Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.01.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirVIKUSPEGILL MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009 Liverpool er sigursælasta félag enskrar knattspyrnu, hefur átján sinnum orðið deildarmeistari. Lengi skildu himinn og haf Liver- pool frá næstu félögum en Manchester United hefur saxað jafnt og þétt á for- skotið á undanförnum ár- um. Vann sinn sautjánda meistaratitil sl. vor. Og það sem verra er, þar af hafa tíu komið í hús frá því Liverpool kleif tindinn síðast. Það svíð- ur sárt. Sumir telja þessa stað- reynd raunar öðru fremur ástæð- una fyrir fjörkipp Liverpool á þess- um vetri. Menn geti hreinlega ekki hugsað sér að sleppa hendi af met- inu. Í vor verða nítján ár frá því Liver- pool hampaði meistaratitlinum síðast og það er lengsti þurrkur í sögu félagsins. Að vísu liðu 24 ár milli titla frá 1923 til 1947 en á móti kemur að keppni lagðist af þegar seinni heimsstyrjöldin braust út 1939 og hófst ekki að nýju fyrr en haustið 1946. Raunbið Rauða hersins á þessum tíma var því bara sautján ár. Bið United og Arsenal lengri Það er huggun harmi gegn að erkikeppinauturinn, Manchester United, hefur í þrígang þurft að bíða lengur eftir meistaratitli. Þrjátíu ár liðu frá því félagið var stofnað, 1878, þar til það vann sinn fyrsta titil, 1908. 41 ár leið síðan milli titla frá 1911 til 1952 og sem frægt er 26 ár frá því Sir Matt Busby vann sinn síðasta tit- il 1967 og þangað til Sir Alex Ferguson hóf sína stórbrotnu vegferð vorið 1993. Þá var mörg- um létt. Þriðja sigursælasta félag Eng- lands, Arsenal, þurfti að bíða heil 45 ár eftir sínum fyrsta meist- aratitli, 1931, en lengsta bið fé- lagsins þar fyrir utan var átján ár, frá 1953 til 1971 og aftur frá 1971 til 1989. Fjórði risinn í ensku knattspyrn- unni, Chelsea, skýtur hinum þrem- ur samt ref fyrir rass. Hinir blá- klæddu biðu í hálfa öld eftir sínum fyrsta deildarsigri, 1955. Þeir létu ekki þar við sitja heldur biðu aftur í hálfa öld eftir þeim næsta, 2005. Þá leiddist þeim aftur á móti þófið og vörðu þann titil. Bið og ekki bið Knatt-spyrnustjóri Liverpool þegar félagið vann enska meist- aratitilinn síðast vorið 1990 var goðsögnin Kenny Dalglish. Fyrirliði var skoski miðvörð- urinn Alan Hansen. Var það áttundi og síðasti titillinn sem hann vann með Liverpool. Það var met á þeim tíma og stóð allar götur þangað til vorið 2007 að Ryan Giggs landaði sínum níunda meistaratitli með Manchester United. Sá tíundi kom svo í fyrra. Skærasta stjarna Liverpool þenn-an vetur var þó útherjinn John Barnes sem var fremstur meðal jafningja í ensku knattspyrnunni á þessum tíma. Sjálfur gerði hann 22 mörk af vinstri kantinum og lagði upp fjölmörg önnur. Segja má að enginn útherji hafi verið hans jafn- oki fyrr en Cristiano Ronaldo kom fram á sjónarsviðið. Miðherjar liðsins veturinn 1989-90 voru garparnir Ian Rush, sem snúinn var heim eftir stutta útlegð á Ítalíu, og Peter Beardsley, sem þarna var á hátindi ferils síns. Rush gerði átján deildarmörk og Bear- dsley tíu. Þá kom ísraelskur nýliði, Ronnie Rosenthal, eins og storm- sveipur inn í liðið um vorið og skor- aði sjö mörk í átta