Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 38

Morgunblaðið - 19.12.2008, Page 38
38 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008 Í VÖRSLU Listasafns Íslands eru fjórir sjóðir sem safnið veitir reglu- lega úr. Að sögn Halldórs Björns Runólfssonar, safnstjóra, sluppu sjóðirnir að mestu óskertir við fall bankanna. Sjóðirnir sem um er að ræða eru Styrktarsjóður Guðmundu Andr- ésdóttur, Serrasjóðurinn, og minn- ingarsjóður Ástu Eiríksdóttur og Svavars Guðnasonar, sem styrkir eru veittir úr til listamanna. Fjórði sjóðurinn er dánargjöf Amy Engil- berts sem tryggir Listssafninu ákveðið fé árlega til listaverka- kaupa. „Við vorum svo heppin að vera með sjóðina á bókum og ég prísa mig sælan fyrir það,“ segir Halldór Björn. „Amy Engilberts-sjóðurinn kom inn í gegnum Glitni og kann að hafa skerst eitthvað en það má segja að annars komi sjóðirnir að mestu óskertir út úr þessu.“ efi@mbl.is Styrktar- sjóðir sleppa Sjóðir Listasafns Ís- lands nánast óskertir GOSPELKÓR Jóns Vídalíns heldur jólatónleika í sal Fjöl- brautaskólans í Garðabæ í kvöld kl. 20. Kórinn var stofnaður fyrir tveimur árum og er sam- starfsverkefni Vídalínskirkju og Fjölbrautaskólans í Garða- bæ. Kórstjóri er María Magn- úsdóttir og verkefnastjóri sr. Jóna Hrönn Bolladóttir. Flutt verða jólalög og kraft- mikil gospeltónlist. Aðgangseyrir er 1.000 kr. fyr- ir fullorðna en 500 kr. fyrir 12 ára og yngri. Allur ágóði af tónleikunum fer til Hjálparstarfs kirkj- unnar og ABC hjálparstarfs. Tónlist Jólalög og kraft- mikil gospeltónlist Hluti af Gospelkór Jóns Vídalíns. Á SUNNUDAGINN lýkur upplestrardagskrá Gljúfra- steins á aðventunni. Þá lesa úr nýútkomnum bók- um sínum þeir Ólafur Gunn- arsson (Dimmar rósir), Óskar Árni Óskarsson (Skuggamynd- ir: úr ferðalagi), Úlfar Þor- móðsson (Hallgrímur: Skáld- saga um ævi Hallgríms Péturssonar) og Ólafur Hauk- ur Símonarson (Fluga á vegg: sönn lygasaga). Upplesturinn hefst stundvíslega kl. 16 og að- gangur er ókeypis. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Gljúfrasteins; www.gljufrasteinn.is. Bókmenntir Upplestur á Gljúfrasteini Ólafur Gunnarsson LOST Horse Gallery, Skóla- stræti 1, verður opnað á ný í kvöld eftir breytingar. Galleríið verður vígt að nýju með samsýningu fjögurra lista- manna, þeirra Davíðs Arnars Halldórssonar, Guðmundar Thoroddsen, Hörpu Daggar Kjartansdóttur og Alexanders Zaklynskys. Á sama tíma opnar Benja- min Penic hárgreiðslustofu í rýminu. Sýningin verður opnuð kl. 21 í kvöld og stendur til 1. janúar. Boðið verður upp á léttar veitingar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. Myndlist Samsýning í Lost Horse Gallery Guðmundur Thoroddsen Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is KAMMERSVEITIN Ísafold verð- ur gestur tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið næsta sumar. Í tilefni af því efnir kammersveitin til tónsmíða- samkeppni og vinnubúða fyrir ný tónskáld, í samvinnu við Ríkis- útvarpið - Rás eitt og Við Djúpið. Daníel Bjarnason er stjórnandi Ísa- foldar. „Við köllum þetta samkeppni fyr- ir ný tónskáld, frekar en