Morgunblaðið - 19.12.2008, Síða 33
Minningar 33
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
þegar þú komst með svo flottan
bangsa fyrir mig þegar þú komst
heim frá Þýskalandi og líka þegar
ég, pabbi, Arnþór og þú fórum öll á
rúntinn um sveitina fyrir norðan.
Kossi föstum kveð ég þig,
kyssi heitt mitt eftirlæti,
fæ mér nesti fram á stig, –
fyrst ég verð að kveðja þig.
Vertu sæll! og mundu mig
minn í allri hryggð og kæti!
Kossi föstum kveð ég þig
kyssi fast mitt eftirlæti.
(Jónas Hallgrímsson.)
Afi minn, ég á eftir að sakna þín
mjög mikið og þú átt eftir að verða
mér mikil fyrirmynd í lífinu þegar
ég verð eldri. Þín afastelpa,
Una.
Okkur, fjölskylduna, langar að
minnast með þakklæti og virðingu
öðlingsins Svani Geirdal, sem kvatt
hefur þennan heim. Í minningunni
eru skemmtilegar samverustundir í
góðum félagsskap Svans. Ferðalög,
stutt og löng, hér heima og erlendis.
Hann var víðlesinn og fróður um
marga hluti og vissi margt um land
og þjóð. Hann hafði mikið dálæti á
Grímsey, enda hafði hann alist þar
upp til 11 ára aldurs, hjá afa sínum
og ömmu. Með góðri frásagnargáfu
sinni hreif hann mann með sér
þangað, með mannlífssögum sínum
þaðan á uppvaxtarárum sínum þar.
Svanur var myndarlegur og eft-
irtektarverður maður. Hann var
valdsmannslegur, en á jákvæðan
hátt, því hann hafði sterka og hlýja
nærveru svo gott var að vera í ná-
vist hans. Það er mikill missir að
manni eins og honum og hans verð-
ur sárt saknað.
Eitt sinn verða allir menn að deyja,
Eftir bjartan daginn kemur nótt.
Ég harma það en samt ég verð að segja,
að sumarið líður alltof fljótt.
(Vilhjalmur Vilhjálmsson.)
Vil ég og fjölskylda mín þakka
Svani Geirdal fyrir ómetanlega sam-
veru í gegn um tíðina og votta að-
standendum hans dýpstu samúð.
Þeirra missir er mikill.
Magnús, Kristín, Margret,
Pétur og fjölskyldur.
Elsku tengdapabbi, elsku vinur.
Samband okkar var ákaflega gott
frá því kynni okkar hófust. Við vor-
um ekki sérlega gömul, ég og Halla,
þegar ég fór að venja komur mínar á
Stekkjarholtið, en samt tókuð þú og
Una þessum drengstaula opnum
örmum og reyndust honum einstak-
lega vel. Aldursmunurinn var mikill
og áhugamálin fremur ólík en þrátt
fyrir það sýndir þú mér og hverju
sem ég aðhafðist einlægan áhuga og
það kunni ég alltaf vel að meta. Þau
urðu mörg kvöldin á Stekkjarholt-
inu þar sem við sátum og spjölluðum
og þú sagðir mér frá lífshlaupi þínu.
Öll ævintýrin sem þú lentir í í
Grímsey og hvernig smitandi áhugi
þinn á bókum vaknaði. Mér fannst
alltaf aðdáunarvert hvernig þú gast
þulið upp ljóð og jafnvel heila bók-
arkafla sem þú hafðir lagt á minnið.
Þú sagðir mér frá unglingsárunum í
Skagafirði og þér þótti greinilega
vænt um hversu vel var hugsað um
þig á Höfða. Siglingarárin voru þér
minnisstæð og ég get mér til um að
þar hafi áhugi þinn á ferðalögum
kviknað. Þig dreymdi um að nýta
þín efri ár í að ferðast og mér þykir
sárt að örlögin hafi valdið því að þeir
draumar rættust ekki. Sögurnar úr
lögreglunni voru margar, og vissara
að ég haldi þeim fyrir sjálfan mig,
en frásagnargleðin var svo mikil og
einlæg að það var ekki hægt annað
en að hrífast með.
Eftir að við Halla og stelpurnar
fluttumst til útlanda fækkuðu sam-
verustundum okkar en það var alltaf
jafn yndislegt að fá þig og Unu í
heimsókn. Það er sérlega minnis-
stætt að þrátt fyrir þína erfiðleika
bauðstu alltaf fram aðstoð þína og
varst alltaf reiðubúinn til að hjálpa
við hin ýmsu störf. Víggirðingin sem
við reistum saman í Noregi stendur
enn sem klettur og mun gera um
ókomin ár.