leikjum. Hann er þó líklega frægastur fyrir eina æv- intýralegustu afbrennslu sparksög- unnar í leik gegn Aston Villa tveimur árum síðar. Markvörður Liverpool árið 1990var sprellikarlinn Bruce Grob- belaar og Svíinn Glen Hysén lék við hlið Hansens í hjarta varnarinnar. Barry Venison, Gary Ablett, Steve Nicol, Steve Staunton og David Burrows skiptu bak- varðastöðunum á milli sín. Á miðjunni var SteveMcMahon kóngur í ríki sínu. Fá dæmi eru um harð- skeyttari og ein- beittari leik- menn gegnum tíð- ina. Í eitt skiptið stöðvaði McMahon tuðr- una á elleftu stundu út við hlið- arlínu áður en hún fór út fyrir og hentist við það upp í stúku. Þar fékk okkar mað- ur sér hressingu áður en hann sneri aftur og náði tuðrunni á undan næsta andstæðingi og lagði upp mark. Og þetta eru ekki eyfirskar ýkjur! Greinarhöfundur á atvikið á VHS. Honum við hlið var dyggur þegn, Ronnie Whelan, og Ray Houghton var á sínum stað á hægri kantinum þegar hann var ekki meiddur. Af varamönn- um má nefna Gary Gillespie og Jan gamla Mølby sem var fisléttur á fæti að vanda. Eðalárgangurinn 1990 Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is E ngum er alls varnað, allra síst ær- ingjunum á netinu. Við gerð þess- arar greinar rakst ég á eftirfarandi spurningu: Hvað er langt síðan Liv- erpool var á toppnum í ensku knattspyrnunni á jólunum? Og ekki stóð á svarinu: Árið sem Jesús Kristur kom í heiminn! Þannig verða stórlið eins og Liverpool að gjalda. Ýmsir hafa meira yndi af því að sjá Rauða herinn engjast en eigið lið vinna sigra. En það er öðrum þræði ákveðinn gæðastimpill. Enginn myndi hafa veru Hull City eða Wigan Athletic á toppnum í flimtingum. Að öllu gríni slepptu var Kristur löngu kominn og farinn þegar Liverpool vermdi toppsætið í Englandi síðast um þetta leyti. Það var fyrir tólf árum, jólin 1996. Það er að vísu ekkert sér- staklega hughreystandi fyrir stuðningsmenn fé- lagsins að þann vetur lauk það keppni í fjórða sæti. Það gæti samt verið verra, tímabilið 1949- 50 hafnaði Liverpool í áttunda sæti eftir að hafa verið fremst meðal jafningja um jólin. Það er met sem félagið deilir með Sunderland (1936-37) og Manchester United (1971-72). 41% líkur segir tölfræðin Sé eingöngu horft á tölfræðina eru raunar minni líkur en meiri á því að Liverpool verði enskur meistari í vor. Frá því fyrst var spyrnt í Englandi, veturinn 1888-89, hefur liðið sem leiddi mótið um jólin aðeins borið sigur úr býtum í 41% tilvika. Frá því úrvalsdeildin var sett á laggirnar, 1992, hefur þetta hlutfall lækkað niður í 38%. Að- eins sex af sextán liðum sem verið hafa á toppn- um um jólin hafa unnið mótið, Manchester Unit- ed í þrígang (1993-94, 2000-01 og 2006-07), Blackburn (1994-95) og Chelsea (2004-05 og 2005-06). Obbosí! Það ætti hins vegar að færa Liverpool vind í seglin að þrisvar á síðustu fjórum árum hefur toppliðið um jól orðið meistari, aðeins Arsenal brást bogalistin í fyrra. Það hlýtur líka að telja kjark í bítlaborgara að þeirra eigin tölfræði er býsna góð. Liverpool hefur fimmtán sinnum frá upphafi vega haft forystu um hátíð ljóss og friðar og þar af landað titlinum tíu sinnum. Það er 66,7% árangur, hvorki meira né minna. Yrði áhangendum