Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 52
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
BODY OF LIES kl. 10:40 B.i. 16 ára
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 1:30 LEYFÐ
“JIM CARREY KEMUR LOKS INN Í
GRÍNIÐ AFTUR EFTIR FULLLANGA
FJARVERU, OG HANN VELDUR ALLS
EKKI VONBRIGÐUM!”
TOMMI - KVIKMYNDIR.IS
JIM CARREY ER HREINT
STÓRKOSTLEGUR Í SINNI
BESTU GRÍNMYND SÍÐAN
DUMB AND DUMBER
YES MAN 1:30 - 3:40 - 6 - 8D - 8:20 - 10:20D - 10:40 B.i. 7 ára DIGITAL
YES MAN kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára LÚXUS VIP
THE SPIRIT kl. 5:50 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D LEYFÐ 3D DIGITAL
CITY OF EMBER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 B.i. 7 ára
MADAGASCAR 2 kl. 1:50 - 3:50 m/ísl. tali LEYFÐ DIGITAL
TWILIGHT kl. 3:30 - 5:50 - 8:10 - 10:40 B.i. 12 ára
YES MAN kl. 1:50D 4D - 6:10D - 8:20D - 10:40D B.i. 7 ára DIGITAL
THE SPIRIT kl. 6 - 8:20 - 10:40 B.i. 12 ára
BOLT m/ísl. tali kl. 1:503D - 43D LEYFÐ 3D - DIGITAL
BOLT m/ensku tali kl. 6:103D LEYFÐ 3D - DIGITAL
MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
TWILIGHT kl. 8:20 - 10:40 B.i. 12 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
V.J.V TOPP5.IS
FILMCRITIC.COM
á allar 3D sýningar merktar með grænuSPARBÍÓ 850 krr
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREY
SVALASTA MYND ÁRSINS
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
FRÁ RIDLEY SCOTT, LEIKSTJÓRA
AMERICAN GANGSTER OG GLADIATOR.
SÝND Í ÁLFABAKKA
- POPPLAND S.V. – MBL.
SÝND Í ÁLFABAKKA
ÍSLENSKT TAL
FRÁ MANNÖPUNUM
SEM FÆRÐU OKKUR
SHREK
SÝND Í ÁLFABAKKA
- S.V., MBL
EKK
UNDSÝND Á SELFOSSI
ÍPerú, og víðar í Suður-Ameríku reyndar, pantamenn chicha á veitingahúsumog malla líka heima. Í Perú er
chicha búið til úr fjólubláum maís,
maiz morada, en það er líka heiti á
tónlistarstefnu sem náði miklu vin-
sældum þar í landi á áttunda ára-
tugnum og nýtur enn hylli reyndar,
eins og ég sannreyndi í Perúferð síð-
sumars því vinsælustu plötur lands-
ins á þeim tíma voru ný plata með
kombói Juanecos sem naut gríð-
arlegrar hylli á áttunda áratugnum
og nýútkomin plata Bareto sem var
einmitt hylling chicha-hefðarinnar.
Chicha soðið úr cumbia
Chicha morada er soðið úr maís og
kryddað og tónlistarformið chicha er
soðið úr cumbia og kryddað með
skælifetlum og sýrðu vestrænu
poppi. Cumbia er þjóðleg tónlist ætt-
uð frá Kólumbíu, en upprunalega úr
Gíneu í Vestur-Afríku. Við komuna
til Suður-Ameríku blandaðist gínesk
tónlistarhefð við tónlist sem tíðkaðist
meðal innfæddra og úr varð Cumbia.
Sú tónlist naut þó hylli víðar en í Kól-
umbíu, því hún náði traustri fótfestu í
Amason-skógunum.
Á áttunda áratugnum varð mikil
uppsveifla í Perú í kjölfar umbóta-
hrinu, en byltingin sem varð í ung-
mennamenningu áttunda áratug-
arins í Vesturálfu barst líka til
Suður-Ameríku og þar á meðal Perú.
Í skógarhéruðum Amason var
cumbia allsráðandi tónlistarform en
þegar ungir menn tóku að nota raf-
gítara og skælifetla til að spila tón-
listina varð til nýtt tónlistarform sem
fékk nánast niðrandi heiti: chicha.
Heitið chicha var og er alla jafna
notað yfir það sem er ódýrt, hvers-
dagslegt, alþýðlegt og hverfult. Diar-
io chicha þýðir þannig gula pressan
(chicha dagblað) og cultura chicha,
chicha menning, alþýðumenning. til
aðgreiningar frá „alvöru“ menning-
unni sem stunduð var í Lima.
Ódýrt, hversdagslegt,
alþýðlegt og hverfult
Í bókinni Travesuras de la niña
mala eftir Mario Vargas Llosa, dreg-
ur Llosa upp mynd af Lima fyrri
tíma, heimi fína fólksins sem bjó í
stórhýsum í Miraflores með skjól-
sælum garði þar sem dansað var á
kvöldin um helgar mambó, guarac-
has, merengue, bolero og bugalú.
Cumbia var lágstéttatónlist, klám-
fengin og ruddaleg í augum miðstétt-
arinnar og ekki bætti úr skák þegar
menn voru búnir að flétta „dóp-
músík“, sýrurokki, saman við og úr
varð chicha.
Kombó Juanecos, Juaneco y su
Combo, sem áður var getið, er upp
runnið 1964 í borginni Pucallpa í
Amazon. Höfuðpaur hennar var múr-
steinssmiður af kínverskum ættum
og framan af hélt sveitin sig við
cumbia. Sonur stofnandans tók við
sveitinni 1969 og fyrsta platan var
tekin upp 1970. Sveitin gekk í gegn-
um miklar hörmungar 1976 þegar
flestir meðlimir hennar fórust í flug-
slysi. Einn af þeim sem lifðu slysið af
var John Wong, leiðtogi hennar, en
með nýjum mannskap tók sveitin
stefnu í átt að því sem síðar var kall-
að chicha; bræðing af cumbia, kúb-
Cumbia, skælifetlar og sýrt vestrænt popp
Chicha Perúska hljómsveitin Bareto rifjar upp gamalt stuð á nýrri skífu sinni.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
Í Perú panta menn
chicha morada á veit-
ingahúsum og malla líka
heima. Með drykknum
hlusta þeir svo á chicha
– alþýðlega danstónlist
sem hentar vel með al-
þýðlegum drykk.