Morgunblaðið - 04.01.2009, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Jakkaföt frá kr. 19.900
Stakir jakkar frá kr. 12.900
Stakar buxur frá kr. 7.900
Kakí- og Flauelsbuxur frá kr. 5.900
Hálfermaskyrtur frá kr. 1.990
Pólóbolir frá kr. 2.700
Sumarblússur frá kr. 6.200
Hann fæddist 25. október 1965. Hann tók stúdentspróf frá MH 1984, lauk
fyrri hluta verkfræðináms við HÍ, stundaði frönskunám og fjölmiðlafræði,
almannatengsl og sjónræna tækni í Frakklandi.
Hann hefur lagt stund á fararstjórn, blaðamennsku, kennslu og gagn-
rýni og fréttamennsku í sjónvarpi og var framkvæmdastjóri Kvikmynda-
sjóðs Íslands 1996-2003. Hann á að baki ótal störf tengd kvikmyndum og
sjónvarpi. Hann var talsmaður friðargæzluliðsins á Sri Lanka 2006 og
2007 og er nú upplýsingafulltrúi viðskiptaráðuneytisins.
Sambýliskona hans er Ástrós Gunnarsdóttir dansari. Hann á tvo syni
frá fyrra hjónabandi og einn stjúpson.
Systkinin Iðunn, Jónína, jóladúkkan, Lára,
Ragnar, Örn og Þorfinnur. Alma ófædd.
Þorfinnur „Ég segi oft, í gríni og alvöru, að
ég eigi fjórar systur sem allar eru kenn-
aramenntaðar og búa úti á landi; þrjár í
Mosfellsbæ og ein í Grafarvoginum. Héðan
frá Stýrimannastígnum finnst mér þær
langt í burtu.
Við erum dálítið tvískiptur systkinahópur,
eiginlega þrískiptur. Við Ragnar og Ninna
erum í eldra hollinu, þrjú á þremur árum,
svo er Örn svolítið í miðjunni og svo syst-
urnar þrjár í yngra hollinu; Lára, Iðunn og
Alma, líka þrjár á þremur árum. Eðli máls-
ins samkvæmt átti ég mesta samleið með
eldri hópnum, en ég man auðvitað vel eftir
Láru frá því hún fæddist; þá var ég á sjötta
ári. Hún var strax mjög fyrirferðarmikil,
bráðþroska og dugleg að bjarga sér. Við er-
um boltarnir í fjölskyldunni, vorum bæði yf-
ir tuttugu merkur og fyrirferðarmest út á
það.
Lára var því stór og mikil frá upphafi.
Sem elzta stelpan í yngra hollinu stýrði hún
þeim systrum af röggsemi, var kraftmest og
það var nettur forystusauður í henni. Hún
var skarpur krakki og lagði línurnar bæði
fyrir yngri systur sínar og aðrar stelpur.
Hún réð því hver gerði hvað, á seinni árum
er hún að reyna að telja mér trú um það að
hennar hlutur hafi ekki verið svo stór. Hún
gleymir því bara að ég var þarna líka og
varð vitni að öllu saman.
Hún komst hins vegar ekkert áleiðis með
að ráðskast með okkur eldri systkini sín.
Viljann vantaði ekki en hún átti aldrei sjens.
Til þess var bilið á milli okkar of breitt.
Lára var mikill grallari, hún var uppá-
tektarsöm og mikið fjör og mikið líf alltaf í
kringum hana. Svo var hún hláturmild með
afbrigðum.
Það var svolítið erfitt að stunda félagslíf
vegna stöðugra athugasemda og stríðni
yngri systranna með Láru fremsta í flokki.
Svona nokkuð truflar náttúrlega 12, 13 ára
ungling, það var erfitt að bjóða vinum að ég
tali ekki um vinkonum heim í þessa ljóna-
gryfju svo lendingin varð oftast að fara heim
til hinna.“
Óskiljanlegt Duran-Duran æði
„Þegar hún var unglingur greip hana Dur-
an Duran æði sem hún tók með slíku trompi
að mér fannst nóg um. Menntaskólaárin bjó
ég í bílskúrnum og þegar ég var 18 og hún
12 fór ég í langa lestarreisu um Evrópu og
þegar ég kom heim aftur hafði hún þroskazt
heilmikið, allavega hvað tónlistina snertir,
því hún hafði laumast í plötusafnið mitt og
lært að meta Spilverkið, Þursaflokkinn og
Pink Floyd.
