Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Page 53
uðu eftir að fá til baka og hafa mi fengið afhent aftur1. Bréfið
var yfirfullt af óhróðri um tannlækna og rangfærslum um
starfsemi ])eirra. Efni þess verður ekki rakið hér.
Viðræður hafa farið fram milli formanns TFI og Félags
Tannsmíðaverkstæða um grundvöll fyrir verðlagningu verk-
stæðanna. Hugmyndin er sú að fundinn verði verðlagsgrund-
völlur fyrir tannsmíðaverkstæðin líkt og nú er notað fyrir TFI
í samráði við Iíagstofu Islands eða Hrólf Ásvaldsson. Ein-
hverjar reglur þurfa að skapazt um þessi mál og ekki verður
liægt að una við það í framtíðinni að Tannsmíðaverkstæðin
hækki vinnu sína eftir smekk eða þegar þeim sjálfum dettur í
hug.
Tannsmíðaskólinn starfaði síðastliðið sumar og mun vænt-
anlega starfa áfram, eða þar til hin nýja löggjöf tekur gildi
um menntun og réttindi tannsmiða. Löggjöf þessi hefur nú
verið saman (þó hún hafi ekki ennþá verið lögð fyrir ])ingið).
Þess skal getið hér, að miðað er við að framtíðarmenntun
tannsmiða færist inn í hinn nýja tannlæknaskóla. Ekki er í
löggjöfinni minnzt á iðnréttindi til handa tannsmiðum. Virð-
ist það mál því vera úr sögunni.
Frœðslustarfsemi:
Fræðslunefndin hefur í vetur haft 15 mínútna útvarpsþætti
með nokkru millibili. Allar líkur eru á því að fræðslustarf-
semi geti aukizt mikið í framtíðinni, þar sem í samningi TFJ
og Tryggingarstofnunar ríkisins er ákvæði, sem segir, að verja
skuli 1% af áætluðum kostnaði við sjúkrasamlagsgreiðslur
árlega til fræðslustarfsemi fyrir almenning.
T annlœknavakt:
Tannlæknavakt TFI var rekin með sama sniði og undanfar-
in ár undir stjórn Gvlfa Felixsonar.
Mjög áberandi er að fjöldi félagsmanna skorast undan tann-
læknavakt.. Það er þessvegna hugmynd stjórnar TFT að launa
beri félaga á tannlæknavakt í framtíð. Verður þetta mál tekið
fyrir á aðalfundi.
51