Þú varst góðmennskan uppmáluð
og vildir allt fyrir alla gera. Húmor
þinn var einstakur, eða afstæður
eins og þú sagðir sjálfur, og alltaf
tókst þér að segja eitthvað fyndið á
óvæntum augnablikum. Smitandi
hlátrinum gleymi ég heldur aldrei.
Ég á svo auðvelt með að sjá þig
fyrir mér í stofunni á Fjarðargöt-
unni, þar sem þú situr við enda
borðsins, og stappar fætinum við
Tennessee Waltz. Með bros á vör,
eins og alltaf.
Er ekki það?
Megir þú hvíla í friði, kæri vinur.
Jóhannes Þór Harðarson.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Grátnir til grafar
göngum vér nú héðan,
fylgjum þér, vinur. Far vel á braut.
Guð oss það gefi,
glaðir vér megum
þér síðar fylgja’ í friðarskaut.
(Valdimar Briem.)
Nú er kallið komið og við kveðjum
hinstu kveðju mann sem gefið hefur
okkur svo margt gegnum áralanga
vináttu og samstarf. Guð veri Unu
Guðmundsdóttur, fjölskyldunni og
ástvinum stoð á sorgarstundu.
Blessuð sé minning Svans Geir-
dal.
Magnea og Pétur.
Svanur Geirdal var skemmtilegur
maður. Hann var sögumaður af
guðsnáð, vel að sér, minnugur og
orðheppinn. Kunni afar vel allar Ís-
lendingasögurnar, sem hann hafði
lært og lesið í æsku við erfiðar og
þröngar aðstæður. Iðulega fór hann
með orðréttar tilvitnanir og jafnvel
heilu kaflana úr sögunum án þess að
reka í vörðurnar. Unun var að
hlusta á hann í þeim ham. Samhliða
slíkum frásögnum minntist hann
ósjaldan uppvaxtarára sinna í
Grímsey, en eyjan var honum alla
tíð sérstaklega hugleikin og umlukin
ákveðnum ævintýraljóma.
Langrar skólagöngu naut Svanur
ekki en var eigi að síður vel mennt-
aður í orðsins fyllstu merkingu.
Hann var sjálfmenntaður, námfús,
víðlesinn, áhugasamur og fróður um
land og þjóð. Skarpgreindur og
glöggur á menn og málefni.
Í starfi og viðkynningu var Svan-
ur jákvæður, úrræðagóður og kapp-
samur en um leið varkár og vand-
virkur. Duglegur og ósérhlífinn en
umfram allt réttsýnn og umtalsgóð-
ur. Mannasættir. Nýttust þeir eig-
inleikar hans vel í oft erfiðu og er-
ilsömu starfi lögreglumannsins.
Hann naut virðingar og komst til
æðstu metorða innan lögreglunnar
sem yfirlögregluþjónn á Akranesi.
Önnur störf sem hann tók að sér,
hvort heldur voru almenn verslunar-
viðskipti, störf á lögfræði- og fast-
eignastofu eða félagsstörf, vann
hann samviskusamlega og af alúð.
Starfsdagurinn varð því oft langur.
Svanur var sérstaklega ræktar-
samur. Hann gætti þess í mörg ár
að hringja á gamlársdag til þess að
fara yfir líðandi ár og spyrjast fyrir
um vini og vandamenn, helstu við-
burði og fyrirætlanir á komandi ári.
Sagði einnig frá sinni fjölskyldu,
maka, börnum, tengdabörnum og
barnabörnun, en fjölskyldan var
honum alla tíð mikils virði. Iðulega
ræddi hann jafnframt bækur, sem
hann hafði lesið nýlega, enda mikill
bókaunnandi. Þau samtöl voru oft
löng en um leið ánægjuleg og
ógleymanleg. Þegar símtölin hættu
vegna erfiðra veikinda Svans mátti
finna hvað þau skiptu miklu enda
eftir langt skeið orðin fastur liður í
áramótunum.
Góður drengur og vinur er geng-
inn sem við minnumst með söknuði
og hlýhug. Unu og fjölskyldunni
allri sendum við samúðarkveðjur.
Jón Sveinsson og
Guðrún Magnúsdóttir.
Vinar míns og fyrrum vinnu-
félaga, Svans Geirdals, minnist ég,
af því að hann var drengur góður.
Þau ár – þ.e. 1985-1998 – sem ég
gegndi fyrst starfi bæjarfógeta og
síðan sýslumanns á Akranesi, var
hann yfirlögreglumaður á staðnum.
