawken, boðaði hér á landi í liðinni viku. Hawken, sem var hér á landi í boði Bjarkar Guð- mundsdóttur og nattura.info, benti á að umhverfið væri hin hagnýta framtíðarfjárfesting. Í viðtali við Morg- unblaðið sl. sunnudag sagði hann m.a. að Ís- land ætti tvær auðlindir, landið og fólkið sjálft. „Landið á aðeins eftir að verða verðmætara vegna sérstöðu þess og hreinleika. Ísland er góð uppspretta vitneskju, nýsköpunar, hug- myndaauðgi, athafna- mennsku og menntunar.“ Auður Capital og Björk Guðmundsdóttir líta til nýrr- ar framtíðar með stofnun fagfjárfestasjóðsins. Halla Tómasdóttir bendir réttilega á, að æskilegt sé að stjórn- völd setji fram nýsköpunar- stefnu. En hún tekur líka fram, að nú sé grasrótin, fólkið í landinu, orðin öflugri og hún eigi að setja fram framtíðarsýn fremur en stjórnvöld. Vonandi munu fjárfestar átta sig á mikilvægi þess að styrkja Björk. Sjóðurinn er enn sem komið er sjálfur sproti, en getur leitt upp- byggingu á samfélagslega ábyrgan hátt. Vísir að ábyrgri uppbyggingu}Björk hlúir að sprotum Þ egar í harðbakkann slær horfum við til gullaldarinnar. Þetta skin í fortíðinni sem „lýsir sem leiftur um nótt/langt fram á horfinni öld“. Jónas Hallgrímsson í draumkvæði sínu „Íslandi“ horfir af sjón- arhóli hlutafátæktar 19. aldar og sér gullöld- ina í ljóma tíðra skipaferða sem fluttu varn- inginn heim. Við aftur á móti í neyslufári nútímans myndum seint sjá drekkhlaðin gámaskip sem ímynd hamingjunnar, miklu fremur ávísun á vesen. En Jónasi er kannski annað afrek hug- stæðara þegar hann beinir sjónum að þinginu, nefnilega þetta undur að í þrjár aldir rífar bjó þjóðin við þjóðfélagsskipan sem haldið var saman af eintómum lagaákvæðum – án kóngs og framkvæmdavalds. Það er ekki laust við undrun og hneykslan í máli Vilhjálms kardín- ála af Sabína sem um miðja 13. öld „kallaði það ósann- legt að land það þjónaði eigi undir einhvern konung sem öll önnur í veröldinni“. Við vitum hvernig fór, borgarastyrjöldin sem geisaði á þrettándu öld og endaði með að steypa landinu í glöt- un. Fjórar ættir að sagt var sem vildu gína yfir því sem landið og þjóðin hafði að bjóða. Fræg eru ummæli bónda nokkurs í Eyjafirði sem aðspurður í hildar- leiknum miðjum hvort hann vildi styðja tiltekinn höfð- ingja svaraði: „Best að engi sé.“ Segja má að þetta hafi æ síðan verið viðvarandi verk- efni í íslensku þjóðfélagi: hvernig á að halda úti yfirstétt í landinu. Íslensk forréttinda- stétt getur illa þrifist á þessari örþjóð, hún þarf bakhjarl: norskan, danskan og eftir að þjóðin sagði skilið við Dani liðu ekki nema tvö ár þar til íslensk valdastétt hóf að leita hófanna vestur um haf til Bandaríkjanna. Bandaríski herinn á Íslandi – það vita nú all- ir sem vilja – var fyrst og síðast til að treysta bakfiskinn í íslenskri valdastétt, efnahags- lega og stöðulega. Afhending sjávaraflans í hendur útvalinna auðmanna var myndarlegt skref í þessa átt og svo einkavæðingin sem sigldi í kjölfarið og náði hámarki þegar bank- arnir voru færðir gæðingum flokkanna tveggja sem hvað rækilegast höfðu búið um sig í íslensku samfélagi. En því miður, fjármálaumsvifin voru meiri en mjóar herðar þjóðarinnar gátu borið. Og lærdóm- urinn nú sem fyrr: Ísland ber ekki forréttindastétt. „Best að hafa enga.“ Þetta er vert að hafa í huga nú þegar reisa skal úr rústum. Valið stendur um samfélag jafnaðar eða áframhaldandi klúður ad infinitum (enda- laust) eða öllu heldur ad nauseam (svo mann klígjar við). Hugsa sér ef við ættum ekki gullöld, ef við sæjum ekkert annað en myrkur þegar litið væri til baka. En við eigum gullöld, þetta skin í fortíðinni sem yljar og lýsir í senn. Líkt og með einstaklinginn sem gleðirík æska lyft- ir yfir hvaða hindrun sem er. peturgun@centrum.is Pétur Gunnarsson Pistill Gullöldin Ólíkur útreikningur daggjalda stofnana FRÉTTASKÝRING Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is F æði, húsnæði, umönnun, gæsla og margþætt þjónusta allan sólar- hringinn. Þetta má finna á ýmsum stofn- unum, bæði einkareknum og op- inberum. Á