Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri
Þrjú svefnherbergi (78 fm). Rúm fyrir
sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í s. 618-2800.
Húsnæði í boði
Stór tveggja herbergja íbúð á
fyrstu hæð í litlu fjölbýli í Kringlunni
með sérgarði. Íbúðin losnar 1. janúar
nk. Upplýsingar í s: 899-7012.
170 fm hæð með bílskúr
270 Mosfellsbæ
Til leigu hús í Súluhöfða með miklu
útsýni sem liggur við golfvöll.
3 svefnherbergi, stofa og sjónvarps-
hol. Leiguverð 195 þ. Laust strax.
S. 822-2550 Elli eða 822-2566.
Húsnæði óskast
Óska eftir 3 herb. íbúð
í Kópavogi 203
Hjón með eitt barn óska eftir 3 herb.
íbúð í 203 Kópavogi. Leiga getur haf-
ist um miðjan jan. Langtímaleiga.
Sími 697-8414.
4ra herb. íbúð í 101 Rvík
Erum 3 vinkonur að leita að 4ra
herb. íbúð í 101 Rvík. Við erum
pottþéttir leigjendur (2 laga-
nemar og ein í viðskiptafræði)
og heitum skilvísum greiðslum.
Nánari upplýsingar í s. 866 0778.
3 herb. íbúð óskast
Par með barn óskar eftir 3 herbergja
íbúð. Langtímaleiga frá 1. feb.
hámark 110.000. Uppl. í s. 823-1307
eða jjokh@live.com
Geymslur
40 fm lager/geymsluhúsnæði
til leigu
40 fm lager/geymsluhúsnæði til leigu
við Kleppsveginn á annarri hæð,
hentar vel fyrir netverslanir.
Aðgangur að klósetti, skúringar-
aðstöðu og kaffistofu, leiguverð er
30-33 þ. á mánuði. Upplýsingar á
kraftvorur@kraftvorur.is
Sumarhús
www.floridahus.is
Glæsileg sumarhús í Orlando Flórída
til leigu. www.floridahus.is
info@floridahus.is
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Upledger höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð
1. áfanginn í Upledger höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð verður
haldinn í Reykjavík 7.-10. febrúar
2009. Uppl. og skráning á
www.upledger.is eða í s: 466-3090.
Hjartanærandi
uppeldisaðferð
fyrir erfið og krefjandi börn
(ADHD)
hefst 8. janúar kl. 19.30 í
Hafnarfirði. 5 skipti kr. 6.900.
Upplýsingar í síma 615 2161.
gretajonsdottir@internet.is
Frábært, rafrænt námskeið í
netviðskiptum. Notaðu áhugamál
þitt, kunnáttu og sérþekkingu til að
skapa þér góðar og vaxandi tekjur á
netinu. Við kennum þér hvernig!
Skoðaðu málið á
http://www.menntun.com
Tómstundir
Markaðslaugardagur
frímerkjasafnara Stór markaður
laugardag Síðumúla 17 kl. 13:00-
15:00. Kaffi í boði félagsins.
Auk þess verður boðið uppá ókeypis
verðmat á frímerkjasöfnum.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fyrirtæki
Verslun til sölu
Ert þú/þið búin að missa vinnuna,
því ekki að prófa eitthvað nýtt?
Af sérstökum ástæðum er til sölu lítil
verslun í Kópavogi með vandaðar og
þekktar heimilisvörur frá m.a.
Danmörku, Frakklandi og fleira.
Örugg og góð húsaleiga á góðum
stað. Verð: tilboð. Upplýsingar í síma
824-1254.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket,
útihurðir o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Óska eftur tilboði í málningu
utanhúss á heilu húsi í Norður-
mýrinni. Tvær hæðir og ris.
Vinsamlega hafið samband við
Þorstein í sím a 551 7678.
Ýmislegt
ÚT AÐ GANGA!
Eigum úrval af vönduðum
götuskóm úr leðri, skinnfóðraða,
fyrir dömur og herra.