Það hlutverk leysti hann af hendi
með miklum ágætum. Á samskipti
okkar bar aldrei fölskva. Öll mál
voru jafnharðan leyst með daglegu
samráði.
Hér má minna á það, sem svo oft
vill gleymast, að til þess að vera góð-
ur lögreglumaður, þarf mikla hæfi-
leika. Því starfi verður ekki gegnt,
svo að vel sé, nema maður sé velvilj-
aður, fljótur að hugsa, hafi óhagg-
anlega skapstillingu, góða dóm-
greind og mannþekkingu. Á
stundum þegar allt getur farið í bál
og brand verður að taka rétta
ákvörðun á örskotsstund, og það
verður ekki gert án þessara mann-
kosta. Alla þessa hæfileika hafði
Svanur til að bera í ríkulegum mæli.
Eflaust hefur uppeldi og umhverfi
sett mark sitt á hann eins og svo
marga aðra. Bernskuár sín átti hann
norður í Grímsey og síðan eftir að
hann komst á legg stundaði hann
sjómennsku um nokkurra ára skeið.
Návígi við íslenzk náttúruöfl ætla
ég, að hafi orðið honum góður
reynsluskóli er stuðlaði að víðsýni
og vizku í mannlegum samskiptum.
Um öll mál fjallaði hann af velvild og
skilningi, enda var lögreglan á
Akranesi afar vel liðin undir stjórn
hans. En starfið sagði þó ekki allt
um manninn, Svan Geirdal. Þar fyr-
ir utan var hann víðlesinn í bók-
menntum, innlendum og erlendum,
og hafði hann jafnan á hraðbergi til-
vitnanir í heim sagna og ævintýra.
Ekki sízt gerðu kjarnyrði bók-
menntanna hann skemmtilegan í
viðræðu og viðkynningu.
Unu konu hans, börnum og fjöl-
skyldu votta ég samúð mína á skiln-
aðarstund. Blessuð sé minning hans.
Sigurður Gizurarson.
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
2 0 9 1 0 4 3 4 2 0 8 9 9 3 2 0 3 3 4 5 0 8 0 5 4 4 1 3 6 2 4 0 5 7 2 3 0 2
2 4 8 1 0 5 8 2 2 1 2 8 0 3 2 1 2 3 4 5 9 3 3 5 5 3 6 3 6 2 4 0 6 7 2 3 7 3
2 8 0 1 1 4 4 3 2 1 7 4 0 3 3 3 4 7 4 6 3 5 5 5 5 7 5 4 6 2 7 3 4 7 2 7 2 0
3 6 8 1 1 8 3 1 2 2 0 2 3 3 3 3 4 9 4 6 5 6 2 5 6 0 2 4 6 3 2 1 5 7 2 8 2 2
4 5 5 1 1 9 2 4 2 2 2 8 6 3 3 7 0 2 4 6 7 9 3 5 6 2 0 0 6 3 2 7 1 7 3 2 1 0
6 5 7 1 2 2 0 3 2 3 0 9 6 3 3 7 4 7 4 6 9 4 1 5 6 4 8 5 6 3 4 0 1 7 3 2 2 3
1 2 4 2 1 2 4 1 8 2 3 2 0 8 3 3 7 6 9 4 7 0 5 2 5 6 6 9 2 6 3 5 3 8 7 3 2 7 3
1 2 7 6 1 2 5 4 0 2 3 2 2 9 3 4 2 8 0 4 7 0 5 9 5 6 9 5 9 6 3 8 0 7 7 3 2 9 8
1 2 7 9 1 2 6 7 1 2 3 3 6 4 3 4 3 8 8 4 7 4 5 7 5 7 0 1 1 6 4 1 8 1 7 3 3 2 4
2 4 8 5 1 2 9 9 0 2 3 9 3 9 3 4 7 9 9 4 7 9 3 1 5 7 0 4 5 6 4 2 5 0 7 3 8 8 8
3 5 7 7 1 3 8 7 6 2 4 8 5 4 3 6 3 9 5 4 8 4 0 8 5 7 0 8 9 6 4 5 1 2 7 4 1 6 5
4 1 1 0 1 4 0 6 7 2 4 9 0 8 3 7 4 4 0 4 8 9 0 9 5 7 9 5 4 6 4 5 2 6 7 4 4 1 3
