Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 49
inn í bíóið í þeirri trú að þeirra
bíði eitthvað í líkingu við Out of
Africa. „Þú ruglast vonandi að-
eins, og þá vona ég að þú lifir þig
inn í myndina, því ef þú situr
þarna allan tímann og greinir
hana þá missirðu af tilfinningunni.
Australia er þannig gerð, vona ég,
að hún slær á kaldhæðnina. Ef
það tekst ekki, ef þú finnur engan
samhljóm við myndina þá er hún
þér vita gagnslaus.“ Luhrman er
mikið í mun að áhorfendur upplifi
kvikmyndir hans á persónulegan
hátt. „Sumir ná myndinni á svo
djúpstæðan hátt að ég veit varla
um hvað þeir eru að tala. En þeir
hafa fullt leyfi til þess og hafa rétt
fyrir sér um þá reynslu – ég segi
bara söguna. Stórar frásagnir
gera þetta, þær kveikja eitthvað
með þér sjálfum.“
Bitur pilla í
stórum eftirrétti
Það er þó ekki allt bjart og fal-
legt í söguheimi Australia. Ein að-
alpersóna myndarinnar er strák-
urinn Nullah sem lifir við þá
stöðugu ógn að vera tekinn frá
móður sinni með lögregluvaldi og
settur á kaþólskt upptökuheimili
vegna þess að hann er „bland-
aður“ sonur frumbyggjamóður og
hvíts föður. Hvernig samræmist
það fjölskyldumynd sem þessari
að svo dökkur kafli í sögu Ástr-
alíu, kerfisbundið brottnám barna
áratugum saman, er settur í önd-
vegi? Leikstjórinn segist gera sér
fulla grein fyrir því hversu alvar-
legt og viðkvæmt þetta efni er. „Í
svona stórri afþreyingarmynd þá
er bitra pillan falin inni í stórum
eftirrétti. Það væri hægt að gera
smærri mynd – það er til frábær
lítil mynd um þetta, en áhorf-
endahópurinn var lítill og fyr-
irfram upplýstur um efnið. Fáir
sem fara að sjá Rabbit-Proof
Fence eru hægrisinnaðir ástralsk-
ir afneitunarsinnar. Aftur á móti
ef sagan er hluti af svona stór-
mynd þá nær hún að minnsta
kosti til breiðs hóps. Ekki það að
þetta sé fræðslumynd eða í ásök-
unartón. Ekki allir frumbyggjar í
myndinni minni eru góðar mann-
eskjur, og kristnu trúboðarnir eru
ekki allir slæmir.“
Fjölskyldumyndir
eru ekki bara fyrir börn
Það krefst óbilandi bjartsýni að
fjármagna og framleiða mynd eins
og Australia sem höfðar til breiðs
áhorfendahóps, í stað þess að vera
sniðin að vissum aldri, kyni og
áhugamálum. „Kvikmyndir í dag
eru oftast skýrt flokkaðar sem
gamanmyndir, hasar, ástarsögur,
og svo framvegis. Ástarsögurnar
eru síðan fyrir konur á vissum
aldri. Hasarmyndir eru fyrir
sautján ára stráka. Þetta er
vandamál í kvikmyndageiranum,“
segir Luhrman. „Því markaðs-
setningin sundrar áhorfendum í
aðskilda kima. „Við höfum leyft
þeim að skilgreina okkur sem ein-
staklinga. Myndir eins og Aust-
ralia voru áður einskonar hlað-
borð, bíóið bauð öllum til
veislunnar. Það var í lagi að fara
með ömmu og afa í bíó. Fjöl-
skyldumyndir þýða bara eitt núna:
börn. Það er banabitinn. Mér
finnst að sagnalistin eigi að vera
fyrir alla. Rétt eins og fjölskyldan
kemur saman fyrir stóra máltíð, af
hverju getur hún ekki komið sam-
an fyrir mikla kvikmynda-
upplifun?“
»Kvikmyndir í dageru oftast skýrt
flokkaðar sem gam-
anmyndir, hasar,
ástarsögur, og svo
framvegis. Ást-
arsögurnar eru síðan
fyrir konur á vissum
aldri. Hasarmyndir
eru fyrir sautján ára
stráka. „Þetta er
vandamál í kvik-
myndageiranum.“
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Þjóðleikhúsið Af öllum sviðum lífsins
551 1200 | midasala@leikhusid.is
Miðasalan er opin alla daga frá kl. 12:30 til 18:00 og öll sýningarkvöld til kl. 20. Miðapantanir
teknar í síma alla virka daga frá kl. 10:00.