Mjúkir og þægilegir leðurskór
á góðum gúmmísóla fyrir dömur.
Stærðir: 36 - 42. Litir: Rautt og svart.
Verð: 11.900.-
Mjúkir og þægilegir leðurskór
með stömum sóla fyrir dömur.
Stærðir: 36 - 42. Litir: svart.
Verð: 11.900.
Vandaðar og góðar herramokka-
síur úr leðri. Stærðir: 40 - 46.
Litir: Svartir og ljósir. Verð: 6.885.-
Flottir og sportlegir leðurskór
fyrir alvöru menn. Stærðir: 40 - 48.
Litir: Svart, brúnt og mislitt.
Verð: 9.985.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
NÝTT LÍF - HREYFUM OKKUR Á
NÝJU ÁRI
Íþróttahaldarinn sívinsæli í BCD
skálum Í SVÖRTU OG HVÍTU á kr.
3.850,- og aðhaldsbuxur í stíl í
stærðum S,M,L,XL á kr. 1.950,--
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Bílar
Stór sparibaukur
Peugeot 307 SW, árg. 2007, ekinn
35.000 km, 2 lítra 136 hestafla
díselvél, mjög sparneytinn bíll.
Uppl. á gis@rafpostur.is eða í
síma 663-5575.
Bílaþjónusta
Ökukennsla
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
8921451/5574975.
Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Húsviðhald
Þarftu að breyta eða bæta heima
hjá þér?
Eða þarftu aðstoð í nýbyggingunni?
Við erum til í að aðstoða þig við alls-
konar breytingar. Við erum til í að
brjóta niður veggi og byggja upp nýja,
breyta lögnum, flísaleggja eða
parketleggja og fl. Bjóðum mikla
reynslu og góð vinnubrögð.
Upplýsingar í síma 899 9825.
Búslóðaflutningar
Flutningur til Danmerkur
Ertu að flytja til Danmerkur?
Okkur vantar að kaupa hlut í gám,
u.þ.b. 2 x 2 metrar. Vinsamlegast
hringið í Jón í síma 896-5075 eða
fridadottir@gmail.com
SAMÞYKKT verði lög nú þegar sem
kveði á um að núverandi kvótakerfi í
sjávarútvegi verði aflagt frá og með 1.
september 2009. Veiðiréttur núverandi
kvótaeiganda fellur niður frá og með
þeim tíma. Skuldir sjávarútvegsfyr-
irtækja við Glitni, Landsbankann og
Kaupþing verði eftir í þrotabúi bank-
anna. Skiptastjóri mun í framhaldi selja
vinnslur, skip og tæki þeirra sjávar-
útvegsfyrirtækja sem verða gjaldþrota en þar sem útlend-
ingum er óheimilt að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi
mun stór hluti af þessum eignum verða keyptur af inn-
lendum aðilum, annaðhvort sömu útgerðaraðilum eða nýj-
um. Tekin verði upp ný veiðistjórnun og landhelginni skipt
upp í veiðisvæði. Innan 50 mílna verða eingöngu heimilar
veiðar dagróðrabáta. Bátar sem koma með afla að landi í
heimahöfn innan sólarhrings. Vistvænar veiðar njóti for-
gangs og veiðar með veiðarfærum sem valda nátt-
úruspjöllum verði takmarkaðar eða bannaðar. Veiðimagn
verður takmarkað á hverja höfn í samræmi við vinnslu-
getu og heildarveiðimagn sem leyft verður að veiða. Sér-
stakt 5-15% aflagjald verður lagt á allan afla sem kemur
að landi. Aflagjald skiptast til helminga milli ríkis og við-
komandi sveitarfélags. Úthafsveiðar (veiðar utan 50 sjó-
mílna) verða boðnar út.