liðsins sagt núna að líkurnar á því að það lyfti meistarabikarnum í vor væru tveir á móti þremur stykkju vafalaust flestir á það. Fyrst við erum að velta okkur upp úr jólatöl- fræði eru Liverpoolmenn væntanlega stoltastir af afreki liðsins veturinn 1981-82. Þá var Rauði herinn í tólfta sæti um jólin, með 24 stig eftir 16 leiki. Hann vann aftur á móti tuttugu af síð- ustu 26 leikjunum og varð meistari. Það mun vera í eina skiptið í sögunni sem tilvonandi meistaralið var ekki í efri hluta deild- arinnar um þetta leyti árs. Þessar vangaveltur eru meira til gam- ans, þegar allt kemur til alls eru þetta bara tölur á blaði og hjálpa hvorki Liv- erpool í síðari hluta mótsins né vinna gegn liðinu. Lykilatriðið er líklega að liðið virkar sterkara en það hefur gert um langt árabil. Rauði herinn er hreint ekki árennilegur og það er engin tilviljun að hann leiðir mótið um þessar mundir. Það hefur verið Akkilesarhæll Liverpool að tapa stigum gegn minni spámönn- um og enda þótt það hafi líka gerst í vetur (Stoke, Fulham, West Ham, Hull), hefur þessum leikjum fækkað, auk þess sem Liverpool hefur aðeins lotið einu sinni í gras. Og það óverð- skuldað gegn Tottenham. Þá hefur liðið látið helstu keppinauta sína, Manchester United og Chelsea, finna til tevatnsins, einkum var sigurinn á Brúnni frækilegur, eins og menn muna. Vörnin hefur verið sterk að vanda, aðeins fengið á sig 13 mörk í 20 leikjum. Hinn ómót- stæðilegi Jamie Carragher ber í brestina, gerist þess þörf, og ýmsir eru á því að Pepe Reina sé nú besti markvörður deildarinnar. Argentínumaðurinn ungi, Emiliano Insúa, hefur stokkið fullskapaður inn í vörnina og skyldi Liverpool loksins hafa eignast almenni- legan vinstri-bakvörð? Þá á liðið hinn firnasterka Martin Škrtel inni. Allt snýst um Steven Gerrard Um miðjuna þarf ekki að fjölyrða svo lengi sem fleiri skífuþeytar þvælast ekki fyrir Steven Gerrard. Nei, svona segir maður ekki. Allar líkur eru þó á því að það leiðinlega mál verði til lykta leitt með fjársekt og mögulega samfélagsþjónustu. Í versta falli. Javier Mascherano hefur styrkt liðið mikið í vanþakklátu hlutverki og Xabi Alonso lætur orðróm um að honum sé ofaukið sem vind um eyru þjóta. Dirk Kuyt er duglegur. Albert Riera hefur farið ágætlega af stað en Rafa Benítez, knattspyrnu- stjóri, mætti að ósekju sleppa beislinu oftar af Ryan Babel, þó ekki væri nema skemmtunarinnar vegna. Það skýtur aftur á móti skökku við að framlínan hefur ekki fundið sig sem skyldi. Robbie Keane var raunar loksins á skot- skónum í desember en var þá tekinn umsvifalaust út úr liðinu! Þá hefur Fern- ando Torres sama og ekkert verið með vegna meiðsla. Það er ekki amalegt að eiga slíkan leikmann til góða. Er biðin loksins á enda?  Liverpool hefur orðið enskur meistari í tvö af hverjum þremur skiptum sem liðið hefur set- ið á toppnum um jólin  Síðast þegar það gerðist hafnaði Rauði herinn hins vegar í 4. sæti Stóískur Rafael Benítez sýnir á sér sparihliðina. Venju- lega dettur hvorki né drýpur af kappanum. Sókndjarfir Robbie Keane og Steven Gerrard fagna einu af fjölmörgum mörkum Liverpool um hátíðarnar. Reuters
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.