dögunum vaknaði spurn- ing um hvers vegna verð slíkrar alþjónustu virðist svo misjafnt, t.d. í fangelsi eða á hjúkrunarheimili. Þeg- ar betur er skoðað sést að þessar töl- ur eru ekki sambærilegar. Hólmfríður Árnadóttir, fjár- málastjóri hjá Fangelsismálastofnun, segir að talan um kostnað við fang- elsisdag, 24.500 kr., feli í sér allan kostnað sem tengist föngum í af- plánun. Það er fastan og breytilegan kostnað við rekstur fangelsanna og ýmsan annan kostnað. Þar má t.d. nefna dagpeninga til fanga sem ekki vinna og kostnað við atvinnu í fang- elsum, sem er mikilvægur þáttur í endurhæfingu fanga. Þá bendir Hólmfríður á að fangelsisrekstur krefjist margra starfsmanna. Meðalfjöldi fanga á dag var lengi vel 115 og stöðugildi 99, hlutfall fanga á hvert stöðugildi 1,16. Föngum hef- ur fjölgað og sé miðað við 134 fanga að meðaltali og óbreytt hlutfall fanga á starfsmann þyrftu starfsmenn að vera 115. Starfsmennirnir eru hins vegar 107 nú og hlutfallið því 1,25 fangar á stöðugildi. Að sögn Hólm- fríðar veldur þetta mjög auknu álagi sem kemur m.a. fram í yfir- vinnugreiðslum og veikinda- fjarvistum starfsmanna. Þá eru fang- ar veikari og erfiðari en áður og mikill umframkostnaður fylgir fjölg- un útlendinga. Hólmfríður segir að auk fæðis og hreinlætisvara, heilsuþjónustu, fangaflutninga, skráningar og annars sem snýr að hverjum einstaklingi valdi álagið á fangelsiskerfið hækkun flestallra kostnaðarliða. Þá eru fang- elsin mörg orðin gömul og viðhalds- frek. Allur viðhalds- og reksturs- kostnaður húsnæðis, fasteignagjöld, rafmagn og hiti er tekið með í kostn- aði við fangelsisdag. Einnig er stjórn- unarkostnaður og kostnaður við sér- fræðinga á vegum Fangelsismálastofnunar innifalinn. Svo dæmi sé tekið af stofnun sem annast aldraða fær Dvalar- og hjúkr- unarheimilið Grund 17.398 krónur á dag með þeim sem eru í hjúkr- unarrými en daggjöldin taka mið af hjúkrunarþyngd (RAI). Á Grund búa um 210 manns, flestir í hjúkrunar- rýmum, og full stöðugildi eru 209, að sögn Helgu J. Karlsdóttur starfs- mannastjóra. Hlutfall heimilismanna á hvert stöðugildi er því um einn á móti einum. Daggjöldum á dvalar- heimilum fyrir aldraða er ætlað að mæta „eðlilegum rekstrarkostnaði án viðhalds húsnæðis“ eins og segir í reglugerð um daggjöld stofnana sem ekki eru á föstum fjárlögum. Júlíus Rafnsson, framkvæmdastjóri Grund- ar, sagði að um 75% af daggjaldi séu launakostnaður og það sem eftir stendur séu lyf, matur og önnur þjón- usta sem veitt er. Að auki greiðir Tryggingastofnun ríkisins gjald til að mæta öllum al- mennum viðhaldskostnaði húsnæðis dvalar- og hjúkrunarheimila aldraðra en ekki stofnkostnað. Júlíus sagði að húsnæðisgjaldið, 2.404 kr/m2 á ári, sé aðeins brot af raunverulegum kostn- aði. Það samsvari rétt miðlungsgóðri mánaðargreiðslu fyrir húsnæðið. Til meiriháttar breytinga og endurbóta er mögulegt að fá 35-40% kostnaðar úr Framkvæmdasjóði aldraðra, en Júlíus sagði það ekki vera sjálfgefið. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hjúkrunarheimili Daggjöld á hjúkrunarheimilum og kostnaður við hvern fanga á dag er ekki alveg samanburðarhæft, segir Fangelsismálastofnun. FANGELSISDAGUR kostar nú að meðaltali 24.500 krónur, sam- kvæmt upplýsingum frá Fangels- ismálastofnun. Þetta gjald á að standa straum af öllum rekstri fangelsanna, samkvæmt upplýs- ingum frá Fangelsismálastofnun. Daggjald á hjúkrunarheimili er 16.903,50 kr. sé miðað við RAI- hjúkrunarþyngdarstuðul 1,0. Vist- gjald á dvalarheimili fyrir aldraða er 7.400 krónur á dag. Daggjöldum er ætlað að mæta eðlilegum rekstr- arkostnaði, án viðhalds húsnæðis, og hvers konar þjónustu sem vist- mönnum er látin í té. Að auki greið- ir Tryggingastofnun ríkisins gjald til að mæta viðhaldskostnaði dval- ar- og hjúkrunarheimila aldraðra. Gjaldið er nú 2.404 kr/m2 á ári. Það á að standa undir öllu almennu við- haldi húsnæðis en ekki stofnkostn- aði, afskriftum og meiri háttar breytingum og endurbótum. FÆÐI OG HÚSNÆÐI ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.