Leyfð verður ákveðin veiðigeta og ákveðin veiðisókn í
hvert veiðihólf sem boðin verður út til ákveðins tíma í senn
sem getur verið frá einni vertíð og allt að fimm vertíðum í
senn. Auk þess verður lagt á sérstakt mengunar/
eldsneytisgjald sé siglt með afla langar vegalengdir sem
geri það að verkum að útgerð sjái hag sínum best borgið
með að landa afla sem næst fiskimiðum. Teknar verða upp
samhliða stuttar kynningarviðræður við Evrópusam-
bandið, NAFTA, Bandaríkjamenn, Noreg, Japan og
Sviss. Öllum aðilum verði gerð grein fyrir því að Íslend-
ingar hyggist taka upp nýjan gjaldmiðill þegar í byrjun
árs 2009. Til greina komi að taka upp evru, svissneskan
franka, japanskt yen, norska krónu eða dollar. Óskað verði
eftir stuðningi viðkomandi aðila við slík gjaldmiðlaskipti.
Byggt á viðbrögðum aðila verði farin sú leið sem talin
verður auðveldust og hagkvæmust þykir fyrir Ísland,
helst með stuðningi seðlabanka þess ríkis eða ríkja-
sambands sem getur prentað viðkomandi gjaldmiðil. Í
framhaldi verði farið í gjaldmiðlaskipti og Seðlabanki Ís-
lands lagður niður. Notast verði við gengisvísitölu sem
sögðu hefur verið jafnvægisvísitala, eða 145. Gengið verði
frá fríverslunarsamningi við Kína og önnur þau lönd og
ríkjasambönd sem það vilja.
Verðtrygging lána verði aflögð og höfuðstóll lána end-
urreiknaður afturvirkt frá og með 1. janúar 2008.
Hætt verður að taka við láni frá IMF og samkomulagi
við Breta og Hollendinga um að Íslendingar taki að sér að
ábyrgjast greiðslur til breskra sparifjáreiganda umfram
tryggingasjóð innistæðueigenda verði rift. Breska ríkinu
verði stefnt fyrir setningu hryðjuverkalaga og þess krafist
að fá nákvæmar upplýsingar um á hvaða forsendu hryðju-
verkalögin voru sett.
Sé grunur um að einhverjir eigendur eða starfsmenn
viðkomandi fjármálastofnana eða aðilar þeim tengdir séu
tengdir alþjóðlegri glæpastarfsemi skulu þeir handteknir
og mál þeirra rannsakað í samstarfi við lögregluyfirvöld
annarra ríkja. Skilanefndir verði leystar upp og þrotabú
bankanna Landsbanka, Glitnir og Kaupþings verður sett í
venjulega gjaldþrotameðferð í samvinnu við lánardrottna.
Skipaðir verði óháðir erlendir skiptastjórar. Allir gjörn-
ingar skilanefnda verða endurskoðaðar og dregnir til baka
ef mögulegt er, þ.e. ekki verði teknar eignir út úr gömlu
bönkunum yfir í nýja nema það sé gert í samvinnu við
skiptastjóra í samræmi við eðlileg skiptakjör.
Helstu lánardrottnum íslensku bankanna verða boðnar
sérstakar skattaívilnanir og hagstætt rekstrarumhverfi,
taki þeir yfir rekstur gjaldþrota bankanna hérlendis og
tryggi öfluga fjárfestinga og bankastarfsemi á landinu.
Séð verði til þess að almennur sparnaður fólks verði fyrstu
forgangskröfur.
Flestum sendiráðum Íslands verði lokað í sparnaðar-
skyni, starfsfólki sagt upp og húsnæði þeirra selt. Samið
verði við t.d. hin Norðurlöndin, eitt eða fleiri, um að ís-
lenskir sendiráðsfulltrúar fái aðsetur í viðkomandi sendi-
ráðum þar sem það þykir nauðsynlegt. Ferðalög op-
inberra starfsmanna verða skorin niður um 50-70%
Tekin verði upp sérstök hollustu-, orku- og umhverf-
isstefna og m.a. að öll innlend matvælaframleiðsla sem
uppfyllir kröfur sem gerðar eru í þeirri stefnu verði und-
anþegin virðisaukaskatti, auk þess sem önnur opinber
gjöld og orkukostnaður verða lækkuð til hennar. Lækk-
aður verður orkukostnaður á matvælaframleiðendur.