Stóra sviðið
Hart í bak
Fös 9/1 kl. 20:00 Ö
Sun 18/1 kl. 20:00 Ö
Lau 24/1 kl. 20:00
Sun 25/1 kl. 20:00
Ath. aukasýningar í sölu
Kardemommubærinn
Lau 21/2 frums. kl. 14:00 U
Sun 22/2 kl. 14:00 Ö
Sun 22/2 kl. 17:00 Ö
Lau 28/2 kl. 14:00 Ö
Sun 1/3 kl. 14:00 Ö
Sun 1/3 kl. 17:00 Ö
Sumarljós
Sun 4/1 5. sýn. kl. 20:00 Ö
Lau 10/1 6. sýn. kl. 20:00
Sun 11/1 7. sýn. kl. 20:00
Fös 16/1 8. sýn. kl. 20:00
Lau 17/1 kl. 20:00
Fim 22/1 kl. 20:00
Fös 23/1 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00
Verk byggt á skáldsögunni Sumarljós, og svo kemur nóttin
Kassinn
Heiður
Þri 20/1 fors. kl. 20:00 Ö
Mið 21/1 fors. kl. 20:00 Ö
Fim 22/1 fors. kl. 20:00 Ö
Lau 24/1 frums. kl. 20:00 U
Sun 25/1 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00
Lau 7/2 kl. 20:00
Lau 14/2 kl. 20:00
Fös 20/2 kl. 20:00
Lau 28/2 kl. 20:00
Athugið snarpt sýningatímabil
Kúlan
Klókur ertu - Einar Áskell
Sun 4/1 kl. 13:30
Sun 4/1 kl. 15:00
Sun 11/1 kl. 13:30
Sun 11/1 kl. 15:00
Örfáar aukasýningar í janúar
Borgarleikhúsið
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Miðasalan er opin mánudaga og þriðjudaga kl. 10:00-18:00, miðvikudaga til föstudaga kl.
10:00-20:00, og laugardaga og sunnudaga kl. 12:00-20:00
Fólkið í blokkinni (Stóra sviðið)
Sun 4/1 kl. 19:00 U
Lau 10/1 kl. 19:00 U
Sun 11/1 kl. 19:00 U
Lau 17/1 kl. 19:00 U
Sun 18/1 aukas kl. 19:00
Lau 24/1 kl. 19:00 U
Sun 25/1 kl. 16:00 Ö
Lau 31/1 kl. 19:00 U
Yfir 50 uppseldar sýningar! Tryggið ykkur nú miða í janúar!
Fló á skinni (Stóra sviðið)
Fös 9/1 kl. 19:00 Ö
Fös 16/1 kl. 19:00 Ö
Fös 23/1 kl. 19:00 Ö
Fös 30/1 kl. 19:00
Yfir 130 Uppseldar sýningar. Áhorfendasýning ársins!
Laddi (Stóra svið)
Þri 20/1 kl. 20:00 Ö
ný aukas
Lau 24/1 ný aukas kl. 20:00 Fim 29/1 ný aukas kl. 20:00
Sannleikurinn, einleikur Péturs Jóhanns (Litla svið)
Fös 6/2 frums kl. 20:00 U
Lau 7/2 2kortas kl. 19:00 U
Lau 7/2 aukas kl. 22:00 Ö
Sun 8/2 3kortas kl. 20:00 U
Mið 11/2 4kortas kl. 20:00 U
Fim 12/2 5kortaskl. 20:00 U
Fös 13/2 6kortaskl. 19:00 U
Fös 13/2 aukas kl. 22:00
Lau 14/2 aukas kl. 19:00
Lau 14/2 aukas kl. 22:00
Fös 20/2 7kortas kl. 19:00
Lau 21/2 8kortas kl. 19:00
Lau 21/2 aukas kl. 22:00
Lau 21/2 aukas kl. 22:00
Sun 22/2 9kortas kl. 20:00
Miðasala hefst í dag kl. 10.00
Rústað, eftir Söru Kane (Nýja sviðið)
Fös 30/1 frums kl. 20:00 U
Lau 31/1 2. kort kl. 20:00 U
Sun 1/2 3. kort kl. 20:00 U
Fim 5/2 4. kort kl. 20:00 Ö
Fös 6/2 5. kort kl. 20:00 Ö
Lau 7/2 6. kort kl. 20:00 Ö
Miðasala hefst 9.janúar. Ath! bannað börnum og alls ekki fyrir viðkvæma.
