Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Blaðsíða 22
SIGURJÓN H. ÓLAFSSON, tannlæknir:
Vaxtarlýti ái kjálkum
FYRRI HLUTI
CURRICULUM VITAE
Fœddur á IsafiíSi 6. des. 1943. Stúdentspróf frá M. A, vorið
1963. Lauk námi í tannlœkningum frá Háskóla Islands vorið
1970 og vann við almennar tannlœkningar í Reykjavík i tvö ár.
Var við framháldsnám í munn- og kjálkaskurðlœkningum við
„University of Alabama in Birmingham“ í Bandaríkjunum um
þriggja ára skeið og lauk þaðan prófi sumarið 1975
Jafnhliða náimi í munn- og kjálkaskurðlœkningum vann Sig
urjón við rannsóknir, scm fjölluðu um notagildi tilbúihna efna
í stað beingrœðslu í tilfellum, þar sem beintap hefur orðið,
t. d. eftir meiriháttar beinbrot og/eða sjúkdóma.
Sigurjón vinnur nú á tannlœknastofu í Reykjavtk og einn-
ig á sjúkráhúsum borgarinnar við almenna „kjálkakirurgiu“
jafnhliða kennslu við Tannlœknadeild Háskóla Islands.
Andlitslýti eru bæði meðfædd og áunnin (slys, sjúkdómar)
og enn önnur koma í ljós á vaxtarskeiði einstaklingsins. Þau
birtast m. a. í rangri afstöðu kjálkanna og tannskekkju og
geta valdið miklku ósamræmi milli vefja andlitsins og af-
skræmdu útliti.
Sjúklingurinn, sem við þetta vandamál á að stríða, er sér
mjög meðvitandi um útlit sitt og getur átt í erafiðleikum með
tal, kyngingu og jafnvel öndun. Aukin tíðni tannskemmda
og tannholdssjúkdóma er einkennandi meðal þessa fólks, og
ef smíði gervitanna er nauðsynleg getur slíkt verið mjög erfitt
og í sumum tilfellum ógerlegt án skurðaðgerðar.
I verstu tilfellum þjást slíkir sjúklingar af sálrænum sjúk-
20