Tekið verður upp sérstakt mengunargjald á mengandi
stóriðju og annan mengandi útblástur. Samhliða hefji Ís-
land strax öfluga vinnu og samstarf við erlenda aðila um
að gera Ísland sjálfbært um alla orku fyrir skip og öku-
tæki og stefni að því að verða leiðandi á því sviði. Sérstök
áhersla verði lögð á að umbreyta mengandi útblæstri frá
stóriðju í vistvæna orku.
Góðar stundir.
Leið út úr ógöngum
Karl Eggertsson, innkaupastjóri.
ÞJÓÐNÝTING bankanna var djörf framkvæmd, en
líklega nauðsynleg til að halda eðlilegri fjármálaþjón-
ustu gangandi í landinu. Það var að minnsta kosti mat
ríkisstjórnar Íslands og því er öll framkvæmd málsins
í hennar höndum. Eins og flestir vita eru skýr ákvæði
í stjórnarskrá landsins um þjóðnýtingu eigna og þegar
þrjú stærstu fyrirtæki landsins eru þjóðnýtt er krafan
um einbeitingu ríkisins þeim mun háværari.
Stjórnvöld í Bretlandi bera meginábyrgð á að grípa
þurfti til þjóðnýtingar og auðvitað verða þau sömu
stjórnvöld að bæta íslenska ríkinu og hluthöfum bankanna það fjárhags-
tjón sem þau hafa valdið. Íslensk stjórnvöld verða að sjá til þess að
kröfur í málinu komi fram og að málið verði sótt af fullum þunga fyrir
breskum dómstólum.
Nú berast þær fréttir, að forustu ríkisins skorti og hugsanlegt sé að
kröfur á Bretland muni glatast, vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda.
Er ríkisstjórninni ekki ljóst, að hún ber alla ábyrgð á kröfugerð í nafni
þjóðarinnar og í nafni bankanna, sem Bretar beittu hryðjuverkalög-
unum? Ljóst ætti að vera, að ekki er mögulegt fyrir hluthafa bankanna
að standa í fjárútlátum, þar sem eigur þeirra eru í umsjón skilanefnda
bankanna, sem starfa í umboði og á ábyrgð Fjármáleftirlitsins.
Fyrir þá sem ekki eru kunnugir 72. grein stjórnarskrárinnar, er auð-
velt að bæta úr því:
72. gr. Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af
hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli
og komi fullt verð fyrir.
Alþingi uppfyllti ákvæði 72. greinar stjórnarskrárinnar, hvað varðar
„lagafyrirmælin“, en bæturnar hafa ekki ennþá verið reiddar fram, né
skilgreindar. Lögin um þjóðnýtingu bankanna eru númer 125:2008 og
þar er þess getið að ríkissjóður beri kostnað af þjóðnýtingunni, eins og
eðlilegt er. Orðalagið er þó undarlega loðið, en ekki verður því haldið
fram hér, að ætlun Alþingis sé að víkja sér undan fullri bótaábyrgð. Í 5.
grein laganna segir:
Ríkissjóður ber ábyrgð á kostnaði af framkvæmd aðgerða Fjármála-
eftirlitsins á grundvelli greinar þessarar, þar með talið skiptakostnaði ef
til slíks kostnaðar stofnast.
Það má því öllum vera ljóst, að ríkið kemst ekki undan fullri bóta-
ábyrgð gagnvart hluthöfum bankanna þriggja. Almenningur gerir þess
vegna miklar kröfur um eftirfylgni krafna og fullra bóta vegna alls þess
tjóns sem íslenskir þegnar hafa orðir fyrir með efnahagslegum skemmd-
arverkum Breta. Ekki má henda, að kröfur fyrnist vegna handarbaka-
vinnu íslenskra embættismanna.
Þjóðnýting bankanna – enda
komi fullar bætur fyrir
Loftur Altice Þorsteinsson verkfræðingur
og vísindakennari.