Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1975, Síða 56
formanni TFÍ og Sigurði Ingimundarsyni framkvæmdastjóra
Tryggingarstofnunar ríkisins að viðstöddum st.jórn TFI og
Gunnari Möller.
Ilvað sem segja má um samninginn sem slíkan, telur samn-
inganefnd TFI að ekki hafi verið hægt að ná betri samningi,
eins og málum var háttað og telur samninganefndin sig hafa
reynt að halda á málum tannlækna eftir beztu getu.
Samningurinn er sendur öllum félagsmönnum sem fylgi-
skjal með skýrslu formanns.
Samningar náðust í iiaust milli skólatannlækna og Reykja-
víkurborgar um skólatannlækningar. Veigamikið atriði, sem
náðist í þeim samningum, var ákvæði, sem segir að Reykja-
víkurborg ræður aðeins meðlimi TFI í vinnu.
Einnig eru allir samningar í framtíð milli þessara aðila
háðir samþykki stjórnar TFI.
Stjórn TFÍ ákvað á fundi sínum í apríl að gefa kr. 500.000.00
úr félagssjóði í þeim tilgangi að sett verði hér upp ,special
Klinik“ fyrir vangefna. Stjórnin mun að sjálfsögðu leita sam-
þyltktar aðalfundar á ákvörðun þessari. Það þarf ekki að
fjöryrða um ágæti þessa málefnis. Það er kunnara en frá
þurfi að segja í hverskonar ólestri þessi mál eru hér á landi,
og reynsla annarra landa sannar okkur að þeim verður aldrei
komið í viðunandi horf nema tannlæknar verði „primus motor“
í framgangi þeirra Það er þess vegna sómi TFl að sam-
þykkja þessa ráðstöfun stjórnarinnar. Iívet ég meðlimi ein-
dregið til ])ess að samþykkja ]>etta á aðalfundi.
Hér hefur verið stiklað á stóru í skýrslu formanns. Engin
leið er að skýra tæmandi frá störfum á árinu. Það yrði of
langt mál.
Eg vil að lokum þakka meðstjórnarmönnum mínum mikið
og fórnfúst starf og gott samkmulag, sem ég vona að haldist
næsta starfsár, ef ég þá verð áfram formaður TFÍ.
Haukur Clausen.
54