Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Page 46
Við vituni öll, að svonefndir þrýstihópar hafa að miklu
Leyti tekið ákvörðunarvaldið af stjórnvöldum. Ég held að við
verðum að gera okkur grein fyrir þessari nýju baráttuaðferð.
En til þess að á okkur verði hlustað og tekið mark, verðum
við að ræða málin af hreinskilni við þessa menn, áður en örlaga-
ríkar ákvarðanir eru teknkar og skýra rækilega okkar rök.
Glöggt dæmi um þetta eru iðnréttindi, sem tannsmiðir munu
nú vera bnúir að fá. S. 1. vetur sat ég ásamt fimm öðrum á
vikulegum fundum í húsakynnum 'Hæstaréttar, á vegum
menntamálaráðuneytisins og var að lokum fallist mótmæla-
Lítið á lagafrumvarp, sem ætlast var til að menntamálaráðherra
legði fyrir Alþingi. Var í því gert ráð fyrir að tannsmiðir
fengju menntun sína í tengslum við tannlæknadeildina.
Fvir mánuði síðan fjölmenntu tannsmiðir á fund mennta-
málaráðherra, sem þrýstihópur og fengu hann til að hunsa allar
tillögur nefndarinnar, sem hann hafði sjálfur skipað og láta
undan tannsmiðum. Pormaður Tannlæknafélagsins heimsótti
ráðherra um svipað leyti, vegna þessa máls, en án árangurs.
Við höfum beðið um að fá að skipuleggja okkar mál sjálfir
með tannlælmi í ráðuneytinu. Við höfum viljað fá að ráða
hvernig tannlæknastofur hins opinbera eru innréttaðar. Við
höfum beðið um að málefni vangefinna fengju forgangsaf-
greiðslu. Við höfum samning upp á, að stórum fjármunum
verði varið til fræðslu gegn tannskemmdum, en ekkert hefur
gengið.
Það hættulegasta er, að okkur er farið að þykja þetta fyrir-
komulag sjálfsagt.
Iívernig væri að breyta um baráttuaðferð og láta í okkur
heyra.
44