4 2 1 8 1 4 3 0 8 2 5 2 9 9 3 7 5 5 7 4 9 4 3 3 5 8 1 5 5 6 4 8 5 0 7 4 5 4 3
5 3 8 0 1 5 0 0 7 2 5 6 3 2 3 8 5 0 8 4 9 5 0 3 5 8 5 3 8 6 5 3 2 0 7 4 9 2 7
5 5 3 2 1 6 1 9 3 2 5 7 2 8 3 8 9 6 0 4 9 7 7 0 5 8 7 7 8 6 5 3 2 3 7 5 2 3 4
5 5 5 4 1 7 1 9 5 2 6 8 4 2 3 9 1 4 2 4 9 7 9 4 5 8 8 3 3 6 6 3 1 4 7 5 6 2 8
6 1 1 4 1 8 6 9 8 2 7 1 0 4 3 9 4 6 8 4 9 8 3 0 5 8 8 9 7 6 6 7 0 1 7 5 8 8 7
6 2 1 2 1 8 7 8 2 2 7 5 5 0 3 9 9 3 4 5 0 0 4 9 5 8 9 2 5 6 7 3 5 4 7 6 0 6 3
6 3 6 2 1 8 8 4 5 2 7 6 2 2 4 1 0 3 6 5 0 0 8 0 5 9 5 2 3 6 7 4 1 7 7 6 0 7 3
6 6 5 6 1 9 0 1 8 2 7 6 8 6 4 1 7 0 1 5 0 3 0 7 5 9 6 8 8 6 7 4 2 7 7 6 2 7 7
7 1 7 8 1 9 0 8 6 2 7 7 9 4 4 2 0 3 8 5 0 6 7 9 5 9 8 3 8 6 7 8 1 1 7 7 2 3 1
7 4 7 3 1 9 2 0 5 2 8 1 0 5 4 2 0 4 9 5 1 1 0 4 6 0 0 1 2 6 7 8 6 7 7 7 3 0 3
8 0 7 7 1 9 6 3 2 2 8 3 2 7 4 2 3 6 7 5 1 2 4 8 6 0 3 5 1 6 8 4 3 2 7 8 1 7 1
8 2 4 8 1 9 8 6 3 2 8 9 5 4 4 2 9 9 8 5 1 5 2 8 6 0 5 0 1 6 8 5 5 4 7 8 3 9 1
8 4 3 0 1 9 9 0 9 2 9 0 7 5 4 3 0 1 3 5 1 6 4 4 6 0 5 6 3 6 9 0 1 1 7 9 1 2 3
8 5 6 4 1 9 9 8 3 2 9 1 2 6 4 3 4 4 7 5 1 6 8 6 6 0 6 1 6 6 9 1 4 0 7 9 8 5 9
8 8 9 1 2 0 0 6 5 2 9 1 4 0 4 3 8 8 6 5 1 7 4 8 6 0 8 4 6 6 9 3 4 5
9 4 2 7 2 0 1 6 8 2 9 6 1 6 4 4 2 2 6 5 1 7 9 0 6 0 8 8 3 6 9 6 1 3
9 5 1 2 2 0 4 7 0 3 0 6 8 8 4 4 2 5 1 5 2 4 9 9 6 1 0 8 4 7 0 1 9 2
9 7 7 6 2 0 5 1 5 3 1 2 6 3 4 4 5 2 0 5 3 2 4 0 6 1 3 9 4 7 1 1 5 2
1 0 0 3 3 2 0 5 9 5 3 1 5 7 7 4 4 6 6 1 5 3 2 8 2 6 1 4 3 0 7 1 1 6 8
1 0 4 0 6 2 0 8 0 4 3 1 6 4 4 4 4 6 7 7 5 4 3 1 1 6 2 2 6 2 7 1 4 3 9
Næstu útdrættir fara fram 23. desember & 2. janúar 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is
V i n n i n g a s k r á
33. útdráttur 18. desember 2008
Mercedes Benz
+ 5.600.000 kr. (tvöfaldur)
6 6 2 1 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
3 6 9 0 2 3 3 6 7 6 0 6 2 8 7 3 3 8 6
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
850 8054 24644 63217 66254 75174
2633 11293 59023 64802 74026 77757
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
1 5 8 3 8 8 0 1 1 5 5 8 0 2 8 8 3 5 3 8 7 3 2 5 0 8 9 2 5 8 8 5 9 6 7 8 9 8
3 0 6 0 9 0 7 4 1 6 8 2 2 2 9 1 9 5 4 0 5 4 7 5 1 2 1 9 5 9 5 9 0 6 8 5 1 6
4 8 6 1 9 2 2 0 1 9 3 1 9 2 9 2 2 5 4 4 7 3 2 5 1 3 0 8 5 9 7 1 4 6 9 0 1 9
6 3 9 9 9 2 2 2 2 1 0 7 6 2 9 7 0 7 4 5 2 0 9 5 1 7 3 9 6 2 3 9 9 6 9 8 3 3
6 6 2 6 9 8 3 0 2 1 3 2 1 3 2 3 3 5 4 5 9 4 6 5 3 0 0 5 6 4 6 1 5 7 1 5 2 6
7 1 8 4 9 8 8 5 2 3 4 6 5 3 3 5 4 9 4 6 2 5 3 5 4 0 6 4 6 5 0 6 4 7 1 6 1 7
7 3 2 3 1 0 7 1 1 2 3 8 8 4 3 4 3 4 6 4 6 6 1 6 5 4 3 4 1 6 5 8 9 7 7 5 8 8 0