ung, því við viljum ekki hafa nein aldurs- takmörk. Fyrirmyndin að verkefn- inu er fengin erlendis frá og mér finnst þetta hafa vantað í íslenskt tónlistarlíf. Þegar upp er staðið veljum við 3-4 tónskáld til að semja verk fyrir Ísafold, og þau verða flutt á hátíðinni og vonandi hljóð- rituð,“ segir Daníel. Útfærsla verk- anna verður unnin í nánu samstarfi við Ísafold. „Verkin verða því ekki bara æfð og spiluð, því eftir æfingu getur tónskáldið rætt við mig og hljóðfæraleikarana og við skipst á hugmyndum og rætt um praktíska hluti, t.d. uppsetningu nótna og hvernig hægt er að skrifa fyrir hljóðfærin og aðra praktíska hluti sem tónskáld í skóla fá ekki alltaf reynslu í.“ Bent Sørensen verður með Ísafold hefur fengið danska tón- skáldið Bent Sørensen til að taka þátt í hátíðinni, og hann tekur þátt í æfingaferlinu og býður tónskáld- unum upp á einkatíma í tónsmíðum. „Hann mun leggja sitt af mörkum, og verður auk þess með fyrirlestra. Ég býst við því að við spilum líka verk eftir hann á hátíðinni.“ Það er ekki oft sem tónskáldum á Íslandi býðst að taka þátt í vinnu af þessum toga. Masterklassar og námskeið í tónlist miðast mun oftar við flytjendur og túlkun í tónlist. Læra mest af svona vinnu „Þegar ég var sjálfur í skóla fannst mér tónskáld læra langmest af því að vinna á þennan hátt, – semja og heyra verkin sín flutt, en fá um leið viðbrögð frá tónlist- arfólkinu. Nám er oft svo fræðilegt og konseptmiðað, að oft vantar þessa tengingu við hold og blóð. Tónskáld fá oft sjokk þegar þau mæta með fyrstu verkin sín til hljóðfæraleikara sem fara að benda á ýmislegt sem er ekki framkvæm- anlegt í tónverkinu eða gera at- hugasemdir við hluti sem tón- skáldið hafði ekki áttað sig á að væru kannski ekki í lagi. Tón- skáldið segir þá kannski: „… en það stóð í bókinni …“ Þess vegna er þessi tenging tónskáldsins og hljóðfæraleikaranna svo mikilvæg,“ segir Daníel. Og auðvitað er sam- starfið ekki síður fyrir hljóðfæra- leikarana. „Já, auðvitað. Þetta er í fyrsta skipti sem við gerum þetta, en það væri frábært ef hægt væri að koma upp einhvers konar mið- stöð þar sem svona vinna væri hluti af uppeldi nýrra tónskálda. Það myndi bæta tónlistina, og tónlist- arfólkið.“ Kammersveitin Ísafold efnir til tónsmíðakeppni og vinnubúða hljómsveitar og tónskálda Tenging við hold og blóð Ísafold Býður nýjum tónskáldum til samstarfs um smíði nýrra verka. Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is MÚSÍKALSKUR kvennablómi tekur völdin í Seltjarnarneskirkju á sunnudagskvöld kl. 20. Það eru Guðbjörg Sandholt messósópran og Matthildur Anna Gísladóttir píanóleikari sem standa fyrir tónleikunum, en gestir þeirra verða Steinunn Skjenstad sópran, Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari og Helga Þóra Björg- vinsdóttir fiðluleikari. „Þetta verður ljúf jóla- tónlist,“ segir Guðbjörg um efnisskrána. „Það verður mikill Bach, og svo syngjum við ljóð eftir Britten, Cornelius, Grieg og Sibelius. Þetta er jólaprógramm, en alveg klassískt; bland af tónlist sem fólk þekkir ekki og þekkir vel.