Árdís - 01.01.1955, Page 55
Ársrit Bandalags lúterskra kvenna
53
Vakningarprédikanir Billy Grahams
Eftir INGIBJÖRGU J. ÖLAFSSON
Samkvæmt fréttagrein eftir Glen Gibson, sem er fregnritari
C.B.C., hefir prédikarinn Billy Graham haft djúp áhrif á íbúa
Skotlands á sex vikna tímabili er hann hélt vakningarsamkomur í
Glasgow. Er þó sagt að Graham hafi farið til Glasgow án þess að
gera sér háar vonir, þar sem honum hafði verið sagt að búast ekki
við of miklu því Skotar væru seinteknir og fátalaðir um trúar-
afstöðu sína.
Eftir því sem Glen Gibson segir frá voru áhrifin feikna djúp
og víðtæk. Hann segir að hvirfilbylur hafi geysað um landið við
komu hans, sem hafi rifið upp með rótum vantraust, deyfð og
áhugaleysi fólksins. En sem hafi skilið eftir heilnæmt andlegt
andrúmsloft. Nýr trúaráhugi hafi vaknað meðal fólksins og prestar
hafi eignast nýjan þrótt og flytji kraftmeiri prédikanir en áður.
Hann segir að án alls efa hafi heilagur andi verið að verki á
samkomum Grahams. Þúsundir hafi snúist til trúar, þúsundir
annara hafi orðið órólegir út af andlegu ástandi sínu, þó þeir hafi
ekki verið í hópi þeirra, sem opinberlega játuðu trú sína á sam-
komunum. Graham kveðst ekki hafa neinn nýjan boðskap að flytja,
en hann flytur kenningu fagnaðarerindisins þannig að það snertir
við samvizku hvers einstaklings. Hann dæmir alla hræsni og yfir-
drepsskap og fer ómildum orðum um alla hálfvelgju og áhugaleysi.
Hann talar eins og sá sem vald hefur.
Vakningarsamkomurnar voru haldnar í hinu stóra Kelvin Hall
í Glasgow, sem rúmar margar þúsundir. Á palli sat söngflokkur
sem saman stóð af 1,200 manns. Konur voru í hvítum treyjum,
karlmenn í dökkleitum fötum. Söngstjóri var Cliff Barrows, frægur
í sinni stétt. Fimmtán þúsund sálmabókum var útbýtt meðal fólks-
ins. Hver sálmurinn eftir annan var sunginn þar sem allir tóku
undir, og þegar Graham hóf prédikun sína var hann ekki að tala
við svo margar þúsundir einstaklinga heldur eina heild. Sálma-
söngurinn og víxl-lestur Davíðssálma hafði sameinað hópinn ,er
sungið hafði sameiginlega Drottni lof.