Morgunblaðið - 19.12.2008, Síða 26
AGA Gasol®
Afgreiðsla ÍSAGA, Breiðhöfða 11,
er opin virka daga frá kl. 8 til 17.
Þú
sé
rð
in
ni
ha
ld
ið
!
IS
A
-3
4
2
.3
–
ÍD
E
A
g
rafísk
h
ö
n
n
u
n
Alla daga frá kl. 10 til 22
Heimsend
ingarþjónu
sta
fyrir jólinM
undu
að
panta!
Þú færð allar nánari upplýsingar
um AGA Gasol hylkin,
þrýstiminnkara, slöngur og
sérlausnir hjá umboðsmönnum
okkar og í þjónustuveri
ÍSAGA í síma 577 3000.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
ÞRÓUN íslenskra
verkfræðistofa hefur
verið nátengd upp-
byggingu orkuiðnaðar-
ins á síðustu áratug-
um. Á fyrra tímabili
uppbyggingarinnar ár-
in 1968 til 1978 urðu í
fyrsta sinn til hér á
landi verkfræðistofur sem gátu tek-
ið þátt í stórum verkefnum sem þó
voru að jafnaði leidd af erlendum
verkfræðistofum. Þannig var það
t.d. við hönnun og byggingu Búr-
fellsvirkjunar og Sigölduvirkjunar.
Á núverandi uppbygging-
artímabili í orkuiðnaði sem hófst ár-
ið 1995 tók við næsta stig í þróun ís-
lensku verkfræðistofanna. Þá
færðust þær endanlega frá því að
vera tiltölulega lítil fyrirtæki yfir í
það að vera fyrirtæki sem geta
keppt um verkefni á alþjóðavísu. Er
nú svo komið að hjá þremur stærstu
fyrirtækjunum í greininni starfa
samtals um 950 manns á Íslandi.
Það er einnig ljóst, að mati undirrit-
aðra, að ef ekki hefði komið til þessi
mikla styrking verkfræðigeirans
fyrir tilstuðlan orkuiðnaðarins væru
innlendir aðilar ekki í stakk búnir til
að taka að sér verkefni utan Íslands
eða leiða undirbúning, hönnun og
byggingu stórverkefna eins og t.d.
álvers á Grundartanga, Kára-
hnjúkavirkjunar og tengdra verk-
efna, álvers í Helguvík, umfangs-
mikilla endurbóta hjá ISAL,
virkjana í Tungnaá og Þjórsá, gufu-
aflsvirkjana á Nesjavöllum og á
Hellisheiði o.fl. stórverkefna.
Að jafnaði 650 til 700
innlendir sérfræðingar
Til að greina þetta nánar er hér
birt tafla sem sýnir fjárfestingar í
orkuiðnaðnum á seinni hluta núver-
andi uppbyggingartímabils (árin
2003 til 2007). Miðað við að und-
irbúningur, hönnun og eftirlit sé
u.þ.b. 13% af heildarfjárfestingunni
Alþjóðlegur þekkingariðnað-
ur – Íslenskur orkuiðnaður
Eyjólfur Árni
Rafnsson og Sveinn
I. Ólafsson skrifa
um uppbyggingu í
orkuiðnaðinum
» Í raun hefur vöxtur
orkuiðnaðarins
stuðlað að einni hröð-
ustu uppbyggingu þekk-
ingariðnaðar sem þekk-
ist í íslenskri
atvinnusögu. Hann hef-
ur breytt ráðgjafarverk-
fræði úr innlendum
smáfyrirtækjarekstri í
alþjóðlega starfsemi ...
Eyjólfur Árni
Rafnsson
Sveinn I.
Ólafsson
Samtals fjárfest í Þar af undirbúningur Áætlaður fjöldi starfa
orku- og iðjuverum hönnun og eftirlit við undirbúning
Milljarðar ISK. Milljarðar ISK. hönnun og eftirlit
2003 29,7 3,9 314
2004 43,7 5,6 452
2005 103,6 13,5 1089
2006 133,0 17,3 1395
2007 94,0 12,2 983
Á DAGSKRÁ Al-
þingis er þessa dag-
ana staða Rík-
isútvarpsins á
auglýsingamarkaði.