Leikfélag Akureyrar
460 0200 | midasala@leikfelag.is
Falið fylgi (Rýmið)
Fös 16/1 frums. kl. 20:00 U
Lau 17/1 2. kort kl. 19:00 U
Lau 17/1 hátíðar kl. 22:00 U
Fim 22/1 3. kort kl. 20:00 U
Fös 23/1 4. kort kl. 19:00 U
Lau 24/1 5. kort kl. 19:00 U
Lau 24/1 aukas kl. 22:00
Sun 25/1 6. kort kl. 20:00 U
Fim 29/1 7. kort kl. 20:00 U
Fös 30/1 8. kort kl. 19:00 U
Lau 31/1 9. kort kl. 19:00 U
Sun 1/2 10. kortkl. 20:00 U
Fim 5/2 11. kortkl. 20:00 U
Fös 6/2 12. kortkl. 19:00 U
Lau 7/2 13. kortkl. 19:00 U
Sun 8/2 14. kortkl. 20:00 U
Forsala hefst 5. janúar 2009
Systur (Leikfélag Akureyrar)
Fös 23/1 1. sýn. kl. 20:00 Lau 24/1 2. sýn. kl. 20:00
Danssýning
Landnámssetrið í Borgarnesi
437 1600 | landnamssetur@landnam.is
BRÁK eftir BrynhildiGuðjónsdóttur (Söguloftið)
Sun 4/1 kl. 16:00
Lau 10/1 kl. 20:00
Fös 16/1 kl. 20:00
Þri 20/1 aukas. kl. 20:00
Lau 24/1 kl. 17:00
þorrablót eftir sýn.una
Fös 30/1 kl. 20:00
Tvær Grímur 2008 - Besta leikkonan - Besta handritið
Mr. Skallagrímsson eftir Benedikt Erlingsson
(Söguloftið)
Fös 9/1 kl. 20:00 U
Lau 17/1 kl. 20:00
Fös 23/1 kl. 20:00
Tvær Grímur 2007 - Besti leikari - Besta handritið
Draumasmiðjan
8242525 | elsa@draumasmidjan.is
Ég á mig sjálf (farandsýning)
Lau 17/1 kl. 15:00 F
Fim 29/1 kl. 00:00 F
Fim 29/1 kl. 00:00 F
Íslenska óperan
511 4200 | midasala@opera.is
Janis 27
Lau 10/1 kl. 20:00
Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00
Iðnó
562 9700 | idno@xnet.is
Caput Tónleikar
Sun 4/1 kl. 15:30
Systur
Lau 31/1 frums. kl. 20:00
Lau 7/2 kl. 20:00
Fös 13/2 kl. 20:00
Lau 21/2 kl. 20:00
Fös 27/2 kl. 20:00
Dómur Morgunblaðsins
Hafnarfjarðarleikhúsið
555 2222 | theater@vortex.is
Dubbeldusch (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Lau 10/1 kl. 20:00
Sun 11/1 kl. 20:00
Fös 16/1 kl. 20:00
Lau 17/1 kl. 20:00
Fös 23/1 kl. 20:00
Lau 24/1 kl. 20:00
Fös 30/1 kl. 20:00
Lau 31/1 kl. 20:00
Steinar í djúpinu (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 18/1 aukas. kl. 20:00 Sun 25/1 aukas. kl. 20:00
Takmarkaður sýningarfjöldi
Stórasti sirkus Íslands (Hafnarfjarðarleikhúsið)
Sun 4/1 kl. 14:00
Íslenski dansflokkurinn
568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Febrúarsýning2009 (Stóra sviðið)
Fim 5/2 frums. kl. 20:00
Sun 8/2 kl. 20:00
Sun 15/2 kl. 20:00
Sun 22/2 kl. 20:00
Sun 1/3 kl. 20:00
Sun 8/3 kl. 20:00
GRAL - Grindvíska
Atvinnuleikhúsið
4201190 | grindviska.gral@gmail.com
21 MANNS SAKNAÐ (Grindavík)
Sun 11/1 aukas. kl. 20:00
Sun 18/1 aukas. kl. 20:00
Sun 25/1 aukas. kl. 20:00
Sun 1/2 aukas. kl. 20:00
FRÁBÆR GJAFAKORT Í JÓLAPAKKANN!!! - Upplýsingar á
grindviska.gral@gmail.com
Möguleikhúsið
5622669 / 8971813 |
moguleikhusid@moguleikhusid.is
Langafi prakkari (ferðasýning)
Þri 24/2 kl. 12:40 F
ísaksskóli
Þri 24/2 kl. 13:50 F
ísaksskóli
Sæmundur fróði (ferðasýning)
Fös 16/1 kl. 10:00 F
ártúnsskóli
KVIKMYND
Sambíóin, Laugarásbíó
Bolt – Bolti
bbbmn
Teiknimynd í þrívídd. Leikstjórar: Chris
Williams og Byron Howard. Með enskri
og íslenskri raddsetningu. 95 mín.
