Morgunblaðið - 04.01.2009, Side 55
Menning 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 2009
Hafðu samband við skrifstofu
Dale Carnegie í síma 555 7080
og fáðu nánari upplýsingar
um Næstu kynsló
ð
13-15 ára 16-20 ára 21-25 ára
www.naestakynslod.is
ð
Vilt þú...
...vera einbeittari í námi?
...geta staðið þig vel í vinnu?
...vera jákvæðari?
...eiga auðveldara með að
eignast vini?
...vera sáttari við sjálfan þig
DALE CARNEGIE
FYRIR UNGT FÓLK
Kíktu á naestakynslod.is og sjáðu hvað aðrir þátttakendur höfðu að segja um þjálfunina
Kynningarfundir verða haldnir:
mánudaginn 5.janúar kl.20:00 og
miðvikudaginn 7.janúar kl.20:00,
Ármúla 11, 3.hæð.
Æskilegt að foreldrar mæti með þeim sem
fara á námskeið fyrir 13-15 ára.
Næstu námskeið hefjast:
mánudaginn 12.janúar 13-15 ára,
miðvikudaginn 14.janúar 16-20 ára,
þriðjudaginn 20.janúar 21-25 ára.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
MEÐ fyrstu vefsíðum sem eitthvað
kvað að á netinu var kvikmyndaal-
fræðigrunnurinn Internet Movie
Database, IMDb.com, sem fór í loftið
fyrir rúmum átján árum. Áhugamenn
um aðrar listgreinar hafa ekki búið að
eins víðtækum grunni, en tónlist-
armenn geta þó vel við unað með
AllMusic.com. Amazon eignaðist
IMDb fyrir áratug og hefur nú sett af
stað vefsetur fyrir tónlistar-
áhugamenn.
SoundUnwound, http://www.so-
undunwound.com/, er vefsíða sem
IMDb og Amazon eru að hrinda úr
vör um þessar mundir (notar líka
upplýsingar frá Musicbrainz). Á þeim
vef, sem verður skrifaður af not-
endum að mestu leyti, er fyrirhugað
að hægt verði að sjá hljómsveitasögu
á einfaldan hátt, til að mynda lista yf-
ir mannaskipti og hvað viðkomandi
gerði fyrir eða eftir að hann var með í
tiltekinni hljómsveit, hvaða plötum
hann hefur komið að hvort sem það
er sem flytjandi eða lagasmiður og
svo má telja. Einnig verður þar, að
sögn, hægt að sjá tengsl útgáfufyr-
irtækja, hvaða „óháð“ útgáfufyr-
irtæki hvert risafyrirtæki á, gagn-
virka útgáfulista, lesa æviágrip
hljómsveita og tónlistarmanna al-
mennt, skoða myndbönd og svo má
telja.
Tónlistarsöluvefur
Höfuðtilgangurinn er eðlilega að
selja tónlist og þá í gegnum Amazon,
hvort sem menn vilja kaupa diska eða
tónlist á stafrænu sniði, en einnig
dugir síðan býsna vel til að finna tón-
list sem líklegt er að falli í kramið.
Þannig geta unnendur Sigur Rósar
komist að því að þeir muni líklega líka
kunna að meta múm, Radiohead,
A.R. Rahman, Sunny Day Real Es-
tate (!), Björk, This Will Destroy You,
Mogwai, Explosions in the Sky, Ok-
kervil River og Hot Chip.
Á síðu sveitarinnar hjá Sound-
Unwound kemur einnig fram að Sig-
ur Rós spili síðrokk / tilraunakennt
jaðarrokk með skvettu af drauma-
poppi, barrokkpoppi og sveimtónlist.
Aðrar sveitir sem falli að þeirri lýs-
ingur séu svo Amiina, Explosions in
the Sky, Thee Silver Mt. Zion Me-
morial Orchestra & Tra-La-La Band,
Brian Cram og Tamara Williamson.
Lesendur skrifa
Ef einhver er ósáttur við þessa lýs-
ingu getur hann svo einhent sér í að
breyta henni, leiðrétta eða eyðileggja,
eftir því hvernig á það er litið. Allar
breytingar eru svo bornar undir
menn og samþykktar eða þeim hafn-
að (sem kemur í veg fyrir leiðindi
þegar emo-liðið fer að kljást við me-
tal-hausana). Eftir því sem fleiri
breytingar eru samþykktar þokast
maður svo upp ritstjóralistann og
notendanöfn tíu öflugustu birtast á
forsíðu vefsins. Það þarf þó talsvert
átak til að ná þangað því sú sem flest-
ar breytingar hefur gert, „Brigid“,
hefur skilað 36.491 breytingu og er
með 95,7% skor (samþykktar breyt-
ingar). (VinZ er í öðru sæti með „að-
eins“ 19.537 breytingar og skor upp á
98,1%.)
Ekki fer á milli mála að Sound-
Unwound er aðallega stefnt gegn
Allmusic.com, sem hefur verið helsta
upplýsingalind fyrir tónlistargrúsk-
ara á netinu, en reynslan af Wiki-
pedia sýnir að gagnagrunnur sem al-
menningur skrifar er ekki endilega
síðri grunnur. Fróðlegt verður að sjá
hvernig til tekst með SoundUnwound
og eflaust á eftir að spretta skemmti-
legur tónlistarstefnukrytur manna á
milli því de gustibus non est disput-
andum, eins og maðurinn sagði.
VEFSÍÐA VIKUNNAR»
Alþýðleg tónlistarfræði
Sölumennska SoundUnwound
vill verða vettvangur fyrir al-
þýðleg tónlistarfræði.
TOM Cruise segir
að börnin sín
þurfi að hafa fyr-
ir því að fá hlut-
verk í kvikmynd-
um. Hann segist
ekki hafa kippt í
neina spotta til að
Connor, 13 ára
ættleiddur sonur
þeirra Nicole
Kidman fengi
hlutverk í kvik-
myndinni Seven Pounds, þar sem
Will Smith leikur aðalhlutverkið.
„Börnin verða að verðskulda
þetta,“ segir Cruise og bætir við að
þeir Smith hafi gengið stressaðir um
gólf fyrir utan herbergið þar sem
Connor þreytti leikprufuna – þeir
hefðu ekki haft áhrif á útkomuna.
Hann bætti við að börn þeirra
græddu á uppeldinu, ef þau vildu
leggja leikinn fyrir sig. „Þau eru
alltaf í kvikmyndaverum. Katie er
leikkona,“ segir hann um núverandi
eiginkonu, Katie Holmes, „og hún
heldur á Suri dóttur okkar á sviðinu
þar sem hún er með öðrum leikurum
að æfa línurnar sínar. En börnin
gera það sem þau vilja gera.“
Cruise kippti
ekki í spotta
Mæðginin Nicole
Kidman og Connor.
Hann leikur á móti
Will Smith.