Gárur þessa máls ná
langt út fyrir það
hvort Skjár 1 geti
haldið áfram sínu
starfi eða Stöð 2 fái
stærri hluta auglýs-
ingakökunnar á sinn disk en áður.
Viljinn stendur til þess að á þess-
um markaði starfi einkareknar
stöðvar samhliða ríkisbatteríinu,
enda sé því hollt að hafa sam-
keppni.
Undanfarna áratugi hefur Rík-
isútvarpið staðið menningarvaktina
í síbreytilegu umhverfi. Leikvöll-
urinn breyttist umtalsvert með til-
komu einkarekinna stöðva en kraf-
an á Ríkisútvarpið er ávallt sú
sama: að þar sé sinnt öryggis- og
menningarhlutverki
sem að öðrum kosti
dytti upp fyrir og
hyrfi.
Hvort öryggis-
hlutverkið er jafnbrýnt
og áður er ekki gott að
átta sig á. Menningar-
hlutverkið liggur ljósar
fyrir. Því hefur verið
sinnt af mikilli natni á
Rás 1, sem hefur þrátt
fyrir aukna samkeppni
haldið stöðu sinni sem
ótvíræður merkisberi
listar og menningar í landinu og
menn keppast við að sverja gömlu
gufunni hollustueið í ræðu og riti.
Rás 2 hefur á sínum 25 árum náð
algerri sérstöðu á tónlistarútvarps-
markaði og haldið á lofti miklu
breiðara litrófi tónlistar en einka-
reknar stöðvar hafa treyst sér til.
Um þessa starfsemi hefur ríkt
nokkur sátt í þjóðfélaginu. Sam-
kvæmt fréttum stendur ekki til að
gera athugasemdir við útvarps-
auglýsingar RÚV.
Ríkissjónvarpið er hinsvegar í
eldlínunni og mun líklega missa
umtalsverðar tekjur í formi auglýs-
inga. Þrátt fyrir að við tónlist-
armenn teljum að okkar hlutur
ætti að vera fjölbreyttari í dagskrá
Ríkissjónvarpsins, skal því haldið
til haga að þar er þó vísir að dag-
skrárgerð í tónlist og skilningur á
framlagi tónlistarmanna, en aðrar
stöðvar telja vinnu þeirra þess eðlis
að sýnileikinn á öldum ljósvakans
sé t.d. næg greiðsla í samkeppn-
isumhverfi.
Það er alvarlegt mál ef Rík-
isútvarpið/Sjónvarp dettur út úr
hringiðu tónlistarfólks í landinu.
Þrátt fyrir allt hefur samstarfið
verið farsælt í tugi ára. Báðir að-
ilar hafa tekið tillit hvor til annars
og jafnan komist að niðurstöðum
sem duga.
Ríkisútvarpið/Sjónvarp hefur
ætíð verið ómissandi hlekkur í flók-
inni keðju listalífsins. Birting-
armynd tónlistarviðburða í fjöl-
miðlum verður sífellt mikilvægari
hluti af samfélagslegu gildi þeirra.
Það er hreinlega vondur bissness
hjá ríkisvaldi sem skreytir sig með
listrænum fjöðrum í partíum að
búa svo um hnútana að miðlun at-
burða verði skertur verulega.
Það er gott og blessað að á
markaði séu miðlar sem lúta lög-
málum framboðs og eftirspurnar
eingöngu. Það er þó ekki síður
mikilvægt að almenningur hafi
áfram aðgang að opnum miðli sem
hefur að markmiði viðhald menn-
ingar- og menntastigsins. Hér
verður ekki einu sinni gengið svo
langt að fara fram á sókn, því varn-
arbaráttan er allsráðandi í ljósi yf-
irvofandi atlögu að Ríkisútvarpinu.
Séð og heyrt í opinni dagskrá
Pétur Grétarsson
skrifar um Rík-
isútvarpið
» Það er alvarlegt mál
ef Ríkisútvarpið/
Sjónvarp dettur út úr
hringiðu tónlistarfólks í
landinu.
Höfundur er hljómlistarmaður og
áhugamaður um dagskrárgerð í tón-
list.
Pétur Grétarsson