7 5 6 3 1 2 2 8 2 2 4 0 5 8 3 5 0 0 4 4 8 2 1 0 5 4 8 1 6 6 5 9 9 4 7 7 8 6 3
7 8 8 4 1 2 3 9 5 2 4 8 2 9 3 6 0 5 0 4 8 3 5 7 5 4 9 9 9 6 6 1 0 8 7 8 9 9 1
8 1 2 7 1 3 0 5 5 2 5 2 5 6 3 6 1 2 5 4 8 5 5 3 5 5 2 8 0 6 6 5 1 2
8 1 5 6 1 4 2 7 9 2 5 7 3 0 3 7 0 5 5 4 8 7 2 1 5 5 7 1 0 6 7 1 2 1
8 4 6 7 1 4 5 8 9 2 6 4 4 8 3 7 2 3 3 4 8 7 4 1 5 6 6 6 5 6 7 3 2 6
8 6 5 0 1 5 3 1 7 2 8 2 6 2 3 7 6 3 7 5 0 3 3 8 5 7 3 5 2 6 7 8 5 4
Hreinn Þorvalds-
son fæddist 19. des-
ember 1928 á Fá-
skrúðsfirði. Hann
lærði múrverk í
Reykjavík hjá Einari
Sveinssyni múr-
arameistara, lauk
námi 1952 og er í
Múrarameist-
arafélaginu. Árið
1960 réðst hann til
Mosfellshrepps, sem
fyrsti starfsmaður
sveitarfélagsins, en
tók síðan við starfi
byggingafulltrúa 1962-1974. Hann
stjórnaði m.a. byggingu Varmárs-
kóla, Varmárlaugar, Gagnfræða-
skólans og Íþróttahússins. Hann
var einnig í sóknarnefnd í nokkur
ár og sá um útfarir frá Lágafells-
og Mosfellskirkju í mörg ár. Hreinn
lauk störfum hjá Mosfellshreppi ár-
ið 1985 og hafði starfað þar í 25 ár.
Síðan hefur hann starfað sjálfstætt
við flísalagnir og arinhleðslu og haft
fjölda manna í vinnu. Hann hefur
frá barnsaldri unnað myndlist og
verið á námskeiðum, var einn af
stofnendum Myndlistarklúbbs Mos-
fellssveitar, þar kenndu nokkrir
þekktir listmálarar, m.a. Sverrir
Haraldsson sem bjó að
Hulduhólum. Hreinn
tók þátt í mörgum
samsýningum klúbbs-
ins og hefur einnig
haldið tvær einkasýn-
ingar á „Frönskum
dögum“ á Fáskrúðs-
firði.
Hreinn kvæntist
Fjólu Svandísi Ingv-
arsdóttur frá Lax-
árnesi í Kjós 3. febr.
1951. Hún andaðist 17.
janúar 1970. Þau eign-
uðust fimm börn,
Eygló Ebbu, Hrafnhildi, Ingvar,
Þorvald og Jóhönnu Hrund. Hreinn
á sjö barnabörn og þrjú langafa-
börn.
Eiginkona Hreins er Guðrún Sig-
urborg Jónasdóttir fá Lýsudal í
Staðarsveit og hafa þau heimili í
Reykjavík. Hreinn og Sigurborg
hafa staðið fyrir ferðalögum Kan-
aríflakkara til Kanaríeyja og jafn-
framt fyrir skemmtun að sumarlagi
hér heima, síðustu árin í Árnesi.
Þau hjón dvelja á afmælisdaginn á
Kanaríeyjum og fá góðar kveðjur
frá mörgum ferðafélögum héðan af
klakanum.
Gylfi Guðjónsson, Mosfellsbæ.
Hreinn Þorvaldsson
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birt-
ist valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar séu
ekki lengri en 3.000 slög (stafir
með bilum - mælt í Tools/Word
Count). Ekki er unnt að senda
lengri grein. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju.
Minningargreinar