Morgunblaðið - 19.12.2008, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 2008
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG ætla að koma bókinni út í febr-
úar, helst á afmælinu mínu, 21. febr-
úar,“ segir ljóðskáldið Ragnar Ís-
leifur Bragason sem var einn þeirra
sem hlutu Nýræktarstyrk Bók-
menntasjóðs í gær. Styrknum er
ætlað að styðja við útgáfu á nýjum
íslenskum skáldverkum sem hafa
takmarkaða eða litla tekjuvon, en
hafa ótvírætt menningarlegt gildi.
Ragnar fékk styrkinn til að gefa út
ljóðabók.
„Ég á allavega nóg af ljóðum til
að gefa út ljóðabók, þótt ég sé að
vísu ekki búinn að ákveða nákvæm-
lega hvaða ljóð fara í hana. Það er
hins vegar komið nafn á hana, hún
mun heita Á meðan,“ segir Ragnar
og bætir því við að ljóðin tengist
flest bið með einum eða öðrum
hætti.
„Þetta er það sem ég er að hugsa
um á meðan ég er að bíða eftir ein-
hverju, sem ég veit þó ekki hvað er.“
– Já svona eins og að bíða eftir
Godot?
„Haha, nei ég er ekki að bíða eftir
honum, ég held að hann komi nú
ekki úr þessu.“
A.m.k. í tvær búðir
Aðspurður segir Ragnar erfitt að
skilgreina ljóðin sem hann yrkir.
„Þetta er ansi frjáls aðferð og það
er ekkert form á þeim, svona beint.
Ég hef hins vegar heyrt fólk segja
að þetta sé svona talandi stíll, eins
og flest fólk talar.“
Styrkurinn sem Ragnar hlaut í
gær hljóðar upp á 200.000 krónur,
og að sögn Ragnars dugar féð fyrir
útgáfunni, sem hann annast sjálfur.
Ragnar er sonur Braga Kristjóns-
sonar í Bókinni og segir að nýja
ljóðabókin ætti því að vera örugg
með pláss í að minnsta kosti einni
bókabúð.
„Og svo er nú bróðir minn líka
með búð í kjallara Kaffi Hljómalind-
ar. Þannig að hún verður að minnsta
kosti til sölu í þessum tveimur búð-
um,“ segir hann í léttum dúr.
Morgunblaðið/Ómar
Ljóðskáld Ragnar Ísleifur Bragason telur Godot ekki koma úr þessu.
Á meðan maður bíður
Ragnar Ísleifur Bragason var einn þeirra sem hlutu Nýræktarstyrk Bók-
menntasjóðs í gær Ætlar helst að gefa út bókina á afmælinu sínu í febrúar
Þeir voru nokkrir
í næstum því línu.
Allir einhvern veginn mismunandi.
Þeir hreyfðust,
en ekki viljandi.
Ég er ekki viss hvaða tilgangi þeir þjóna,
þeir bara voru þarna nokkrir saman
eins og þeir gætu ekkert að því gert.
Eins og einhver hefði sett þá þarna,
einhver stærri.
Eitt ljóðanna sem verða í
bók Ragnars.
Þeir Bútgáfur Nýhils
(Sería smærri bóka. Þrjár (ör)
ljóðabækur og eitt safn fem-
inískra smágreina og stuttra
prósa skreytt klippimyndum)
Ritstjóri: Kristín Svava Tóm-
asdóttir
Höfundar: Hildur Lillendahl
Viggósdóttir, Bryndís Björgvins-
dóttir, Ingólfur Gíslason, Dr. Usli
(Kristín Svava Tómasdóttir &
Jón Örn Loðmfjörð)
Útgefand: Nýhil
Með villidýrum
(ljóðabók) – komin út
Höfundur: Kári Páll Óskarsson
Útgefandi: Nýhil
Refur
(ljóðabók) – komin út
Höfundur: Emil Hjörvar Pedersen
Útgefandi: Nykur
Hálmstrá
(smásögur) – komin út
Höfundur: Magnús Sigurðsson
Útgefandi: Uppheimar
Aðrar bækur sem
hlutu styrk