Upp úr þessum náðum við betur saman,
hún var svolítið ráðvillt á tímabili í mennta-
skóla, fann sig ekki þar. Þess í stað hóf hún
barneignir mjög snemma, við eignuðumst
okkar frumburði um líkt leyti sem jók enn á
tengsl okkar og svo kom hún inn í fjöl-
miðlana og þar með urðum við kollegar ofan
á allt annað. Ég ber líklega einhverja
ábyrgð á því að hún byrjaði á NFS, þó að
valið og viljinn hafi auðvitað verið alfarið
hennar. Þaráður var hún hjá Office One og
stóð sig vel, hún fékk mikið lof hjá fem-
ínistum þegar hún fjarlægði klámblöð úr
hillunum. Þetta tók hún upp hjá sjálfri sér
og hafði bæði kjark og dugnað til þess að
fylgja sannfæringu sinni í þessum efnum.
Reyndar sótti hún um íþróttafréttarit-
arastöðu hjá Sýn áður en hún kom á NFS en
fékk ekki. Hún hefði orðið alveg frábær í
það, áhugasöm og kappsöm sem hún er, en
þeir vildu hana ekki, prófuðu hana ekki einu
sinni. Mér fannst þetta skandall enda sann-
aði hún strax hjá NFS að hún átti erindi í
fréttamannsstarfið. Hún hefur vítt áhuga-
svið og fylgist vel með.
Eftir á að hyggja var ekki galið að hún
skyldi komast svona seint í fréttamennsk-
una. Það er gott fyrir fjölmiðlafólk að hafa
sem breiðastan bakgrunn.
Lára er mjög kappsöm og dugleg kona.
Hún hefur mikinn drifkraft, er traust og
trygg og mikill vinur vina sinna. Svo er hún
fjölskyldurækin. Hún er mjög ör, sumum
finnst hún fyrirferðarmikil, en þau umsvif
fylgja bara lífskraftinum í henni.
Hún á það reyndar til að vera mjög
dramatísk, jafnvel áður en hún varð ungling-
ur setti hún mikla dramatík í gang, þegar
hún taldi sig þurfa að vera reið út í foreldra
okkar eða okkur systkinin. En þetta var allt
uppi á borðinu. Hún hefur aldrei verið í und-
irmálum.“
Sýndi bæði þroska og reisn
„Rauðavatnsmálið? Kannski hafði það
meiri áhrif á hana en við blasti á þeim tíma.
Hún tók því af miklum drengskap, axlaði
sína ábyrgð, sem er til fyrirmyndar. Ég var
nú að segja henni að taka það rólega eftir að
hún sagði upp á Stöð 2 út af þessu ( ummæl-
um sem fóru fyrir mistök í loftið - innsk. fj),
en hún réð sig strax í starf hjá Iceland Ex-
press. Hana langaði hins vegar bara alltaf í
fjölmiðla og það kom í ljós að sá tími hennar
var langt í frá liðinn. Ég er ekki að segja að
þetta mál hafi legið endalaust þungt á henni,
en það var ekki létt að ganga í gegnum það
meðan á því stóð. Það er ekki auðvelt að
vera leidd til slátrunar á ábyrgðarlausum og
ósmekklegum bloggsíðum. Að komast frá
því með hennar hætti fannst mér sýna mik-
inn þroska og mikla reisn. Þegar þetta mál
er skoðað eftir á, voru þetta bara klaufaleg
mistök sem hent geta alla á vinnustöðum
þar sem kaldhæðnislegur húmor þrífst.
Nú er hún landlaus en ég veit að það verð-
ur ekki lengi. Hún getur auðveldlega haslað
sér völl annars staðar.
Ég myndi ráðlegga henni að nota þetta
hlé til þess að flytja til útlanda og búa þar í
einhver ár. Það er bráðnauðsynleg lífs-
reynsla fyrir hvern sem er og það er aldrei
of seint að láta verða af henni“.
Er aldrei í undirmálum
Hún fæddist 27. marz 1971. Hún varð stúd-
ent frá Tækniskólanum 1999 og útskrif-
aðist sem kennari 2004. Hún kenndi í tvo
mánuði en þá kom til verkfalls og hún fór
að starfa sem innkaupastjóri hjá Dagur
Group.
Hún kom til starfa sem fréttamaður á
NFS og síðar Stöð 2. Eftir það starfaði hún
á 24 stundum og þegar blaðið var lagt nið-
ur vann hún út mánuðinn á Morg-
unblaðinu.
Hún er gift Hauki Olavssyni og eiga þau
fimm börn.
LÁRA ÓMARSDÓTTIR
‘‘VIÐ ERUM BOLTARNIR Í FJÖLSKYLDUNNI,VORUM BÆÐI YFIR TUTTUGU MERKUR OG FYRIRFERÐARMEST ÚT Á ÞAÐ. LÁRA VARÞVÍ STÓR OG MIKIL FRÁ UPPHAFI. SEM
ELZTA STELPAN Í YNGRA HOLLINU
STÝRÐI HÚN ÞEIM SYSTRUM AF RÖGG-
SEMI, VAR KRAFTMEST OG ÞAÐ VAR
NETTUR FORYSTUSAUÐUR Í HENNI.
ÞORFINNUR ÓMARSSON