Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 48
48 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Á
stralski kvikmyndaleik-
stjórinn Baz Luhrman
hefur búið sér til feril
úr því að töfra dauðar
kvikmyndagreinar
fram úr grafhýsi tískunnar. Það er
alltaf eitthvað aðeins á skjön við
samtímann í hverri mynd sem
hann gerir – samkvæmisdans í
Strictly Ballroom, leikhústexti
Shakespeares í Romeo+Juliet, og
loks sjálf dans- og söngvamyndin
Moulin Rouge sem endurvakti
heila kvikmyndagrein sem talin
var hafa lognast útaf á sjöunda
áratugnum. Nýjasta mynd hans,
Australia, er engin undantekning.
Nicole Kidman leikur Lafði As-
hley sem fer frá hefðarsetri sínu í
Englandi til Darwin í Norður-
Ástralíu í leit að eiginmanni sínum
sem hefur orðið altekinn af rekstri
kúabúgarðs á sléttunum þar í
kring. Leiðsögumaður hennar um
þennan nýja heim er Kúrekinn
(„The Drover“), leikinn af Hugh
Jackman. Þau eru ólíklegir föru-
nautar í fyrstu, líkt og Bogart og
Hepburn í African Queen, en fljót-
lega kemur annað í ljós. Við taka
ævintýri, örlagaríkar sviptingar,
mikill missir, stór ást og loks
tækifæri til að höndla hamingjuna.
Luhrman hefur gert stórmynd
fyrir alla fjölskylduna, í anda gull-
aldar Hollywood. Auglýs-
ingaspjaldið sýnir þetta með
beinni vísun í Gone With the
Wind. Sögusviðið víðátta áströlsku
óbyggðanna, persónurnar eru
stoltar og þóttafullar, og svipting-
arnar í lífi þeirra eru miklar – allt
frá rekstri 1.500 nautgripa í kappi
við tímann til sprengjuárásar Jap-
ana á Darwin. Hér er gamaldags
melódrama á ferð, og því liggur
beint við að spyrja leikstjórann
sjálfan að því hvert hann er að
fara með því að búa til mynd í
þessari gömlu stórmyndahefð.
„Allt í menningunni kemur ein-
hversstaðar að,“ segir Luhrman.
„Maður getur annaðhvort reynt að
fela þessar vísanir eða verið op-
inskár með þær. Ég hef verið
ófeiminn við það af tveimur ástæð-
um: Annars vegar, ef þú lítur á
plakatið þá er augljóst að hér er
ekki raunsæi á ferð. Þetta er lík-
ara málverki. Vísunin í plakatinu
er til Gone With the Wind, sögu-
heims sem dreginn er stórum
dráttum þar sem gaman- og harm-
leikur fara saman – sú mynd var
ekki tekin úti á götu. Þar eru öll
baksvið máluð á gler og þau fóru
nær aldrei út fyrir hússins dyr.
Þessi málaði heimur, þessi ýkti
heimur, hann krefst ákveðins
myndmáls. Þetta myndmál er sótt
í stórmyndahefðina. Í þessu felst
að áhorfandinn sem þekkir vís-
anirnar verður að velja hvort hann
spilar með og lætur hrífast, eða
ekki. Ef þú ert fullorðinn kvik-
myndaunnandi og vilt finna til-
finningalega svörun við þessari
mynd þá verður þú að leggja kald-
hæðnina frá þér við innganginn.
Australia segir í raun opinskátt
við áhorfendurna: Ég veit þetta er
melódrama, og já það er ýkt, og
ég er að spila með ykkur, en ég
veit að þið vitið að ég er að spila
með ykkur.“
Slegið á kaldhæðnina
Luhrman segist reyna að hjálpa
áhorfendunum til þess að þeir geti
leyft sér innlifunina og tilfinning-
arnar. Fyrstu 20 mínúturnar eiga
að grafa undan væntingum áhorf-
andans, einkum þeirra sem koma
Nýjasta kvikmynd ástralska leikstjórans Baz
Luhrmans, Australia, er í einu orði sagt „stór-
mynd“. Gauti Sigþórsson hitti leikstjórann að
máli og spjallaði við hann um kvikmyndina, kvik-
myndahefðina og dauða fjölskyldumyndarinnar.
Ljót saga Hörmuleg meðferð ástralskra innflytjenda á frumbyggjum Ástralíu fléttast inn í söguþráðinn.
Tveir heimar mætast Hefðardaman frá Englandi neyðist til að óhreinka fína kjólinn þegar hún er kvödd til Ástr-
alíu til að taka við rekstri nautgripabús. Hún og leiðsögumaður hennar eru ólíklegir förunautar.
Stórmynd „Ef þú ert fullorðinn kvikmyndaunnandi og vilt finna tilfinningalega svörun við þessari mynd þá verður
þú að leggja kaldhæðnina frá þér við innganginn,“ segir Luhrman. Hann vill að áhorfendur lifi sig inn í heiminn.
Óður til fósturjarðarinnar
MARK Anthony „Baz“ Luhr-
mann fæddist í Sydney í Ástr-
alíu hinn 17. september 1962.
Móðir hans var danskennari
en faðir hans bóndi sem einnig
rak bensínstöð og kvikmynda-
hús í bænum Herons Creek í
Nýju Suður-Wales. Hann er
giftur Catherine Martin og
saman eiga þau tvö börn. Cat-
herine hefur verið framleið-
andi að öllum kvikmyndum
Luhrmanns til þessa.
Kvikmyndir Luhrmanns:
Strictly Ballroom (1992)
Romeo + Juliet (1996)
Moulin Rouge! (2001
Australia (2008).
Fyrstu þrjár myndirnar eru
iðulega nefndar Rauðu-tjalda
þríleikurinn (The Red Curtain
Trilogy).
Reuters
Leikstjórinn Luhrmann fékk
um 130 milljónir dala til að
gera Australia.
Baz Luhrmann