“ Allar stunda þær framhaldnám erlendis nema Melkorka sem nýlega hóf störf hjá Sin- fóníuhljómsveit Íslands. Guðbjörg er í námi hjá Will Hancox söngkennara í London og í Mozarteum í Salzburg. Matthildur lýkur meistaranámi í London í vor; Steinunn er við nám í Þýskalandi og Helga Þóra í París. Fimm ungar konur með tónleika í Seltjarnarneskirkju Klassískt jólapró- gramm og mikill Bach Kvennablómi Með tónleika á sunnudaginn. Morgunblaðið/Árni Sæberg ENN malar J.K. Rowling gull fyrir bækur sínar. Ný bók hennar, The Tales of Beedle the Bard, hefur selst í 2,6 millj- ónum eintaka um allan heim á að- eins tveimur vik- um. Allur ágóði af sölu bókarinnar mun renna til góð- gerðarmála, og kann það ef til vill að hafa áhrif á söluna, en fleiri freistast þó til að telja að velgengni höfundar Harry Potter vegi þar þyngst. Nú þegar hefur bókin selst fyrir ríflega 760 milljónir króna. Með þessari miklu sölu á svo skömmum tíma hef- ur Rowling sett nýtt met, og bókin er jafnframt orðin sú mest selda á þessu ári, beggja vegna Atlantshafsins. Nýtt met hjá Rowling J.K. Rowling Ágóði af sölunni til góðgerðarmála Skilafrestur á umsóknum er til 15. janúar, og segir Daníel að í þeim sé eingöngu óskað eftir möppu með tveimur til þremur verkum sem viðkomendur hafa samið og hugsanlega upptökum ef fólk á. „Við veljum þrjú til fjög- ur tónskáld úr umsóknunum, tón- skáld sem við teljum að geti gert þetta með okkur og haft gagn af því. Verkunum þarf svo að skila 1. maí. Okkur fannst þetta skyn- samlegri leið en að fólk þyrfti að senda inn fullbúin verk og vita svo ekki hvort það fengi þau flutt eða ekki. Þeir umsækjendur sem við veljum, vita þá, að verkin verða flutt. Í maí, þegar verkin eru komin, get ég gert athuga- semdir við þau, ef um það verður að ræða, en aðalvinnan fer fram á Ísafirði. Þá verða tækifærin til að laga og breyta á opnum æfingum og í samræðum.“ Okkur fannst þetta skynsamlegri leið Erlend lán eru ekkert öryggisnet, aðeins gálgafrestur að hinu óum- flýjanlega. 43 » Eftir Bergþóru Jónsdóttur begga@mbl.is „ÞETTA er ekki fyrir þá sem eru hræddir við fegurð,“ segir Guðrún Dalía Salómonsdóttir píanóleikari um tónleika þeirra Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara í Iðnó í kvöld kl. 20.30. Þar spila þær franska tónlist fyrir flautu og píanó. Saman spila tónlistarkonurnar tvær sónötur eftir Gaubert, sem ekki hafa heyrst hér á landi áður. Guðrún Dalía leikur svo prelúdíur eftir Debussy og Melkorka Density 21.5 eftir Edgar Varése. „Það er eina verkið þar sem má óttast fegurðina, því það er algjör „killer“,“ segir píanóleikarinn. Frakkar eru meistarar flaututónlistarinnar. „Það er sterkur og áhrifamikill flautuskóli í Frakklandi,“ bætir Melkorka við. Guðrún Dalía segir að Gaubert hafi samið mörg og misgóð verk fyrir nemendur sína til að spila í flautukeppni. „En sónöturnar sem við spilum eftir hann eru flottar, þær eru eins og ef Debussy hefði samið flautusónötur.“ Ekki fyrir þá sem hræðast fegurðina Melkorka og Guðrún Dalía spila franskt í Iðnó í kvöld París Guðrún Dalía, Melkorka og Eiffel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.