Bandaríkin. 2008.
HOLLYWOOD er farin að gera
stólpagrín að sjálfri sér upp á síð-
kastið, og er það hið besta mál.
Skemmst er að minnast Tropic
Thunder, með Ben Stiller og Disn-
ey-teiknimyndin Bolt, fjallar um tit-
ilhetjuna, sem er sannkallaður of-
urhundur og stjarna í eigin
sjónvarpsþáttum. Bolt fær á bauk-
inn þegar hann sleppur út í hana
veröld, þar er hann ósköp venjuleg-
ur rakki, kjarklítill og gjörsamlega
laus við alla yfirnáttúrlega krafta.
Bolt minnir meira en lítið á aðra
satíru, meistaraverk Weirs, The
Truman Show, þar sem Jim Carrey
fer frábærlega með aðalhlutverkið.
Báðar söguhetjurnar, Bolt og Trum-
an, eru fullkomlega ómeðvitaðir um
að þær eru ósköp venjuleg fórn-
arlömb skemmtiiðnaðarins, tragi-
kómískar fígúrur, gerðar út í þeim
eina tilgangi að græða peninga.
Bolt er fyrst og fremst fjöl-
skylduskemmtun og vel lukkuð sem
slík. Hún er að miklum hluta vega-
mynd, Bolt lendir óvart austur í
New York og þarf að komast aftur
til síns heima, í Kaliforníu. Á ferða-
laginu eignast hann nýja félaga sem
hressa upp á söguna; kúnstugan
kött, hamstur og dúfur, svo fátt eitt
sé nefnt. Þessi grallaralegi hópur
veitir áhorfendum á öllum aldri
ósvikna ánægju, myndin tekur sig
vel út í þrívíddinni og íslenska radd-
setningin vönduð að venju. Ósvikin,
fyndin skemmtun, blessunarlega
laus við tilgerð og gamalkunnan yf-
irdrepsskap.
Sæbjörn Valdimarsson
Hollt
og Bolt
Ferðafélagarnir Grallaralegur hópurinn gleður áhorfendur.
SONUR leikaranna Johns Travolta
og Kelly Preston lést á föstudag
eftir að hafa fengið flogakast þegar
fjölskyldan var í fríi á Bahamaeyj-
um. Jett Travolta sem var 16 ára
átti við flogaveiki að stríða og
fannst meðvitundarlaus á baðher-
bergi í húsi fjölskyldunnar, eftir að
hafa fallið og rekið höfuðið í. Lífg-
unartilraunir voru árangurslausar.
Travolta og Preston eiga einnig
átta ára dóttur.
Dauði Jett kom fjölskyldunni í
opna skjöldu. Travolta hefur hafn-
að fréttum um að Jett væri ein-
hverfur, heldur hafi hann þjáðst af
Kawasaki-heilkenni, sjúkdómi sem
hefur áhrif á ýmis líffæri líkamans.
Reuters
Foreldrarnir Leikararnir John
Travolta og Kelly Preston.
Sonur Travolta
látinnÞAÐ er dagljóst að kvikmyndaiðnaðurinn er að ná öruggum tökum á hinninýju, stafrænu þrívíddartækni, sem á lítið skylt við þá gömlu, sem var
skammlíf bóla sem spratt upp um miðja síðustu öld. Þá var hún einkum not-
uð í annars flokks hryllingsmyndir á borð við Vaxmyndasafnið – The
House of Wax. Í dag ber mest á henni í vönduðum teiknimyndum þar sem
brellumeisturum samtímans tekst að gera lygilegustu hluti með hennar
hjálp. Þrívíddin er að þessu sinni búin að festa sig í sessi, það er engin
spurning og ef allt gengur samkvæmt áætlun munu tvær, leiknar myndir
sem eru í smíðum hjá meistara James Cameron (Titanic), festa tæknina enn
frekar í sessi.
Töfrar nýju stafrænu þrívíddarinnar